Íþróttablaðið - 01.12.1947, Page 31
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
21
Þung braui í þrístökki.
í þrístökki voru aöstæður mjög erf-
iðar, þvi að brautin var bæði þung og
lin. Árangurinn varð og eftir aðStæðum,
þvi flestir keppendur stukku um það
bil hálfum metri styttra en þeir eru
T'anir. Fyrstu þrír menn voru mjög
jafnir og var methafinn sjálfur Stefán
Sörensson þó jafnbeztur. Átti hann
4 stökk yfir 13 m., hinir 2 hvor. Fyrstu
4 menn eru allir utanbæjarmenn og
tveir fyrstu báðir frá sama sambandi.
Héraðssambandi Þingeyinga. Það má
teljast lofsvert að keppendur, sem voru
10 á skrá mættu allir til leiks. Úrslit.
íslandsmeistari 1947: Stefán Sörensson
HSÞ. 13,27 m. 2. Óli P. Kristjánsson, H-
SÞ. 13,14 m. 3. Þorkell Jóhannesson,
FH. 13,13 m. 4. Kári Sólmundarson,
Skallagr. 12,81 m. Meistari í fyrra: Sami
13,82.
Ásm. Bjarnason sézt hér sigra í 200 m.
hlaupi. Til vinstri er Þorbjörn Pétursson.
KR-ingarnir Magnús Jónsson og Trausti
Eyjólfsson.
Skúli fyrsti íslendingurinn undir 16 sek.
Þótt þátttakan væri litil i 400 m. gr,-
hlaupinu (3 menn) var hún þá enn
minni i 110 m. grindahlaupinu, sem þó
er búið að vera á dagskrá í 36 ár. Má
þetta alls eklti ganga svona til lengur. Af
3 keppendum á skrá gekk einn úr. Var
það methafinn Finnbjörn Þorvaldsson.
Urðu það mörgum vonbrigði, þar sem
þeir Skúli hafa ekki keppt saman siðan
1945, en Skúli hinsvegar aldrei tapað
grindahlaupi. Þótt Skúli hefði þannig
litla samkeppni, hljóp hann svo greitt
og ákveðið alla leið, að engu var Hkara
en liann liugði Finnbjörn vera við hlið-
ina á sér. Þrátt fyrir frekar þunga
braut tókst Skúla að lækka íslandsmet
Finnbjarnar úr 16,2 sek. niður í 15,8 sek.
Er metið nú orðið vel sambærilegt við
flest önnur met okkar og gefur rétt
800 stig. Það muu ekki orka tvímælis,
að Skúli sé bezti grindahlaupari sem við
höfum átt, því að hann hugsar fyrst og
fremst um að lilaupa grindahlaupið, en
ekki stiikkva það í gegn eins og marg-
ir gera. Úrsiii. íslandsmeistari 1947: —
Skúli Guðmundsson, KR. 15,8 sek. (nýtt
íslandsmet) 2. Ólafur Nielsen, Á. 17,2
sek. Meistari í fyrra: Finnbjörn 16,2 sek.
Spennandi keppni í sleggjukasti.
Af 5 skráðum keppendum komu 6 til
leiks svo að heimtur Voru meira en 100
%! Aðalkeppnin varð milli Vestmanna-
eyinganna Simons Waagfjörð og Áka
Granz sem nú keppir fyrir Selfoss. —
Þegar síoasta limferð hófst, hafði Áki
kastað lengst 38,60 m., en Símon 38,18
m. Áki kastaði fyrst og mistókst (35,58
m.). Iíom nú röðin að Símoni og tókst
honum að ná svipaðri lengd og bezta
kast Aka. Var mikill spenningur um
það hvort kastið væri lengra. Við ná-
kvæma mælingu reyndist það vera 38,
61 m. og vann Símon því íslandsmeist-
aratitilinn á 1 cm. Báðir kasta þeir
ágætlega en eru nokkuð léttir fyrir
þessa íþróttagrein. Úrslit: íslandsmeist-
ari: Símon Waagfjörð, ÍBV, 38,61 m.
2. Áki Grans, Self. 38,60 m. 3. Þórður
Sigurðsson, KR, 33,23 m. 4. Friðrik
Guðmundsson, KR, 32,39. Meistari í
fyrra: Vilhj. Guðmundsson, KR, 38,34
3. dagur mótsins, 13. ágúst.
Haukur hleypur 200 metrana á mettíma.
Þar sem það hafði heyrst að fram-
Skúli Guömundsson.
kvæmdanefnd mótsins myndi ætla að
haga framhaldi meistaramótsins eftir
veðri og hentugleikum, var nokkur ó-
vissa uni hvaða greinar yrðu teknar.
þriðja dag mótsins þótt leikskráin sýndi
bæði boðhlaupin og fimmtárþrautina.
Þar sem Veður var óhagstætt, kaldi og
nokkur vindur af suðvestan, var á-
kveðið að bíða með úrslit 100 m. hlaups-
ins, sem frestað hafði verið daginn
áður, en taka í þess stað úrslit í 200
m. hlaupinu frá fyrsta degi mótsins.
Voru keppendur látnir hlaupa syðri
beygjuna vegna vindsins. Haukur dró
1. braut, Finnbjörn 2. Trausti 3. og
Ásm. 4. Sýndi Haukur nú greinilega
að Iiann er orðinn sterkari en Finn-
björn á þessari vegalengd — og sigr-
aði örugglega. Vann hann stöðugt á
frá byrjun og hljóp framúrskarandi
vel. Finnbjörn var í daufara lagi en
Ásm. og Trausti hinir sprækustu og
ekki ýkja langt á eftir honum. Tími
Hauks reyndist vera 22,1 sek. eða ná-
kvæmlega jafn meti Finnbjarnar og því
nokkurnveginn öruggt að hann yrði
valinn í Norðurlandaliðið á þessa vega-
lengd. Úrslit urðu þessi:
íslandsmeistari 1947: Haukur Clau-
sen, ÍR, 22,1 sek. 2. Finnbjörn Þorvalds-
son, ÍR, 22,4 sek. 3. Ásm. Bjarnason,
KR, 22,9 sek. 4. Trausti Eyjólfsson,
KR, 23,3 sek. Meistari i fyrra: Finnbj.
22,6 sek.