Íþróttablaðið - 01.04.1989, Page 73
„EYJAPEYJAR
ERU „SPES“
— Bjarnólfur
Lárusson, 13 ára
Eyjapeyji og einn
efnilegasti
íþróttamaður
Eyjanna lætur
móðan mása.
Texti: Þorsteinn Gunnarsson
Myndir: Ómar Garðarsson
„Við söfnum lundapysjum í ágúst,
spröngum á sumrin, vinnum í fiski á
sumrin, förum ælandi og spúandi
með Herjólfi í allar keppnisferðir,
skemmtum okkur á þjóðhátíðinni,
kippum okkur ekki upp við fárviðri
og búum við eldfjöll sem gætu bara
gosið allt í einu. Við eigum Ásgeir
Sigurvinsson, við erum Eyjapeyjar
og við erum „spes", það finnst mér.
Eigum bara að vera sjálfstæðir. Eig-
um allt, nema kannski ekki nógu gott
fótboltalið. En við erum stoltir Eyja-
peyjar, stoltir af eyjunni okkar fögru,
nema kannski gúanóreyknum, það
er nú meiri fílan. Þá vantar okkur
löggustöð, það var kveikt í henni í
haust og núna þarf að senda alla
glæpona í fangelsi í Reykjavík."
Sá sem mælir þessi orð heitir
Bjarnólfur Lárusson, 13 ára Eyjapeyi,
Þórari og einn efnilegasti íþróttamað-
ur Eyjanna. Andlegar eða líkamlegar
íþróttir — hann er framarlega í flokki
á öllum vígstöðvum. Knattspyrna,
handknattleikur, frjálsar íþróttir eða
skák. Það er alveg sama hvað hann
tekur sér fyrir hendur, hann er
íþróttamaður af Guðs náð. Svo á
hann líka kærustu.
Nýjan dall
„Ég skil ekkert í þessum krökkum í
Reykjavík að vera að væla yfir því að
koma til Eyja til að spila í handbolta
eða fótbolta, kannski einu sinni á ári.
Við förum svona tíu til fimmtán sinn-
um á ári í keppnisferðalög upp á land
og förum þá með Herjólfi til Þorláks-
hafnar og megum þakka fyrir ef við
fáum einhvern tímann að fljúga.
Fæstir okkar eru sjóhraustir, allir æl-
andi og spúandi sem er ekki sérlega
heppilegt fyrir mikilvæga leiki. Ann-
ars er þessi dallur að hrynja, eða það
segir pabbi og hann ætti að vita það
því hann er stýrimaður á Herjólfi. Ég
vona bara að dallurinn hrynji, þá fá-
um við kannski að fljúga eða fáum
73