Bókasafnið - mar. 2020, Side 35
Bókasafnið 43. árg – 2019-2020 35
Við biðjum útgefendur um að huga að
áætlunum til að:
5. Að leyfa sveigjanlegri endurnýjunartíma og lengja í
gjalddögum vegna greiðslna þar sem við vitum ekki
hvaða framtíðaráhrif faraldurinn hefur á heilsufar
starfsfólks bókasafna sem sjá um viðskiptaferlana
gagnvart útgefendum. Ef endurnýjunarferlið truflast
biðjum við útgefendur að halda aðgangi að efninu
opnum gagnvart meðlimasöfnum okkar, jafnvel þótt
núverandi samningur samtakanna eða stofnunarinnar
gæti verið útrunninn.
6. Að fresta eða lágmarka fyrirhuguðum
verðhækkunum þar til þær truflanir sem við sjáum
nú í notendasamfélögum okkar, lýðheilsukerfi og á
hlutabréfamörkuðum um allan heim róast. Fjárhagsleg
áhrif á menntastofnanir og efnahag heimsins eru enn
óþekkt og verðhækkanir munu auka enn álag á háskóla
og sveitarfélög undir þessum kringumstæðum. Skilmálar
og stöðluð verðlagning geta virkað á tímum stöðugleika
en undir núverandi kringumstæðum munu bókasöfn
eins og aðrar stofnanir finna fyrir fjárhagslegum
þrýstingi til að hagræða.
7. Þróa áætlanir um að aflétta tímabundið
greiðsluhindrunum eða þróa aðrar aðferðir til að
auðkenna notendur og auðvelda þannig aðgengi að
áskriftarefni sem er undir miklu notendaálagi um þessar
mundir vegna óvenjumikillar umferðar (VPN og proxy
þjónar).
8. Að aflétta háskólasvæðis-takmörkunum þannig að nám
geti haldið áfram með fjarkennslu þrátt fyrir lokanir
háskóla.
Við hvetjum útgefendur til að vinna með alþjóðasamtökum
bókasafna og bókasöfnum almennt í þágu allra samfélaga.
Samtök bókasafna eru vel í stakk búin til að vera skilvirkasta
leiðin til að gæta að hagsmunum bæði lesenda og útgefenda
og skapa lausnir sem þjóna hagsmunum samfélagsinsins í
heild sinni.
Það er í þágu bæði útgefenda og samtaka bókasafna að
leita skapandi lausna að aðgengi að lífsnauðsynlegum
rannsóknarupplýsingum í eigu útgefenda fyrir
áframhaldandi rannsóknir í lýðheilsuvísindum.
Að lokum mælumst við til þess að bókasöfn, samtök
bókasafna og útgefendur nýti þessar tillögur í samtölum
sín á milli svo hægt sé að koma eins miklum upplýsingum
og mögulegt er til notenda sem þurfa á þeim að halda.
Við teljum að tillögur okkar veiti traustan grunn fyrir
upplýsingasamfélagið, þar með talið útgefendum fræðilegra
upplýsinga, til að halda áfram á þessum fordæmalausu
tímum.
Við erum þakklát viðbrögðum bókasafna og
útgefenda á þessum viðsjárverðum tímum.
Reykjavík, 24.3.2020
Þýtt og staðfært af stjórnarnefnd Landsaðgangs að
rafrænum áskriftum.
Birt í Bókasafninu með leyfi stjórnarnefndar
Landsaðgangs.