Bókasafnið - mar. 2020, Side 25
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 25
Valgerður Höskuldsdóttir fæddist í Reykjavík 5. maí 1935. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi eftir stutt veikindi 27. september 2018.
Hún gekk í Miðbæjarskólann og fór svo í Menntaskólann
í Reykjavík og lauk stúdentsprófi þaðan 1954. Þegar
dæturnar voru að komast á legg hóf Valgerður nám við
Háskóla Íslands og lauk BA námi í bókasafnsfræði og
sálfræði árið 1975. Hún varð löggiltur bókasafnsfræðingur
1984. Síðar bætti hún við 30 eininga námi í þjóðfræði 1986.
Árið 1959 giftist hún eftirlifandi eiginmanni
sínum, Úlfari Helgasyni tannlækni, f.
2.4. 1930. Þau eignuðust þrjár dætur
sem eru: Sigrún, f. 7.10. 1959, hún á
soninn Atla Vassili Roman, f. 5.11.
2000, Þórdís, f. 27.4. 1961, maki
hennar er Ragnar Hafstað og
þau eiga soninn Völund, f. 6.
11. 1994, og Bergþóra, f. 16.12.
1967, maki hennar er Christian
Bourdel, f. 1968, þau eiga
soninn Viktor, f. 2.8. 2007, og
þau eru búsett í Frakklandi.
Eftir stúdentspróf vann hún
hjá innflutningsfyrirtækinu
Ellingsen. Hún vann sem
bókasafnsfræðingur á Geðdeild
Landsspítalans 1976-77 og hlutastarf
á Geðdeild Barnaspítala Hringsins 1977-
84. Hún var stundakennari í sálfræði við
Þroskaþjálfaskólann 1976-77.
Hún vann á bókasafni Menntaskólans við Hamrahlíð frá
árinu 1978 og var forstöðumaður bókasafnsins frá 1982 þar
til hún lét af störfum 2001.
Hún var virk í félagsstörfum er tengdust faginu og sat
í stjórn Félags bókasafnsfræðinga 1977-79 og í stjórn
Bókavarðafélags Íslends 1985-87.
Valgerður var einstaklega
fjölfróð kona. Hún las mikið
og hafði sérstaklega mikinn
áhuga á sagnfræði, þjóðfræði
og sögulegum bókmenntum. Einnig hlustaði hún mikið
á tónlist og sótti tónlistarviðburði hér heima og á ferðum
sínum erlendis. Valgerður var einnig mjög handlagin og
prjónaði mikið og saumaði út fjölda listaverka. Hún tók upp
gömul mynstur á Þjóðminjasafninu og saumaði eftir þeim
veggteppi, myndir og dúka af mikilli list.
Hún sinnti ágætlega endurmenntun alla tíð og var
fljót að tileinka sér nýjungar í starfi. Hún lærði
fljótt á tölvur og tölvuvæddi bókasafn
MH og skráði bækur bókasafnsins í
bókasafnskerfi þegar þau komu til
sögunnar. Einnig náði hún snemma
góðum tökum á möguleikum
internetsins og samskiptamiðla
og nýtti sér það bæði í starfi og
einkalífi.
Undirrituð vann með Valgerði
á bókasafni MH í nær 17 ár
og áttum við gott og farsælt
samstarf. Hún var með gott
skopskyn og kom oft með
skemmtileg tilsvör sem hittu í
mark.
Hún hafði gaman af því að umgangast
ungt fólk og naut þess að hafa nemendur
í kringum sig. Einnig fann maður þegar
barnabörnin komu til sögunnar hvað þau skipuðu
stóran sess í lífi hannar.
Ég kveð Valgerði með virðingu og þakklæti og sendi
fjölskyldu hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Útför hennar fór fram í kyrrþey.
Minning
Valgerður Höskuldsdóttir 5. maí 1935 - 27. september 2018
Ásdís Hafstað – Bókasafni Menntaskólans við Hamrahlíð.