Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 37
Ólafur og Tryggur ræða málin!
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON hefur leikið eins
og engiil það sem af er sumri, skorað
grimmt og stefnir að því að hampa
ÍSLANDSBIKARNUM, sem fyrirliði ÍA, í
september.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ ræðir við ólaf um
þjálfun, landsliðið, velgengni ÍA, íslenska
knattspyrnumenn og flest sem lýtur að
knattspyrnu.
að þótti ekki flott að vera skotin í Óla Þórðar í sex ára
bekk," segir Friðmey Barkardóttir, eiginkona Ólafs.
„Ég var víst svo mikiíl villingur," bætir knattspyrnuk-
appinn brosandi við. „Við erum búin að vera saman í
fimmtán ár, frá fimmtán ára aldri, og vorum saman í
bekk alla skólagönguna. Það var hún
sem átti frumkvæðið að sambandi
okkur á sínum tíma."
„Já, hann er rómantískur," svarar
Friðmey aðspurð, „ég myndi segja að
hann væri töluvert rómantískur."
Undir lok viðtalsins sagði Óli að
hann slappaði best af frá fótboltanum
í fangi eiginkonunnar. Þá vitum við
það!
Óli Þórðar var á blóðþynningar-
lyfjum sökum sinaskeiðabólgu í fæt-
inum þegar ÍÞRÓTTABLAÐIÐ tók
hús á honum um miðjan júlí, daginn
fyrir deildarleik gegn Val. Hann var
enn með súran svip eftir tap gegn
Fram í Mjólkurbikarkeppninni og
sagðist eiga erfitt með að sætta sig við
tap, sérstaklega þegar það er óverð-
skuldað. Hundurinn Tryggur, árs-
gamall Labrador — svartur og tigna-
rlegur, var í indíánaleik í garðinum
með krökkunum, Valgeiri 9 ára, Ester
Maríu, 7 ára og Vigdísi 4 ára. „ Það er
fastur liður í hádeginu að slást við
hundinn úti í garði," segir Óli, „ það
heldur mér og honum í ágætis æf-
ingu."
Skagamenn hafa nánast verið
ósigrandi síðastliðin þrjú árog stefnir
allt í að liðið verði íslandsmeistari
fjórða árið í röð. Liðið hefur leikið
eins og sannur íslandsmeistari og
hefur þegar náð 9 stiga forskoti á
önnur lið ídeildinni eftir átta umferð-
ir. Hverju skyldi þetta sæta?
„Við höfum verið að nota sömu
taktíkina, 4-4-2, síðan við unnum
Víking 10:1 árið 1993. Þóttviðhöfum
verið með þrjá ólíka þjálfara síðustu
þrjú árin hafa þeir allir haldið sig við
þessa taktík þótt vissar áherslur hafi
verið ólíkar. í fyrra áttu fimm leik-
menn í meiðsíum nánast allt sumarið
en núna höfum við nánast sloppið
við slík áföll. Ég vil meina að erfitt
prógram hjá landsliðinu fyrir keppn-
istímabilið í fyrra eigi hvað stærstan
þátt í meiðslum leikmanna þá. Við
fórum f erfiðar ferðir tiI japan, Brasil-
íu, Bandaríkjanna og Frakklands og
þess á milli vorum við að spila í Litlu
bikarkeppninni þannig að álagið á
okkur var gríðarlegt."
— Finnst þér liðið skorta eitt-
hvað?
„Við þyrftum að hafa mann f liðinu
sem væri nokkuð öruggur með 12-14
mörk í deildinni. Þótt útlendingurinn
hafi leikið ágætlega hefur hann ekki
skorað nema 2-3 mörk það sem af
er."
— Saknið þið Bibercic?
„Ég vil ekki orða það þannig en
það var voðalega gott að hafa hann
frammi því að hann nýtti dauðafærin
mjög vel. Hann er reyndar ekki að
gera það hjá KR, enda virðist hann
ekki vera í nógu góðu formi. Honum
hættir til að liggja á meltunni á vet-
37