Bókasafnið - mar. 2020, Side 26
26 Bókasafnið
Líkt og einhverjir lesenda kunna að hafa orðið varir við, stendur nú yfir kynningarátakið Sarpur – munir, myndir, minningar. Markmið þess er
að auðvelda landsmönnum að tengja heitið Sarpur
við menningarsögulega gagnasafnið Sarp og sarpur.is.
Herferðin hófst síðla janúar 2019.
Í stuttu máli sagt er Sarpur safnkostur um 50 mismunandi
safna og stofnana með fjölbreyttum aðfangategundum. Frá
miðju ári 2013 hafa landsmenn átt þess kost að skoða muni,
ljósmyndir, listaverk, fornleifar, þjóðhætti, örnefnalýsingar
og fleiri aðföng úr Sarpi á vefnum sarpur.is. Fyrir þann tíma
var Sarpur eingöngu aðgengilegur safnafólki.
Fljótlega eftir að Sarpur var opnaður almenningi varð þess
vart að margir tengdu heitið Sarpur meira við vefupptöku-
safn Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) en við safnkost Sarpssafna.
Á árinu 2017 var gengið frá samningi við RÚV um að
stofnunin léti af notkun vörumerkisins Sarpur, en Rekstrar-
félag Sarps er skráður eigandi þess hjá Einkaleyfastofu. Fé-
lagið er jafnframt eigandi menningarsögulega gagnasafnsins
Sarps en Landskerfi bókasafna sér um reksturinn sam-
kvæmt þjónustusamningi á milli aðila. Þegar samkomu-
lag við RÚV var í höfn, var kominn grundvöllur fyrir
Rekstrarfélagið til að ráðast í að kynna menningarsögulega
gagnasafnið Sarp fyrir almenningi.
Ákveðið var að leggja áherslu á stærstu aðfangategundirnar
í herferðinni og var leitað til Þórarins Eldjárns um að
semja einkunnarorð fyrir kynninguna. Niðurstaðan varð
slagorðið Munir, myndir, minningar. Guðbjörg Tómasdóttir
hannaði kynningarefni fyrir herferðina þar sem byggt
var á einkunnarorðunum. Hannaðar voru nokkrar gerðir
skjáauglýsinga auk auglýsinga fyrir samfélagsmiðla,
vefborða og veggspjalds.
Haft var að leiðarljósi að reyna að ná til sem flestra lands-
manna og ólíkra aldurshópa og nota til þess fjölbreyttar
kynningarleiðir. Í þeim anda var útbúin fésbókarsíðan
Sarpur.is - munir, myndir, minningar á slóðinni https://www.
facebook.com/sarpur.is/ og er safnafólk hvatt til þess að
láta sér líka við hana. Sameiginleg vefsýning Sarpssafna á
sarpur.is undir yfirskriftinni Æskan á millistríðsárunum var
jafnframt undirbúin undir leiðsögn Völu Gunnarsdóttur
fagstjóra Sarps. Í sýningartexta segir meðal annars: „ Æskan
er mikilvægt æviskeið sem hefur mótandi áhrif á okkur öll.
Söfn landsins varðveita fjölmarga muni, myndir og margvís-
legar heimildir sem tengjast æskunni og sögu barna á mis-
munandi tímum. Með þessari vefsýningu í Sarpi er sjónum
beint að þessum safnkosti frá millistríðsárunum í þeim 50
söfnum sem skrá safneign sína í Sarp og hægt er að skoða á
Sarpur.is. Þetta úrval sem hér birtist er aðeins brot af þeim
gripum sem söfnin varðveita og tengist viðfangsefninu
„Æskan á millistríðsárunum” en þessi sameiginlega sýning
safnanna er einstakur vettvangur til að draga saman tengda
gripi á landsvísu á einn stað.“1
Vefborði kynningarherferðarinnar var birtur á sarpur.is
25. janúar síðastliðinn og markaði það upphaf kynningar-
átaksins. Sama dag birtist fyrsta skjáauglýsingin í sjónvarpi
RÚV. Síðasta skjáauglýsing herferðarinnar mun birtast
landsmönnum 5. mars en alls verða birtingar 32 talsins á
tímabilinu. Um leið og auglýsingunum bregður fyrir á skjám
landsmanna er lesin upp ein af neðangreindum setningum:
• Hvað varðveita söfn á Íslandi? Kíktu á Sarpur.is –
munir, myndir, minningar
• Hvaða listaverk finnur þú í söfnum á Íslandi? Fáðu
innblástur - Sarpur.is – munir, myndir, minningar
• Finnur þú gamlar fjölskyldumyndir eða æskuslóðirnar
á Sarpur.is – munir, myndir, minningar
Sarpur.is – munir, myndir, minningar
Sveinbjörg Sveinsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Landskerfis bókasafna hf. frá árinu
2006 og frá árinu 2013 hefur hún jafnframt verið framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Sarps.
Hún er menntuð sem rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands (CS) og Technische
Hochschule Darmstadt (Dipl. Ing.). Hún er jafnframt vottaður IPMA verkefnastjóri
(B-vottun) og hefur lagt stund á nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.