Íþróttablaðið - 01.12.1947, Side 32
22
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
ÍR vann bæði boðhlaupin.
Næst var keppt í 4x100 m. boðhlaupi,
en jafnframt voru tvær aukagreinar
teknar á dagskrá, kúluvarp og stang-
arstökk — og er það nýtt fyrirbrigði á
Meistaramóti íslands. ÍR hafði forust-
una í 4x100 m. boðhlaupinu frá byrjun
og sigraði á ágætum tíma — 44 sek. —
aðeins 1/10 úr sek. lakara en metið.
KR-sveitin varð næst og bljóp nú á sín-
um bezta tíma. Úrslit: Islandsmeistari
1947: ÍR-sveitin (Finiibj., Reynir, Örn
og Haukur) 44,0 sek. 2. A-sveit KR
(Trausti, Pétur, Magnús, Ásm.) 44,9 sek.
3. Ármann (Þorbj., Guðm., Guðjón og
Reynir), 46,5 sek. 4. B-sveit KR (Páll
Brynj., Sveinn, Skúli), 46,6 sek. Meist-
ari í fyrra ÍR á 44,7 sek.
í 4x400 m. boðhlaupi varð keppnin
milli ÍR og KR, enn meiri, því Hauk-
ur bljóp ekki meo hjá ÍR. Eftir fyrstu
400 m. átti KR meira að segja 2 fyrstu
sveitirnar, en ÍR-sveitin var í þriðja
sæti. Á næsta spretti tók Reynir for-
ustuna fyrir ÍR og svo bætti Óskar
enn um á þriðja sprettinum, þannig
að sigur ÍR var orðinn öruggur við
síðustu skiptinguna. Magnús Jónsson,
KR lét þó engan bilbug á sér finna
og tókst að halda bilinu í skefjum þótt
við sjálfan Kjartan Jóhannsson væri að
etja. Úrslit: íslandsmeistari 1947: ÍR-
sveitin (Pétur, Reynir, Óskar Kjartan)
3:28,2 mín. 2. A-sveit KR (Páll, Pétur,
Ásm., Magnús) 3:29,8 mín. 3. Ármann
(Árni, Stefán, Sigurgeir, Hörður) 3:37,6
mín. 4. B-sveit KR. (Sveinn, Ingi, Brynj.
og Trausti) 3:40,6 mín. Meistari i fyrra
ÍR 3:33,4 mín.
Vilhjálmur kastar yfir 14,50 m.
Aukakeppnin í kúluvarpi sýndi að Vil-
Iijálmur er í stöðugri framför og nálg-
ast nú óðum 15 metrana. Sigfús og
Friðrik eru einnig orðnir nokkuð ör-
uggir með 13,60 — 14, sem einhverntíma
hefði þótt gott. Úrslit: 1. Vilhjálnmr
Vilmundarson, KR, 14,53 m. (persónu-
legt met) 2. Sigfús Sigurðsson, Self.,
13,86 m. 3. Friðrik Guðmundsson, KR,
13,62 m. 4. Gunnl. Ingason, Hvöt, 12,74
m. 5. Ástv. Jónsson, Á. 12,64 m. 6.
Sig. Sigurðsson, ÍR, 12,43 m. 7. Hjálmar
Torfason, HSÞ, 12,24 m.
Torfalaust stangarstökk!
Þar sem það var fyrirfram vitað,
að Torfi gæti ekki keppt vegna meiðsla,
sem hann fékk daginn áður (við nið-
urkomu i gryfjuna) var spenningur-
inn lítill bæði hjá áhorfendum og kepp-
endum. Annars mætti gjarnan benda
hlutaðeigandi aðilum á það, að erlendis
er sag talið mjög nauðsynlegt i stang-
arstökksgryfjur. — Úrslit: 1. Bjarni
Linnet, Á., 3,45 m. 2. Kolbeinn Krist-
insson, Self., 3,45 m. 3. Þorsteinn Löve,
ÍR, 3,00 m.
4. dagur mótsins 21. ágúst.
Óvænt úrslit í 100 m. hlaupi.
Þar sem veður var fremur óhagstætt
dagana eftir 13. ágúst var mótinu frest-
að um óákveðinn tíma. Rúmri viku
siðar var þó lialdið áfram þrátt fyrir
hvassviðri og kulda og keppt í tveim
greinum, 4x1500 m. boðhlaupi og úr-
slitum í 100 m. hlaupinu. Liðu þannig
9 dagar milli milliriðils og úrslitahlaups
í 100 metrum og er slíkt víst einsdæmi
í lieiminum. Vegna vindsins var braut-
inni snúið við eins og i 200 m. Annars
var ekki búist við neinum sérstökum
árangri, þar sem erfitt er að ná góðufn
tíma við fyrstu tilraun í kalsa. Finn-
björn náði strax forustunni og hélt
henni fram á síðástu metra, en þá náði
Haukur honum með sínum mjúka og
létta endaspretti og marði vinning, all-
greinilega þó. Tími beggja var úrskurð-
aður sá sami — 10,9 sek. eða 2/10 lakari
en íslandsmetið, sem Finnbjörn hafði
sett í milliriðlinum. í spenningnum tóku
fáir eftir 3. og 4. manni, en það voru
þeir Ásm. og Þorbjörn, sem báðir fengu
sömu tíma og í milliriðlinum. Úrslit:
íslandsmeistari 1947: Haukur Clausen,
ÍR 10,9 sek. 2. Finnbjörn Þorvalds-
son, ÍR. 10,9 sek. 3. Ásm. Bjarnason,
KR. 11,2 sek. 4. Þorbjörn Pétursson,
Á. 11,4 sek. Meistari í fyrra: Finn-
björn 10,8 sek.
Óhagstætt veður fyrir
4x1500 m. boðhlaup.
Það mun bafa verið erfitt að
að h'tta á óhagstæðara veður fyrir
langhlaup en var þetta kvöld, enda
stóðst metið (17:52,6 mín.) áhaup
ÍR.-sveitarinnar, og er það þó ekki
betra en sem svarar ca. 4:28,0 á
mann. Þctta er að því leiti leiðinlegt,
að þetta var í fyrsta sinn, sem 4x1500
m. boðhlaúp er sett inn á meistara-
mótið. Ástæðan fyrir því að grein-
um þessum var hespað af þetta kvöld
mun hinsvegar vera sú, að ekki var
seinna vænna vegna utanfarar IR. og
framkv.nefndinni mun ekki hafa þólt
þorandi að bíða eftir betra veðri.
Úrslit: íslandsmeistari: ÍR-sveitin
(Örn Eiðsson, Kjartan, Pétur og Ösk-
ar) 17:54,0 mín. 2. Ármann (Snæ-
björn, Árni, Stefán, Hörður) 18:29,2
mín. 3.. Drengjasveit KR. (Sveinn
Björnss., Ingi Þorsteinss., Einar Einars
son og Ólafur Ragnarsson) 19:06,2
mín. (nýtt drengjamet).
Fimmtarþraut var enn frestað þótt
augíýst væri og urðu það mörgum
vonbrigði, bæði keppendum og á-
horfendum.
5. dagur mótsins, 5. sept. Fimmtarþraut.
Hálfum mánuði eftir 4. dag móts-
ins fór fimmtarþrautin- loks fram.
Voru keppendur 4 eða helmingi færri
en skráðir voru. Ásm. Bjarnason, KR.
sigraði mjög auðveldlega þar sem
hvorki Jóel né Finnbjörn voru ann-
arsvegar. Annars er Ásmundur þegar
orðinn mjög góður fimmtarþrautar-
maður á okkar mælikvarða og þyrfti
ekki nema örlitla hepni til þess að
bæta metið. Úrslit: Islandsmeistari
1947: Ásmundur Bjarnason KR. 2687
stig. Einstök afrek (Langst. 6,17 m.,
Spjót 44,93 m., 200 m. 23,0 sek.
Kringla 31,84 m., 1500 m. 5:11,6
mín.). 2. Gunnar Sigurðsson, KR.
2164 stig. 3. Guðm. J. Sigurðsson, Á.
2063 stig. 4. Stefán Gunnarsson, Á.
1886 stig. Meistari í fyrra Jón Hjartar
KR. 2689 stig.
6. og 7. dagur mótsins. 13.—14. sept.
Tugþraut.
Enn leið rúm vika og þá var loks
bægt að halda tugþrautina. 10 km.
hlaupinu var hinsvegar frestað í
nokkura daga. Til kepni í tugþraut
mættu 5 menn, en 3 þeirra komu ekki
til leiks siðari daginn og luku þvi
aðeins 2 þrautinni. Þeir, sem hættu
voru KR-ingarnir FYiðrik Guðnmnds-
son, (stighæstur eftir fyrri daginn),
2855 stig), Hermann Magnússon (2765
stig) og Torfi Bryngeirsson (hætti
eftir 4 greinar). Keppnin varð þvi litt