Íþróttablaðið - 01.12.1947, Page 28
18
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Mei§taramót I$land§
Fyrsti dagnr, mánudagur 11. ágúst.
3 íslandsmet í kalsaveðri.
Þetta 21. Meistaramót, sem frestað
hafði verið daginn áSur, hófst meS
undanrásum i 200 m. hlaupi. Kallt
var í veSri og vindur suSvestan (um
4 stig) eða i fang hlauparanna meiri
hluta leiðarinnar. Fyrri riðilinn vann
Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR léttilega á
23,3 sek, en allhörS keppni var um 2.
sætið milli þeirra KR-inganna Trausta
Eyjólfssonar og Péturs Sigurðssonar.
Vann sá fyrrnefndi á 23,9, en Pétur
fékk 24,1. í síðari riðlinum voru 4
keppendur. Haukur Clausen, ÍR vann
leikandi létt á 23,1 sek. Næstur varð
Ásm. Bjarnasön, KR á 23,7, þriðji Mag-
nús Jónsson, KR 24,1 og fjórði Hall-
dór Lárusson, Umsk, 24,3. Vegna hins
óhagstæða vinds var úrslitahlaupinu
frestað uin óákveðinn tíma.
Hörð keppni í 800 m. hlaupi.
5 keppendur mættu til leiks i 800
m. hlaupi. Óskar tók forustuna með
Kjartan á hælum sér, en Stefán Gunn-
arsson, Á fékk fékk pústur í þr'engsl-
unum á fyrstu beygjunni og dróst
nokkuð aftur úr. Fyrri hringur var
ekki hlaupinn á betri tíma en 1 mín.
enda var veður meS afbrigSum kalt óg
hryssingslegt. Nú fóru þeir Óskar og
Kjartan að greikka sporið, en Pétur
Einarsson, ÍR fór fram úr báðum Ár-
menningunum. Á síðustu 100 m. gerði
Kjartan hraustlega tilraun til að ná
Óskari, en án árangurs og Óskar sleit
snúruna um 3 m. á undan. Tíminn er
prýðilegur með tilliti til allra aSstæðna
í logni hefði metiS 1:50,1 án efa fallið.
Urslit: íslandsmeistari 1947, Óskar Jón-
son IR, 1:58,1 mín.
2. Kjartan Jóhannsson, ÍR 1:58,6 mín.
3. Pétur Einarsson, ÍR 2:03,6 mín.
4. Hörður Hafliðason, Á. 2:04,7 mín.
5. Stefán Gunnarsson, Á, 2:07,6 mín.
Meistari í fyrra: Kjartan 1:57,2 mín.
Vann kúluvarpið í síðustu tilraun.
Kúluvarpið var óvenju sp'ennandi
að þessu sinni, enda vantaði Huseby,
sem annars hefði átt sigurinn visan.
Svo klaufalega hafði tekist til að kepp-
endur voru að óþörfu látnir kasta
móti hinum sterka vindi og háði það
nokkuð. í fyrstu umferð náði enginn
góðu kasti nema Vilhjáhnur (13,57 m.)
en strax í 2. umferð tók Sigfús frá
Selfossi forustuna með 13,88 m. og
hélt henni út 5. umferð, er hann lengdi
sig upp í 14,01 m., sem er fjórði bezti
árangur íslendings. Vilhjálmur hafði
ekkert lengt sig frá 1. umferð, Friðrik
uáði hinsvegar 13,39 m. i fimmtu um-
ferð og Sig. Sigurðsson ÍR, liafði 13,28
m. í síðustu umferð fór Friðrik
einnig fram úr Vilhjálmi og varpaði
13,81 m., sem er ágætt kast og
persónulegt met lians. Vilhjálmur sýndi
nú óvenju mikla einbeitni og tauga-
styrkleik, þvi að í þessari síðustu til-
raun tókst honum að komast fram úr
hinum báðum og vinna sinn fyrsta
íslandsmeistaratitil með 14,07 m. varpi.
Ef hringurinn hefði verið látinn snúa
undan vindinum, eru líkur til að 3
menn hefðu varpað yfir 14 og kúlu-
varpið unnist á 14,50 — 14,60 m. Úr-
slit: íslandsmeistari 1947, Vilhj. Vil-
mundarson, KR, 14,07 m. 2. Sigfús Sig-
urðsson, Self. 14,01 m. 3. Friðrik Guð-
mundsson, KR. 13,81 m. 4. Sig. Sigurðs-
Vilhjálmur Vilmundarson, K. R.
son, ÍR 13,28 m. 5. Gunnlaugur Inga-
son, Hvöt 12,86 m. 6. Ástv. Jónsson, Á.
12,81 m. Meistari í fyrra: Huseby 15,11
Skúli „aðeins“ 1,80 m.
Enda þótt veður væri sérstaklega
óhagstætt fyrir hástökkvarana, von-
uðu menn þó að Skúli færi 1,85—1,90
m. eins og hans er vani. Þetta brást
þó, enda nutu þeir sín hvorugur Skúli
né Kolbeinn, sem einnig var 10 cm.
fyrir neðan sitt bezta. Nýliðinn Her-
mann Magnússon, KR var sá eini, sem
veðrið fékk ekkert á, því að hann fór
hátt yfir 1,70 m. og bætti sitt per-
sónulega met um 5 cm. Virðist hann
vera gott efni í stökkvara. Úrslit: ís-
landsmeistari 1947, Skúli Guðmundsson
KR 1,80 m. 2. Kolbeinn Kristinsson,
Self. 1,70 m. 3. Hermann Magnússon,
KR 1,70 m. Meistari í fyrra: Örn Clau-
sen, ÍR 1,70 m. (stökk þó 1,75 í um-
stökki).
Finnbjörn 7,14 í langstökki
bezta afrek kvöldsins’.
Það var nokkurnveginn vist að lang-
stökkið mundi vinnast á 7 rnetra stökki
því auk þess sem vindurinn var beint
i bakið, þá mættust þarna í fyrsta
sinn okkar einu 7 metra langstökkvar-
ar, methafinn og meistarinn Oliver
Steinn 7,08 og Finnbjörn Þorvaldsson,
sem liafði stokkið lengst áður 7,04 m.
Keppnin hófst með 6,78 m. stökki hjá
Finnbirni, Oliver svaraði með 6,69
m. og Magnús Raldvinsson, ÍR með
6.64 m., hinir fjórir voru fyrir neð-
an 6,50 m. í annari umferð kom svo
metstökkið. Finnbjörn náði meiri hæð
en áður og það dugði, því að atrenn-
an var ágæt — 7,14 m. nýtt met og
6 cm. betra en gamla metið, sem Oliver
setti i svipuðu veðri á meistaramót-
inu 1944. Vegna meðvindsins, sem var
milli 3 og 4 stig meðan langstökkið
fór fram, er vafi á því að metið verði
staðfest, þar sem leikreglur leyfa ekki
nema 2 stig. Hitt er svo annað mál, að
svo kalt var í veðri að Finnbjörn hefði
vafalaust stokkið jafnlangt í logni og
hita. Oliver svaraði með 6,86 m. Er
það gott afrek með tilliti til þess að
hann er lítt æfður og þetta hans fyrsta
keppni á sumrinu í Rvík. Eftir þetta
skeði lítið markvert. Olíver náði aftur
sömu lengd, Finnbjörn ógilti flest sin