Bókasafnið - mar. 2020, Blaðsíða 31
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 31
Númer eitt, tvö og þrjú
Mikilvægast er að vefurinn, Facebook og Google business
aðgangurinn séu uppfærð reglulega. Fólk sækir þangað
grunnupplýsingar um t.d. opnunartíma og staðsetningu.
Þetta er ágætlega tímafrekt fyrir lítið bókasafn að sjá um
svo ef þessi þrjú atriði eru ekki í góðu lagi þá skal varast það
að stofna aðgang á nýjum miðlum. Tíminn sem fer í þessa
vinnu er lúmskur en ofan á upplýsingaflæðið þá þurfum við
að vera í stöðugri baráttu við algrímið. Algrímið stjórnar
dreifingu efnisins miðað við vinsældir svo það er eins gott
að leggja metnað í færslurnar.
Regluleg skemmtun sigrar algrímið
Segjum sem svo að þið birtið mynd á Facebook. Algrím
Facebook dreifir efninu fyrst til nokkurra vel valdra fylgj-
enda. Ef fyrstu fylgjendurnir bregðast við með því að setja
þumal, hjarta eða skrifa athugasemd, þá dreifir Facebook
efninu til stærri hóps og svo koll af kolli. Ef færslurnar eru
ekki nógu spennandi (þ.e. ef þær fá lítil viðbrögð) þá setur
algrímið ykkur í skammarkrókinn og dreifir efninu illa.
Þetta þýðir að til að sigrast á algríminu þarf bæði að vera
skemmtilegur og reglulegur – svo það er eins gott að taka
frá þann tíma sem þarf til að sinna miðlunum vel. En hvað
er skemmtilegt? Skoðið tölfræðina til að sjá hvaða færslum
gengur vel og hvaða færslum gengur illa. Hversu margir
fylgjendur eru á miðlunum? Á hvaða hlekki er fólk að
smella og á hvaða tíma dags er best að birta? Fá myndbönd
meiri dreifingu en myndir? Skoðið tölurnar reglulega og
takið stöðuna, þá sjáið þið hvað ykkar fylgjendum þykir
skemmtilegt og hvað ekki.
Lesandi vikunnar er einn af fáum liðum sem birtast á mörgum vígstöðvum
Borgarbókasafnsins, t.d. Facebook, Instagram og á vefnum. Fæst innlegg
henta svona mörgum miðlum.
Gaman er að rýna í tölfræðina. Fylgjendum
finnst líka gaman að sjá bak við tjöldin. Hér
sýnir Borgarbókasafnið fylgjendum sínum hver
áhugamál þeirra eru skv. greiningu Twitter.
Instagram er sniðug leið til að ná til ungs fólks. Hér má sjá #bókafés eða
#bookface frá Borgarbókasafninu sem náði til 13-17 ára og fékk marga nýja
fylgjendur til að skoða fleiri færslur frá bókasafninu.