Íþróttablaðið - 01.12.1947, Síða 35
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
25
Hermann Magnússon, KR.
16. sept var keppt í 4x200 m. boð-
hlaupi með þeim úrslitum, að A-sveit-
in (Pétur, Trausti, Magnús og Ás-
mundur) setti nýtt íslandsmet, 1:32,5
mín., en ganda metið, sem lR setti
s.l. sumar var 1:32,7 mín. Sama kvöld
var keppt í sleggjukasti fyrir drengi
og setti Þórður B. Sigurðsson þar
nýtt drengjamet. Kastaði hann 41,40
m., en gama metið var 40,73 m., sett
af Áka Granz, ÍBV. 1944.
30. sept. fór frain drengjakeppni í
4x200 og 4x400 m. boðhlaupum. Setti
KR-sveitin (Pétur, Ingi Þ., Sveinn
Björnsson og Magnús)nýtt drengjamet
í 4x200 m. á 1:36,6 mín., én ÍR. átti
það fyrra — 1:38,2 mín. sett 1943.
4x400 m. boðhaupið hljóp sveitin á
3:41,6 mín. og skorti þar 1,2 sek. á
sitt eigið dreng'jamet.
Ármann.
6. september var keppt i 60 m.
hlaupi og sigraði þá Reynir Gunnars-
son á 7,4 sek., en Árni Kjartansson
fékk sama tíma. í undanrás hafði
Reynir hlaupið á 7,2 sek. sem er jafnt
drengjameti. — 3000 m. hlaupið vann
Stefán Gunnarsson á hinum ágæta
tíma 9:23,4 mín. Hástökkið vann Ól.
Nielsen á 1,50 m.
Sameiginleg innanfélagskeppni.
6. okt. fór fram sameiginleg innan-
félagskeppni í 2 íþróttagreinum, en
auk þess hljóp drengjasveit ÍR. 4x
200 m. boðhlaup. Úrslit urðu jiessi:
60 m. hlctiip: 1. Haukur Clausen,
ÍR. 7,1 sek. (nýtt drengjamet). 2. Örn
Clausen, ÍR. 7,3 sek. 3. Þorbjörn Pét-
ursson, Á. 7,3 sek. Gamla metið var
7,2 sek. og höfðu 4 drengir hlaupið
á þeim tíma.
80 m. hlaup: 1. Haukur Clausen,
ÍR. 9,1 sek. (nýtt drengjamet). 2. Örn
Clausen, ÍR. 9,1 sek. 3. Þorbjörn Pét-
ursson, Á. 9,4 sek. 4. Trausti Eyjólfs-
son KR. 9,5 sels. (hann hljóp i öðrum
riðli). Gamia drengjametið — 9,3 sek.
— setti Finnbjörn Þorvaldsson 1943.
Þessi árangur Hauks og Arnar gefur
824 stig og samsvarar þá 11,0—11,1
sek í 100 m. hlaupi.
1 4x200 m. boðhlaupi setti ÍR.-sveit-
in (Þórarinn, Reynir, örn og Hauk-
ur) nýtt drengjamet ■— 1:33,9 mín.
og bætti þar með verulega met það,
sem KR hafði sett hálfum mánuði
áður.
Æfingamót Ekbergs.
4. október fór fram æfingamót í
nokkrum íþróttagreinum að tilhlut-
un Olle Ekbergs olympíuþjálfarans.
Vegna óhagstæðs veðurs varð árangur
mun lakari en efni stóðu tih 100 m.
hlaupið vann Haukur Clausen á 10,9
sek. aðeins sjónarmun á undan Erni
Clausen, sem fékk sama tíma. Þess
ber að geta að hlaupið var öfugt
undan allsterkum vindi. Auk jjess var
keppt í 800 m. lilaupi, stangarstökki,
kúluvarpi og kringlukasti, en árangur
með lakara móti vegna veðursins.
Annars má geta þess hér að frjáls-
íþróttamenn eru mjög ánægðir með
kennslu og þjálfun Ekbergs og var
árangurinn af starfi hans þegar far-
inn að koma í ljós á síðustu mótum
sumarsins, ])ótt hann leggi vitanlega
aðaláherzluna á að íþróttamennirnir
verði i fullkominni þjálfun næsta
sumar, er Olympíuleikarnir fara fram.
SkóJamótið.
Hið árlega skólamót í frjálsum
iþróttum fór fram á íþróttavellinum
i Rvík 21. okt. s.l. Úrslit urðu þau,
að Menntaskólinn vann með yfir-
burðum. Hlaut Iiann 83 stig, Háskól-
inn fékk 26 stig. Samvinnuskólinn 24
og aðrir færri. Stighæstur einstakl-
inga var Örn Clausen, Menntaskól-
anum, sem vann 3 greinar hástökk
(1,71), langstökk (6,71 m.), kringlu-
kast (35,43 m.) og' var auk þess • í
boðhlaupssveitinni sem sigraði (45,8).
Hlaut Örn alls 22% stig. Haukur
Clausen átti hinsvegar bezta afrek
Frjálsíþróttasamband íslands
Þann 16. ágúst s.l. var að tilhlutun
Í.S.Í. stofnað hér í Reykjavík Frjáls-
íþróttasamband íslands (F.R.Í). —
Höfðu 24 félög innan 7 héraðssam-
banda senl áskorun til Í.S.Í. um að
stofna sambandið, en á stofnfundinum
mættu 15 fulltrúar frá 9 félögúm.
Forseti Í.S.Í. Ben. G. Waage, setti
fundinn og skýrði frá aðdraganda að
stofnun sambandsins, en forgöngu í
því máli hafði íþróttaráð Reykjavíkur
haft. Fundarstjóri var kosinn Guðm.
Sigurjónsson og fundarritari Páll Hall-
dórsson. Forseti Í.S.Í lagði fram frum-
varp að lögum sambandsins, sem Í.S.Í.
hafði samþykkt og samþykkti fundur-
inn það óbreytt. Fnnfremur var sam-
þykkt að senda lögin öllum liéraðs-
samböndum og frjálsíþróttaráðum, er
aðilar geta gerzt að sambandinu og
skyldu þau, sem ganga í sambandið
fyrir 1. jan. 1948 teljast stofnendur,
en þá tekur sambandið formlega við
stjórn allra íslenzkra frjálsíþróttamála.
Loks var ákveðið að fyrsta þing sam-
bandsins skyldi liáð í sambandi við
næsta meistaramót í frjálsum íþrótt-
um sumarið 1948.
í stjórn frjálsíþróttasambandsins
voru kosnir þessir menn: Iionráð
Gíslason, Rvík, formaður; Jóhann
Bernhard, Rvík, varaformaður; Guðm.
Sigurjónsson, Rvík, bréfritari; Lárus
Halldórsson, Brúarlandi, fundarritari
og Oliver Steinn, Hafnarf., gjaldkeri.
í varastjórn voru kosnir Sig. S. Ólafs-
son, Þórarinn Magnússon og Ólafur
Sveinsson, en endurskoðendur Jens
Guðbjörnsson og Erl. Ó. Pétursson og
til vara Sigurpáll Jónsson.
Á fyrsta stjórnarfundi sambandsins,
sem haldinn var 28. ágúst, færði Jó-
hann Bernhard sambandinu að gjöf
skjalasafn sitt, mikið að vöxtum, en
í því eru ítarlegar skýrslur um flest-
öll íþróttamót, sem haldin liafa verið
liér á landi frá því um aldamót og fram
á þennan dag.
mótsins 10,9 sek í 100 m. hlaupi, sem
gefur 872 stig. Auk þess vann hann
400 m. (52,1) varð 3. í langstökki
(6,16) og hljóp endasprettinn í boð-
hlaupssveitinni.