Íþróttablaðið - 01.08.1995, Side 3
Ritstióraspjal I
Getur JÓN ARNAR MAGNÚSSON tugþrautarkappi sett heims-
met? Þetta er spurning sem er vert að velta fyrir sér í Ijósi þeirra
ummæla sem Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns, lætur hafa eftir sér um
hæfileika Jóns Arnars. Flestir, sem hafa fylgst með í heimi frjáls-
íþróttanna, vita hvað býr í kappanum og í kjölfar þess, að búið er að
beisla klárinn og farið að undirbúa hann í fullri alvöru, getur ýmis-
legt gerst í framtíðinni. Vissulega er viturlegast að hafa báða fætur á
jörðinni og búa ekki til væntingar sem erfitt er að standa undir en þó
er alltaf gaman að velta fyrir sér hugsanlegum möguleikum!! Ef Jón
Arnar og Gísli ná því besta fram í Jóni og hann „hittir á góðan" dag,
eins og sagt er, er ekki lokum fyrir það skotið að hann skríði yfir
9000 stig í tugþraut eftir 2-3 ár. Líklegt má telja að fleiri tugþrautar-
menn en Jón Arnar eigi áþekka möguleika á að fara yfir 9000 stiga
múrinn og því er það skylda þeirra, sem að málinu koma, að greiða
götu Jóns Arnars á næstu árum þannig að hann geti helgað sig
íþróttinni óskiptur og notið fullrar aðstoðar og leiðsagnar þjálfara
síns. Það er óferjandi að horfa upp á frábær efni koðna niður á
íslandi, ár eftir ár, eingöngu vegna þess að skilningur á því sem þarf
til að komast í fremstu röð er takmarkaður. Það er erfiðleikum
bundið að fá fyrirtæki til að fjárfesta í „hugsanlegum" árangri
íþróttamanna en Ólympíunefnd íslands og Frjálsíþróttasambandið
hafa staðið sig frábærlega að undanförnu við að greiða götu þeirra
sem keppa væntanlega fyrir íslands hönd á Ólympíuleikunum á
næsta ári.
Jón Arnar er ekki eini íslendingurinn sem á að geta gert góða hluti
á HM í Svíþjóð því Pétur Guðmundsson og Vésteinn Hafsteinsson
hafa alla burði til að komast á verðlaunapall takist þeim vel upp,
andlega sem líkamlega. Það eru margir spennandi hlutir að gerast í
heimi frjálsíþrótta á Islandi en athygli almennings mun væntanlega
að mestu beinast að tugþrautinni næstu árin. Þá eigum við fjölda
stúlkna sem hafa alla burði til að komast í fremstu röð og nægir að
nefna Völu Flosadóttur og Sunnu Gestsdóttur svo ekki sé minnst á
Mörthu Ernstdóttur og Guðrúnu Arnardóttur.
Þorgrfmur
Þráinsson ritstjóri
Hafsteinn Viðar
auglýsingastjóri
—
4. tbl. 1995
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þorgrímur Þráinsson
Beinn sími ritstjóra:
515-5636
Ljósmyndarar: Gunnar
Gunnarsson, Hreinn
Hreinsson og Bragi Þór
Jósefsson
Skrifstofa ritstjórnar:
Seljavegur 2.
Sími: 515-5500
Aðalritstjóri:
Steinar J. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Áskriftargjald kr. 1.293,00
(1/2 ár) ef greitt er með
greiðslukorti en annars kr.
1.437,00.
Hvert eintak í áskrift
kr. 431,00 ef greitt er með
greiðslukorti en annars kr.
479,00.
Hvert eintak í lausasölu
kr. 599,00.
Áskriftarsími: 515-5555
Útgefandi: Fróði hf.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Seljavegur 2, sími 515-5500
Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir.
G. Ben. - Edda prentstofa hf.
3