Bókasafnið - Mar 2020, Page 22
22 Bókasafnið
senda þeim bækur heim. Síðast en ekki síst geta bókasöfn
aukið framboð fyrirlestra og námskeiða sem alla jafna eru
einungis kennd á ákveðnu svæði. Með því að fá fyrirlesara í
fjærveru lækkar kostnaðurinn til muna þar sem fargjöld og
gisting eru óþarfi og sparar tíma og fyrirhöfn fyrir þann sem
heldur námskeiðið.
Eitt gott dæmi um notagildi fjærveranna er þegar starfs-
maður HA fór í heimsókn í framhaldsskóla á Akureyri og
leyfði þar nemendum með sérþarfir að prófa fjærverurnar.
Einn nemandinn sem er á einhverfurófi keyrði fjærveruna
um ganga HA og spjallaði þar við fólk sem á vegi hans
varð. Þessi nemandi er ekki vanur að láta til sín taka í marg-
menni, en þarna með hjálp tækninnar gat hann jafnvel rætt
við erlenda ráðstefnugesti á ensku.
Fjærverur eru að okkar mati skemmtileg leið til að bæta
samskipti. Þær spara tíma og peninga sem myndu fara í
ferðakostnað að öllu jöfnu og eru um leið umhverfisvænn
kostur. Hér er líka komin leið til að auka samskipti milli
landshluta, landa og jafnvel heimsálfa. Því ekki að nýta sér
fjærveru til að skapa nærveru?
Þekkingarveita í allra þágu
• Hvar.is
• Rafhlaðan, Skemman og Opin vísindi
• Ritstjórn bókfræðigrunns Gegnis
• Handbók skrásetjara Gegnis
• Lykilskrá – íslensk efnisorð og mannanöfn
• Íslensk útgáfuskrá – þjóðbókaskrá
• Landsáskrift að Vef-Dewey
• Millisafnalán
• Ráðgjöf og samstarf
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
er forystusafn íslenskra bókasafna og skal stuðla að samstarfi,
samræmingu og þróun starfshátta þeirra og veita þeim faglega ráðgjöf.