Bókasafnið - mar. 2020, Blaðsíða 17
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 17
Aðstæður fólks eru mismunandi á svo margan hátt og fróðlegt að bera saman aðgengi að menntun eftir landshlutum. Þegar kemur að
menntunarmöguleikum á háskólastigi hallar verulega á
hluta landsbyggðarinnar hvað varðar aðgengi að námi. Á
Austurlandi búa um 10 þúsund manns og þar er enginn
háskóli. Fólk sem hyggur á háskólanám stendur frammi
fyrir því að þurfa að flytja eða velja sér nám sem hægt er að
taka í fjarnámi. En það námsframboð er takmarkað. Með
aukinni tækni og almennri tölvunotkun hefur landslagið
breyst mikið á skömmum tíma. Möguleikarnir aukast og
aðgengi að menntun verður betra með hverju árinu. Ég tók
allt mitt háskólanám í fjarnámi. Fyrst grunnskólakennarann
frá árunum 2004 – 2008 og tíu árum seinna bætti ég við
MIS gráðu í upplýsingafræði. Þannig að ég þekki vel
umhverfi fjarnema eins og það er í dag.
Oft verð ég vör við umræðu um nám á háskólastigi. Fólk
ræðir saman um möguleika til náms, upplýsingamiðlun og
hvar best sé að afla upplýsinga. Ég hef heyrt á tali fólks að
mjög marga langar í nám en hafa ekki látið verða af því að
byrja. Það var kveikjan að þessu viðfangsefni í lokaverkefni
mínu í upplýsingafræði. Hvernig er upplýsingamiðlun
háttað varðandi fjarnám og námsframboð á háskólastigi?
Hvar og hvernig aflar fólk sér upplýsinga um það sem í
boði er? Einnig vildi ég skoða nánar hvað veldur því að
margir fresta því að byrja í námi, jafnvel árum saman. Það
er ekki bara mikilvægt fyrir tilvonandi nemendur að fá
góðar upplýsingar um skólann og námsframboð, heldur
hlýtur að vera mikilvægt fyrir starfsfólk háskólanna að
vita hver upplifun fólks er, þ.e. tilvonandi nemenda af
upplýsingamiðlun þeirra. Hvaða upplýsingum er verið
að leita eftir þegar verið er að skoða hvaða nám er í boði
í fjarkennslu og hvernig framkvæmd þess er. Tekin voru
eigindleg viðtöl við átta konur sem allar hafa hug á að
hefja nám í náinni framtíð. Sex þeirra eru með grunnpróf á
háskólastigi og ætla að fara í meistaranám, ýmist að byggja
ofan á sína menntun eða söðla um og læra eitthvað nýtt.
Hinar tvær ætla að hefja grunnnám en þær hafa báðar lokið
inntökuskilyrðum í háskóla. Rannsóknarspurningarnar voru
þessar:
• Hvaða hvata upplifir fólk á Austurlandi til að bæta við
sig háskólanámi og hvað veldur því að einstaklingar sem
áhuga hafa draga að hefja það?
• Hvernig aflar fólk sér upplýsinga um háskólanám og
hvernig er hægt að koma betur til móts við það með
upplýsingagjöf?
Niðurstöður voru í stórum dráttum þessar:
Margt gott er verið að gera, til dæmis hvað varðar fjarnám
á háskólastigi, en bæta má upplýsingamiðlun varðandi
námsframboð og framkvæmd náms samkvæmt niðurstöðum
þessarar rannsóknar. Viðmælendur kalla eftir mannlega
þættinum í þessu sambandi, það nær betur til fólks sem
langar að hefja nám. Heimasíður með upplýsingum um
námsframboð eru ágætar sem liður í upplýsingamiðlun en
veita ekki nægjanlegar upplýsingar að þeirra mati. Margir
nefndu kynningar og fundi svo hægt væri að spyrja nánar
út í upplýsingarnar um nám og framkvæmd, til dæmis
hvað varðar námslotur og kostnað. Allir viðmælendur
voru sammála um að ekki væru nægar upplýsingar um
staðlotur, hversu lengi þær væru og vildu fá að vita meira
um vinnuálag í náminu. Þar sem fjarnemar eru oftar en
ekki í vinnu og með heimili kölluðu viðmælendur eftir betri
upplýsingum um staðlotur og betra skipulag á þeim.
Þrátt fyrir miklar tækniframfarir á liðnum árum og lifandi
stöðuga þróun, telja viðmælendur í þessari rannsókn
að meira þurfi til að styðja við það fólk sem langar í
háskólanám en er búsett fjarri skóla. Stuðningur er
mikilvægur og betri upplýsingagjöf nauðsynleg. Borð, stóll,
net og kaffi er ekki nóg fyrir alla.
Ég sé marga spennandi rannsóknarmöguleika í framtíðinni
hvað varðar bætt aðgengi að háskólanámi fyrir fólk
sem býr fjarri háskóla. Má þar meðal annars nefna að í
starfslýsingu fyrir háskólasetur, sem er í bígerð að koma
upp á Austurlandi, stóð að vinna þurfi þarfagreiningu fyrir
stofnanir og atvinnulífið og svo stuðla að bættu aðgengi
að námi. Þarna eru sannarlega þættir sem fróðlegt yrði að
rannsaka nánar í framtíðinni. Einnig má nefna að aðgengi
að háskólanámi hefur aukist mikið með tækniframförum
í gegnum árin. Fjórða iðnbyltingin er hugtak sem vísar til
tækniframfara undanfarinna ára. Eitt af hugtökunum sem
talað er um í því sambandi er internet hlutanna (e. Internet
of Things) sem tengt er við hluti sem eru nettengdir og geta
sent og safnað gögnum. Miklar breytingar sem byggja á
stafrænum grunni hafa átt sér stað á undanförnum árum og
ekki sér fyrir endann á þeim.
Margt er tengt menntun og menntunarmöguleikum eins
og nýtt tilraunaverkefni frá Háskólanum á Akureyri. Þar
er verið að prufa nýja tækni. Þetta eru tölvur á hjólum,
sem nefndar hafa verið fjarverur sem eru til staðar fyrir þá
sem ekki eru á staðnum en vilja vera með í kennslustund.
Fjarnemar og kennarar geta notað fjarveru til þess að „sitja“
í kennslustund og tekið þátt í starfi skólans þrátt fyrir að
vera ekki á staðnum. Það er von mín að fleiri rannsóknir
verði gerðar í framtíðinni um aðgengi að námi fyrir fólk af
landsbyggðinni. Menntun er stór þáttur þegar kemur að
eflingu byggðar og ég tel að þetta sé leiðin að sterkri búsetu
á landsbyggðinni, að aðgengi að menntun sé gott, þar sem
hennar er þörf.
Nægir borð, stóll, net og kaffi?
Guðrún Gunnarsdóttir Michelsen Stærðfræðikennari og bókasafns- og upplýsinga-
fræðingur við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.