Bókasafnið - mar. 2020, Side 18
18 Bókasafnið
Í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki eru nemendur duglegir að nota bóka- safnið til að vinna hópverkefni og sinna heimanámi. Á safninu er lögð
áhersla á að þetta sé þeirra vinnusvæði og þarna líði þeim
vel til að sinna sínu námi.
Á opnum dögum nú í mars [2019] þar sem hefðbundið
skólastarf var brotið upp með skemmtilegum nýjungum
ákvað bókasafnsfræðingurinn að bjóða uppá öðruvísi
bókasafnsdaga, svo kallað Escape Room, en vinsældir þeirra
hafa aukist um allan heim undanfarin ár. Í Escape Room
(flóttaherbergi) eru þátttakendur lokaðir inni í herbergi til
að taka þátt í ævintýraleik. Leikurinn snýst um að komast
út á sem stystum tíma. Til að komast út þarf að leysa
krefjandi þrautir, leysa talnalása út frá vísbendingum, finna
týnda lykla og að lokum komast að lokaþrautinni sem er
lykilinn út úr herberginu.
Í Escape Room er lögð áhersla á ákveðið þema sem skapar
stemmningu fyrir þátttakendur og þeir upplifa herbergið
sem hluta af ákveðinni sögu meðan þeir taka þátt í leiknum.
Leikurinn byggir á að hópurinn vinni vel saman, sýni
þrautseigju og lausnamiðaða hugsun.
Þar sem um leik á skólatíma var að ræða var lögð áhersla
á fræðslugildi sem tengdist sögu Skagafjarðar. Sögusviðið
var Sauðárkrókur fyrir rúmlega 100 árum en þar starfaði
Jón Ósmann sem ferjumaður og ferjaði fólk og vistir yfir
Vesturós Héraðsvatna í Skagafirði áður en brúað var. Nem-
endur þurftu að rifja upp hvað ferjumaðurinn hét, en stór
og myndarleg stytta er af honum við Ósinn og því er hann
kunnugur öllum þeim sem fara um svæðið. Einnig þurftu
þau að finna bók sem vísaði þeim á ártalið sem hann var
fæddur til að opna lás að tösku og svona tók hver þrautin
við af annarri þangað til lokaþrautin var leyst.
Þetta tókst vel og nemendur höfðu gaman af og lærðu um
sögu síns héraðs í leiðinni. Það er gaman fyrir nemendur
og starfsfólk á bókasafni að brjóta upp hefðbundna daga og
læra í gegnum leik.
Library Escape Room
Hanna Þórey Guðmundsdóttir Forstöðumaður bókasafns Verkmenntaskólans á Akureyri