Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1995, Side 26

Íþróttablaðið - 01.08.1995, Side 26
ULTIMAX S;aöar •^VxiNS ULTIMAX l’KEMIER LEACUE Texti: Þorgrímur Þráinsson Myndir: Pjetur Sigurðsson o.fl. Þótt margir séu þeirrar skoðunar að SKAGAMENN séu búnir að eyði- leggja íslandsmótið í knattspyrnu (l.deild) með góðri frammistöðu og nokkuð öruggir með að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð er ÍÞRÓTTABLAÐIÐ á því að forskot ÍA muni minnka þegar líður á mótið. ÍA hefur reyndar alla burði til að auka enn við forskotið vegna þess að í liðinu er valinn maður í hverju rúmi, ekki síst eftir að Arnar og /Bjarki Gunnlaugssynir ákváðu að slást í hópinn, en það er eitthvað sem segir að KR og Keflavík muni narta duglega í hælana á íslandsmeistur- unum. Barátta og leikgleði Vals gegn ÍA á dögunum virtist koma leik- mönnum ÍA í opna skjöldu, það fór í pirrurnar á þeim og þeir náðu engan veginn að leika eins og íslandsmeist- urum sæmir. Kannski má segja að versti andstæðingur IA séu leik- mennirnir sjálfir ef þeir halda að þeir geti gengið yfir andstæðingana án þess að hafa fyrir þvf. Þótt staðan sé dökk hjá Val, Fram og FH má reikna með að fallbaráttan muni standa á milli allra liða nema ÍA, KR og Keflavíkur. Valur og Fram hafa verið á uppleið í síðustu leikjum þóttValsmenn hafa verið lánlausiren leikur liðsins er mun betri en í upp- hafi móts. Frammarar geta mun meira en þeir hafa sýnt til þessa og það lið, sem leggur IA að velli, ætti ekki að vera í fallbaráttu. Leikur FH hefur hrunið í sumar og þótt Breiða- blik, ÍBV, Grindavík og Leiftur „líti betur út" í augnablikinu en þrjú fyrr- nefnd lið verður slagurinn á botnin- um líklega mikill undir hið síðasta. Hver veit nema síðasti leikurinn f deildinni, milli Fram og Vals, skeri úr

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.