Bókasafnið - mar 2020, Qupperneq 33
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 33
Sá ánægjulegi viðburður að veita Hvatningarverðlaun Upplýsingar varð að veruleika á Bókasafnsdaginn 9. september síðastliðinn, sem var jafnframt dagur
læsis. Þessi sérstöku verðlaun Upplýsingar voru veitt í
fyrsta sinn í Morgunkorni þann dag, en það var haldið í
Menntaskólanum í Kópavogi.
Verðlaunin eru veitt félagsmönnum í starfi fyrir einstök
verkefni sem þeir hafa unnið að og sem stuðlað geta
að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi á starfsstað.
Framkvæmd verðlaunanna miðast við að veita ein verðlaun
til einstaklings en einnig er hægt að veita sérstakar
viðurkenningar fyrir samstarfsverkefni. Auglýsa skal
eftir tilnefningum til verðlaunanna ár hvert og skulu þær
berast á sérstöku eyðublaði inn á vef Bókasafnsdagsins.
Almenningur og starfsmenn safna geta tilnefnt verkefni til
verðlaunanna.
Markmið verðlaunanna eru að:
- veita bóksöfnum jákvæða hvatningu í starfi
- vekja athygli á því gróskumikla starfi sem
fram fer á vegum bókasafna
- stuðla að aukinni nýbreytni og þróunarstarfi
Einnig voru teknar saman vinnureglur fyrir dómnefndina,
en í henni eiga sæti þrír fulltrúar: einn úr stjórn
Upplýsingar, einn frá Samtökum forstöðumanna
almenningsbókasafna og einn úr undirbúningshópi
Bókasafnsdagsins.
Vinnureglurnar skiptast í þrennt:
Við val á verðlaunahafa skal skoða hvernig verkefnið fellur
að markmiðum verðlaunanna.
Um sé að ræða nýbreytni- og/eða þróunarverkefni sem ekki
telst hluti af daglegu starfi viðkomandi starfsstaðar.
Verkefnið sé hvatning til eftirbreytni og góðra verka bæði
innan viðkomandi starfsstaðar og utan.
Það er skemmst frá því að segja að undirtektir voru
góðar. Alls bárust sex tilnefningar um verkefni og því var
dómnefndinni vandi á höndum. Eftir skipulega yfirferð yfir
verkefnin út frá markmiðum og vinnureglum varð að lokum
ein tilnefning hlutskörpust. Það var verkefnið Saumað
fyrir umhverfið, sem Bókasafn Reykjanesbæjar stóð fyrir.
Safnið gekkst fyrir því að láta sauma á safninu fjölnota poka
undir bækur og draga þannig alveg úr notkun plastpoka.
Í tilnefningunni kemur fram að verkefnið sé hugsað sem
umhverfisátak til að vekja fólk til umhugsunar um ofnotkun
plasts og til að draga úr notkun þess. Verkefnið tókst með
miklum ágætum og náðist markmiðið: að sauma 1000 poka
fyrir plastlausan september. Er verkefnisstjóranum, Guðnýju
Kristínu Bjarnadóttur, og öðrum starfsmönnum Bókasafns
Reykjanesbæjar, óskað til hamingju með að hljóta fyrstu
Hvatningarverðlaun Upplýsingar.
Dómnefndinni er að lokum þakkað störf sín, en í henni
voru Þórunn Erla Sighvats (úr stjórn Upplýsingar),
Margrét Sigurgeirsdóttir (frá Samtökum forstöðumanna
almenningssafna) og Margrét Björnsdóttir (úr
undirbúningshópi Bókasafnsdagsins).
Fyrir hönd stjórnar Upplýsingar, Oddfríður Helgadóttir,
formaður.
Hvatningarverðlaun Upplýsingar
– bækur hér, bækur þar, bækur alls staðar
Oddfríður S. Helgadóttir Formaður Upplýsingar
Frá vinstri, Barbara Guðnadóttir varaformaður Upplýsingar, Oddfríður S.
Helgadóttir formaður Upplýsingar, Guðný Kristín Bjarnadóttir, bókasafns-
og upplýsingafræðingur og umsjónarmaður verðlaunaverkefnisins,
Stefanía Gunnarsdóttir, forstöðumaður bókasafns Reykjanesbæjar og
Þórdís Ósk Helgadóttir, forstöðumaður Súlunnar, verkefnastofu, við
verðlaunaafhendinguna í bókasafni Reykjanesbæjar.