Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 22
12
IÞRÓTTABLAÐIÐ
Evrópumeistarasundmótið í Monte Carlo
Á síðastliðnu vori tók Sundráð
Reykjavíkur áltvörðun um að senda
nokkra menn á Evrópumeistaramótið í
sundi, sem lialda átti í Monte Carlo dag-
ana 10. - 14. september 1947. Var talið
æskilegt, að 2-3 sundkennarar væru
með í förinni, þvi margt er hægt.að læra
á slíkum mótum, en þvi miður strandaði
sú ákvörðun á gjaldeyriserfiðleikum, og
leit jafnvel svo út um tíma, að enginn
erlendur gjaldeyrir fengist til fararinn-
ar. Úr þessu rættist þó svo á síðustu
stundu, að gjaldeyrir fékkst handa
þremur þátttakendum og fararstjóra, og
urðu fyrir valinu Sigurður Jónsson K.R.
Sigurður Jónsson Þingeyingur og Ari
Guðmundsson Ægir, en fararstjóri var
formaður S. R. R., Erlingur Pálsson yfir-
lögregluþjónn, sem jafnframt sat þing
alþjóða-sundsambandsins, er haldið var
samtímis mótinu.
Við lögðum af stað héðan föstudaginn
5. september, með flugvélinni Heklu, á-
leiðis til London, og gekk ferðin þangað
ágætlega. Æskilegast hefði verið að geta
hka farið með flugvél síðari hluta leið-
arinnar, en það reyndist ógerlegt vegna
kostnaðarins, og urðum við því að sætta
okkur við þreytandi járnbrautarferða-
lag. Lögðum við i þá ferð laugardags-
morguninn kl. 8 og var fyrsti áfanginn
til Folkestone og síðan með ferju yfir
Ermasund til Boulogne í Frakklandi og
svo áfram með lestinni til Parísar og
komum þangað um kl. 5 síðdegis. Leit
uðum við uppi íslenska sendiráðið, og
hittum fulltrúann, Kristján Albertsson,
sem greiddi götu okkar með sérstakri
lipurð og dugnaði. Dvaldi hann með
okkur um kvöldið.
Næsta dag, sunnudaginn 7. sept. héld-
um vio' áfram ferðinni með járnbrautar-
lest alla leið til Monte Carlo. Tók sú
ferð 17 klst. og var lítið næði til hvíld-
ar eða svefns um nóttina. Við komum á
leiðarenda síðdegis á mánudag og gáf-
um okkur fram á aðalskrifstofu móts-
ins. Var okkur fenginn dvalarstaður á
Hotel Vindsor. Þótti okkur gott að vera
komnir alla leið heilu og höldnu, því
Eftir
Ara Guðmundsson
við vorum bæði þreyttir og syfjaðir eftir
ferðalagið og þvi fegnir hvildinni.
Allir aðrir þátttakendur mótsins voru
komnir fyrir nokkrum dögum, farnir að
æfa sig og venjast lauginni og Joftslag-
inu. Flestir höfðu komið loftleiðis alla
leið eða með bifreiðum, sem þeir höfðu
algerlega til eigin umráða.
Á þriðjudagsmorguninn fórum við
á fætur kl. 8 og gengum út að sund-
lauginni, sem er nm hálfrar klst. gang
frá gistihúsinu. En síðar fórurn við
þessa leið oftast með strætisvagni,
sem lagði upp frá Casino-torginu, er
var skammt frá Hotel Windsor. Þegar
að sundlauginni kom, var okkur feng-
inn lykill að klefa okkar. Vorum við
fljótir að tína af okkur spjarirnar og
steypa okkur í laugina. Sundlaugin er
ákaflega falleg, 50x18 metra sjólaug,
og skipt i 7 brautir. Sjónum er dælt
beina leið í hana, og var hitinn 20 - 25
stig i lauginni. Hvert land hafði sína
sérstöku braut til æfinga ákveðna hluta
dagsins. Sum lönd þurftu þó tvær braut-
ir vegna fjölda þátttakendanna.
Við höfðum þriðju braut til æfinga
tvisvar á dag, eina klst. i hvert sinn,
en tíminn færðist til daglega, svo hann
skiptist sem jafnast niður á keppend-
urna.
Þennan sama dag hittum við Svíann
Per Olof-Olsson, og var hann mjög á-
nægður yfir því að sjá íslendinga á
mótinu. Leiðbeindi hann okkur eftir
því sem hann hafði tíma til.
Að lolcinni fyrstu æfingunni fórum
við að skoða okkur um i bænum og sá-
urn margt nýstárlegt, sem nærri má
geta, til dæmis spilabankann fræga,
sem allt furstadæmið Monaco lifir á.
Monte Carlo er ákaflega þrifalegur bær.
Þarna eru margar skrautlegar bygg-
ingar og landslagið einkennilegt og
fagurt.
Miðvikudaginn 10. sept. átti setn-
ingarhátíðin að byrja kl. 3, en hún
Frá setningu Evrópumeistaramótsins í Monte Carlo.