Bókasafnið - mar 2020, Blaðsíða 34
34 Bókasafnið
Yfirlýsing alþjóðlegra samtaka
bókasafna í kjölfar COVID-19
heimsfaraldursins
Við biðjum útgefendur að huga strax að
eftirfarandi:
1. Að opna aðgang að öllum gögnum, gagnasettum og
upplýsingum varðandi COVID-19, kórónavírusa (óháð
tegundum sem þessir vírusar hafa áhrif á), bóluefni,
veirulyf, o.fl. sem annars eru í seldum aðgangi til
bókasafna.
Við biðjum um að þetta sé gert til að styðja við
rannsóknir, leiðbeina almannavörnum og flýta fyrir
uppgötvunum á árangursríkum meðferðarúrræðum
gegn veirunni.
2. Að aflétta notendatakmörkunum á stafrænu efni sem
háskólabókasöfn greiða venjulega fyrir aðgengi að,
nú þegar starfsemi háskóla færist á netið, til að leyfa
rannsóknum, nýsköpun og námi að halda áfram þrátt
fyrir ástandið.
3. Að aflétta tímabundið samningsbundnum
takmörkunum á millisafnalánum og/eða
skönnunartakmörkunum svo bókasöfn geti aðstoðað
nemendur sína við að ljúka önninni.
4. Að leyfa hámarks svigrúm á
höfundarréttartakmörkunum og leyfi til sanngjarnra
notkunnar (e. fair use) og veita einnig undantekningar
frá höfundarrétti jafnvel þó að samningar segi annað til
að gera stofnunum kleift að halda áfram mikilvægum
kennsluverkefnum þegar háskólasvæðin lokast og færast
á netið með fjarkennslu.
Þessi yf irlýsing, rituð fyrir hönd ICOLC (International Coalition of Library Consortia), alþjóðlegra
samtaka bókasafna hefur tvíþættan tilgang. Í fyrsta lagi er yf irlýsingunni ætlað að hjálpa útgefendum og
og öðrum efnisbirgjum sem bókasöfn eiga viðskipti við (hér eftir nefnd einu nafni útgefendur) að öðlast
betri skilning á áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins á upplýsingasamfélagið um heim allan. Í öðru
lagi er tilgangur yfirlýsingarinnar að koma með tillögur að aðferðum til lausna sem við teljum vera
gagnkvæman hag bókasafna og útgefenda.
Í ljósi þess fordæmalausa veirufaraldurs sem nú geysar getur ICOLC ekki gengið út frá því að bókasöfn
og útgefendur deili sameiginlegri sýn á hverjar séu bestu leiðirnar til að takast á við ástandið. Meðlimir
ICOLC hafa því undanfarið skipst á sjónarmiðum um hvernig COVID-19 heimsfaraldurinn muni hafa
áhrif á samtökin og meðlimasöfn þeirra.
Þegar þetta er ritað (13.3.2020) hefur starfsemi háskóla og skóla í 49 löndum að hluta eða öllu leyti verið
felld niður en samkvæmt tölum frá UNESCO hafa þessar lokanir áhrif á nám og kennslu um 391
milljón nemenda.
Fjölmargir háskólanemar munu ljúka yfirstandandi önn í fjarnámi í kjölfar beiðni Alþjóðaheilbrigðismá
lastofnunarinnar (WHO) og fleiri um lokun fjölmennra staða til að hefta útbreiðslu veirunnar.