Bókasafnið - mar. 2020, Side 21
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 21
Einn stærsti kostur Háskólans á Akureyri er sveigjanlegt nám. Það þýðir í raun nám án kröfu um daglega viðveru á háskólasvæðinu. Því geta
nemendur stundað námið óháð búsetu en mæta síðan
í sérstakar námslotur þar sem megináhersla er lögð á
verkefnavinnu og umræður. Allir fylgja sömu námskránni
og öll verkefni og verkefnaskil eru rafræn. Við miðlun
námsefnis eru notaðar fjölbreyttar og nútímalegar kennslu-
og námsaðferðir. Um 20 ára skeið hefur HA lagt áherslu á
að vera leiðandi þegar kemur að
sveigjanlegu námi og náði enn
einum áfanganum þegar fyrsta
fjarkennsluvélmennið mætti á
svæðið í október 2017. Þetta
vélmenni fékk nafnið Krista og
er af gerðinni BeamPro. Hún var
þó mjög stutt eina vélmennið
á staðnum því í dag hafa bæst
við þau Auður Ársól, Eva,
Markus, Marvin og Sæborg og
kallast í daglegu tali fjærverur.
Fjærverurnar gera nemendum
í sveigjanlegu námi kleift að
fara um skólabygginguna innan
um samnemendur og starfsfólk
skólans og eiga þar samskipti
og taka þátt í umræðum líðandi
stundar. Þessi möguleiki er
mikill kostur fyrir þá sem geta
ómögulega mætt í námslotur
sökum staðsetningar eða veikinda. Það er gerð krafa að
nemendur mæti í námslotur og því þarf að vera góð ástæða
fyrir því að nemendur komist ekki. Það er í höndum
umsjónarkennara að ákveða hvort að fjærverur séu notaðar
fyrir nemendur og þá þarf nemandinn að fara á örstutt
námskeið í því hvernig stýra á vélmennunum.
Við hjá Bókasafni og upplýsingaþjónustu HA höfum
töluvert nýtt okkur þessa tækni. Við sjáum um kennslu
í upplýsingalæsi í flestum deildum skólans og höfum
nokkrum sinnum haft nemanda í fjærveru í tíma hjá
okkur. Þessir fjarverandi nemendur eru þá allt í einu jafn
nærverandi og staðarnemarnir og geta tekið virkan þátt í
umræðum og verkefnavinnu. Svo er alltaf jafn gaman að sjá
fjærveruna trilla á eftir samnemendum í kaffipásu.
Einnig notum við fjærverur á fundum og hefur það
tekist vel. Helsti munurinn á því að mæta í fjærveru ólíkt
venjulegum fjarfundarbúnaði er að þú ert ekki lengur
bara fluga á vegg sem fylgist grannt með því sem gerist á
fundinum heldur nú orðinn einn af hinum. Þú situr við
sama borð og getur snúið þér í átt að þeim sem eru með
orðið hverju sinni. Það þarf þó að hafa í huga að allir tali
ekki í einu svo hljóðið berist nægilega vel til fjærverunnar.
Eitt sinn buðum við samstarfskonu á Ísafirði að taka þátt í
teklúbbi hérna í HA. Hún drakk
sitt te og við okkar en næstum,
bara næstum fundum við lyktina
af villijurtateinu hennar.
Mest höfum við þó notfært
okkur fjærveru á reglulegum
starfsmannafundum Bókasafns
og upplýsingaþjónustu HA. Þá
fáum við fjærveruna Auði Ársól
til að leysa okkur af á meðan.
Starfsmenn bókasafnsins loka
sig þá af inni í fundarherbergi
og Auður Ársól stendur vaktina
í afgreiðslu og er augu okkar
og eyru meðan á fundinum
stendur. Við fylgjumst svo með
því sem fjærveran sér og heyrir
í spjaldtölvu og getum hlaupið
fram ef notandi þarf aðstoð.
Á meðan á fundinum stendur
þurfum við því ekki að loka bókasafninu og afgreiðslan
gengur sinn vanagang. Skemmtilegt er líka að sjá hversu
vanir nemendur skólans eru orðnir fjærverunum. Enginn
kippir sér lengur upp við að sjá Auði Ársól í afgreiðslunni
og beina fyrirspurnum sínum óhikað til okkar í gegnum
skjáinn.
Fjærverur bjóða upp á ýmsa möguleika fyrir bókasöfn
landsins. Við sjáum t.d. fyrir okkur að langveik börn sem
missa mikið úr skóla gætu nýtt sér fjærverur til að mæta á
sögustundir á skólabókasafninu og halda þannig tengslin
við samnemendur. Einnig gefast tækifæri fyrir aldraða og
hreyfihamlaða sem eiga erfitt með að komast heiman frá að
nota fjærverur til að skoða safnkost almenningsbókasafna
og fá aðstoð við val á lesefni. Í kjölfarið væri svo hægt að
Fjærverur skapa nærveru
Pia Sigurlína Viinikka lauk BA prófi frá Háskólanum í Lundi 1994, starfsréttindanámi í
bókasafns- og upplýsingafræði 2002 og er nú í MA námi í upplýsingafræði við HÍ. Hún
starfar á Bókasafni og upplýsingaþjónustu Háskólans á Akureyri.
Sigríður Ásta Björnsdóttir lauk B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands 2009 með íslensku
sem aðalkjörsvið og íþróttir sem aukakjörsvið. Íþróttirnar lærði hún við Høgskolen i
Telemark í Noregi veturinn 2008. Vorið 2017 útskrifaðist Sigríður með MLIS gráðu í
bókasafns- og upplýsingafræði og starfar nú á Bókasafni og upplýsingaþjónustu Háskólans á
Akureyri.