Bókasafnið - mar. 2020, Blaðsíða 3
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 3
Með þessu nýja hefti Bókasafnsins lítur 43. árgangur loksins dagsins ljós. Ný ritnefnd stendur að blaðinu og varð til seint og um síðir,
eftir nokkur áköll og tilraunir til að virkja fólk víða að.
Fráfarandi ritnefnd lét öll af störfum eftir útgáfu síðasta
blaðs og er nýja ritnefndin þess vegna skipuð fólki sem ekki
hefur áður setið í nefndinni en með alls konar reynslu og
koma úr fjölbreyttu starfsumhverfi. Síðbúnu blaði verður
vonandi vel tekið á fordæmalausum tímum.
Ný ritnefnd Bókasafnsins vill kynna fyrir lesendum sínum
fjölbreytt markmið sem kalla mætti ritnefnarstefnu.
Nefndin mótaði hugmyndir sínar um markmið útgáfunnar
á fyrstu fundum sínum. Í fyrsta lagi það markmið að
virkja greinaskrifara úr hverjum landsfjórðungi með styttri
eða lengri greinum um það sem er að gerast í faginu
í heimabyggð. Í öðru lagi stefnir ritnefndin að því að
kalla eftir greinum frá þeim sem starfa á skólasöfnum,
helst allra skólastiga og frá sérsöfnum stofnana og
fyrirtækja, og í þriðja lagi að fá inn greinar um náms- og
rannsóknarverkefni. Í fjórða lagi að birta greinar um kerfi
og tækni upplýsingageirans og í fimmta lagi hvers konar
fréttir af erlendum vettvangi. Flest af þessu er ef til vill
ekkert nýnæmi, eins og það að fá inn greinar um erlenda
viðburði, en félagsmenn Upplýsingar hafa oft skrifað
ferðapistla og miðlað ferskum straumum að utan, frá
ráðstefnum eða fundum sem þeir sóttu á erlendri grund.
Nokkrir fastir þættir eiga sinn sess eins og minningarorð og
fréttaskot en að þessu sinni falla afgreiðslutímar safna út af
óviðráðanlegum ástæðum.
Þessari upptalningu er fyrst og fremst ætlað að gefa mynd
af þeim væntingum og stefnu sem ritnefndin vill hafa
að viðmiði. Ekki er ætlunin að öllu þessu efni verði gerð
skil í einu heldur er um að ræða stefnu sem gengur út
frá því að gefa sem flestum röddum tækifæri til að miðla
lesendum Bókasafnsins efni sem veitir innsýn í dagleg störf
og helst frá öllum landshornum. Markmiðið er að halda
glugganum opnum þannig að félagsmenn Upplýsingar finni
að málgagn þeirra standi undir því að vera bæði fræðilegur
og félagslegur miðill. Rétt er að minna á að félagsmenn
Upplýsingar tengjast í störfum sínum bæði bókasöfnum og
skjalasöfnum landsins, sumir jafnvel báðum. Síðast en ekki
síst skal nefna auglýsendur, en þeir styrkja útgáfuna með
kaupum á birtingu auglýsinga og kynninga, þeirra hlutur er
mikils metinn.
Vettvangur upplýsingafræðinga á Íslandi er víðfemur og
þeim fátt óviðkomandi í nútíma samfélagi. Ritnefndin vill
þess vegna hvetja alla sem vilja miðla efni til lesenda næsta
blaðs, til að setjast nú strax niður og taka til við greinaskrif,
hvort sem er á fræðilegum nótum eða úr daglega starfinu og
hafa samband við ritnefndina fyrr en síðar.
Efni þessa blaðs samanstendur af 14 greinum og pistlum.
Í byrjun koma fjórar greinar um rannsóknir og fræðileg
efnistök eins og um tölfræðilega rannsóknarúttekt á
heimildanotkun afmarkaðs markhóps meistaranema við HÍ,
grein um rannsókn á meðferð fyrirtækja á upplýsingum um
mannauð, grein um rannsókn á viðhofi stjórnmálamanna
til gagnaleka og virkni Persónuverndarlaga og grein um
rannsókn á framtíðarhlutverki almenningsbókasafna.
Fimm greinar koma að austan, norðan og vestan og
markast af staðbundnu efni. Að austan er grein um
nám fólks á Austurlandi (námsrannsókn), að norðan
eru greinar um vinsælan alþjóðlegan leik (“Library
Escape Room“), grein um spilin á borðið, frásögn um
fjarverur (eins konar tölvutengda nærveru) og loks að
vestan er grein um starfsemi í Safnahúsinu á Ísafirði.
Ein minningargrein var send inn að þessu sinni. Að
lokum eru fjórar greinar eða styttri pistlar. Fjallað er um
kynningarátak Sarps (gagnagrunns minjasafna), umfjöllun
um stefnumótun fyrir opið aðgengi að upplýsingum í
íslensku vísindasamfélagi, grein um líflega fjölbreytni
á nútíma almenningsbókasöfnum og loks pistill um
Hvatningarverðlaun bókasafna sem Upplýsing, félag
íslenskra upplýsingafræðinga stendur fyrir og veitti í fyrsta
sinn á árinu. Ritnefndin þakkar öllum höfundum kærlega
fyrir framlag þeirra og þolinmæði vegna þeirrar biðar sem
varð á útgáfu blaðsins og uppsetjara og prentsmiðju er
þakkað frábært samstarf.
Frá ritnefnd – Ágæti lesandi!