Íþróttablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
37
Nafn Ríkarðs Jónssonar, vakti fyrst
athygli í þann mund, sem verið var
að velja i landslið Islands, sem senda
átti á móti Dönum sumarið 1946. —
Ríkarður var þá eini utanbæjarmað-
urinn, sem valinn var til landsliðs-
æfinganna, en þá lék Ríkarður með
íþróttabandalagi Akraness.
Ríkarður Jónsson er nú fluttur hing-
að til Reykjavíkur og lék nú í sumar
með meistaraflokki Fram. — Ríkarðs-
laus er framlína Fram, að margra áliti
ekki upp á marga fiska, i það minnsta
hvað skotmann snertir, og gefa tölur
þær er settar eru hér fram um sett
mörk í mótinu þess merki.
hafði „kingsað“ all illilega. Eftir mark-
ið snerist leikurinn algerlega og hélt
Valur látlausri sókn að K. R. markinu,
að undanteknum nokkrum snöggum og
sumum all hættulegum upphlaupum,
sem K. R. náði.
Sókn Vals varð ekki eins árangursrík
og við hefði mátt búast. Og má þá ef
til vill að einhverju leyti kenna með-
vindinum um. Spyrnur urðu flestar
of langar, svo að framherjarnir áttu
bágt með að fylgja þeim eftir. Mark
Vals gerði Sveinn Helgason á 42. mín.
leiksins, með föstu skoti af löngu færi.
Er síðari hálfleikurinn hófst hafðd
vindinn lægt, svo að nærri var lygnt.
Þessi hálfleikur var strax frá byrjun
betur leikinn, en hinn fyrri. Öryggi
í leik var mun meira hjá báðum liðum,
og ekki bar eins á óþarfa fljótfærnis-
brellum. Valsliðið sýndi þó mun heil-
steyptari leik og var í meiri sókn allan
hálfleikinn. Þótt ekkert mark hafi ver-
ið skorað í þessum hálfleik var K. R.
markið oft í all verulegri hættu, allt
fram yfir miðjan hálfleik. K. R. liðið
náði hinsvegar ekki eins samstæðum
samleik. Upphlaup þess voru þó sneggri,
en framherjunum tókst ekki að notfæra
sér þau, svo árangur yrði af.
Víkingur K. R. 1:0
Við markaval kom það í hlut K. R. að
leika undan vindi, því nokkur vindur
var og stóð hann upp á annað markið.
Fyrri hálfleikinn voru K. R.-ingarnir i
lieldur meiri sókn, en náðu aldrei veru-
lega öruggum samleik, að undanteknum
tyeim tilfellum að knötturinn lenti í
marksúlu Víkings. Vikingar gerðu aft-
ur á móti meiri og fleiri tilraunir til þess
að ná samstæðum leik með lágum jarð-
arspyrnum og tókst þeim nokkrum sinn-
um að ná mjög góðum upphlaupum. Lið
þeirra var nú mun sterkara og heil-
steyptara heldur en á móti Fram. Hvor-
ugu félaganna tókst að skora í þessum
hálfleik.
Er síðari hálfleikurinn hófst hafði
vindurinn snúist töluvert og var nú frek
ar á hlið. Víkingarnir voru ekki í eins
áberandi sókn og K. R. í fyrri hálfleikn-
um. Mark þeirra var um 4 sinnum
opið fyrir ÓI. Hannessyni, er misnotaði
sér tækifærin og skaut framhjá.
Höráur Óskarsson lék miðframherja
síðari hálfleikinn og þótti leikur hans
nokkuð harður á köflum, og varð dómar
inn er nokkrar mín voru eftir af leik,
að dæma á hann vítaspyrnu, sem Gunn-
laugur Lárusson skoraði mark Víkings
mjög örugglega úr.- Yfirleitt var leikur
þessi mjög þófkenndur og harður.
Fram - Valur 3 : 0.
Framliðið náði strax yfirhöndinni í
leiknum, hvað hraða og dugnað snerti,
og var Fram í sókn mestallan leikinn.
Valsliðið náði sér hinsvegar aldrei vel
á strik, og þótt liðið næði nokkrum all-
vel uppbyggðum upphlaupum, tókst
því ekki að skora mark. Fyrsta mark
Fram gerði Rikharð er 30 min. voru af
leik, eftir að hafa leikið all vel á Haf-
stein Guðmundsson, sem lék miðfram-
vörð fyrri hluta leiksins. Annað mark
Ellert Sölvason, Val. Fáir eru þeir
knattspyrnumenn vorir, sem hafa far-
ið jafn dáðir aldursflokk úr aldurs-
flokk og Lolli í Val. Ellert er einnig
einn af þeim fáu knattspyrnumönnum,
sem hafa leikið í þvi nær öllum stöð-
um á vellinum, án þess þó að glata
snefil af hylli sinni. En stærstu og
beztu leiki sína hefur hann leikið sem
vinstri útframherji. Með hinni góðu,
jöfnu og Öruggu frammistöðu sinni i
þessari stöðu, hefur hann hin síðari ár
tryggt sér þann sess í öllum þeim úr-
valsliðum, er valin hafa verið hin
síðari ár. Ellert var í landsliði ís-
lendinga bæði á móti Dönum og Norð-
mönnum, og þótti leikur hans í báðum
landsleikjunum hinn snjallasti að
vanda. Norðmennirnir töldu Ellert
jjriðja bezta leikmann islenzka lands-
liðsins í landsleiknum Noregur—Island
Fram skoraði Magnús Ágústsson á sið-
ustu mínútu hálfleiksins. Skotið var
frekar laust og hefði Hermann átt að
geta varið. Þriðja mark Fram var skorað
á síðustu mínútum leiksins. Knötturinn
rann óhindraður upp vinstri jaðar vall-
arins, og gerði enginn leikmaður sér far
um að ná honum, — eflaust reiknað
hann á leið útaf, þar til Ríkharður tekur
rögg á sig og hleypur á eftir honum, og
nær honum við endamörk vallarins og
gefur fallega fyrir Valsmarkið. Þar kem-
ur svo Þórhallur Iíinarsson brunandi
inn að markinu, og nær knettinum og
hleypur með hann í mark Vals.