Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Laugavegi 178, 105 Reykjavík sími 551 3366. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Tahoo maxi bómullarbuxur Stærðir S-3XL. Verð 1.790,- Eco Qi bómullarbuxur Stærðir M-XXL - Verð 1.790,- Comforta bómullarbuxur Stærðir M - 4XL - 1.790,- Sava Stærðir M-XXL Verð 2.650,- Húsviðhald Tek að mér ýmiskonar húsaviðhald Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur ISNIC 2020 Aðalfundur Internets á Íslandi hf. (ISNIC) verður haldinn föstudaginn 31. janúar kl. 16.00 í ISNIC- salnum, Katrínartúni 2, 18. hæð, 105 Reykjavík. Dagskrá aðalfundar skv. 14. gr. samþykkta félagsins: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2019. 2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2019 lagður fram til samþykktar. 3. Tillaga um ráðstöfun hagnaðar og framlög í varasjóð. 4. Kosning stjórnar. 5. Kosning endurskoðanda. 6. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna. 7. Önnur mál, löglega upp borin. Hluthafar geta nálgast ársreikning félagsins á skrifstofu ISNIC 1 viku fyrir fundinn. F.h. stjórnar Internets á Íslandi hf. Jens Pétur Jensen, framkvæmdastjóri. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfi- salurinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 krónur, veglegir vinningar. Kaffi kl.14.30-15. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Morgunsagan kl. 11. Göngubretti, æfingarhjól með leiðbeinanda kl. 12.30. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir inni- pútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700. Boðinn Hugvekja presta kl. 14.30. Línudans kl. 15. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl. 10.15-11.20. Hádegimatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Síð- degiskaffi kl. 14.30. Komdu að púsla kl. 9-16. Þátttökulistarnir eru komnir. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í s. 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10. Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Handaband kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Nánari upp- lýsingar í síma 411 9450. Verið öll hjartanlega velkomin á Vitatorg. Garðabær Dansleikfimi í Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjóna- kaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl.10.30. Leikfimi Maríu 10.30-11.15. Bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 Félagsvist. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndaklúbbur og bingó kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Botsía kl. 10- 11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Korpúlfar Sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, gönguhópar kl. 10 frá Borgum og í Egilshöll. Brids kl. 12.30 í Borgum í dag og hann- yrðahópur Korpúlfa hefst kl. 12.30 í dag og allir velkomnir í föstu- dagsvöfflukaffi í Borgum kl. 14.30-15.30. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, guðsþjónusta kl. 14.30. Uppl í s.411 2760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl.10.30. Leikfimi á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman á Skólabraut við undirleik Friðriks Vignis. Kaffi á eftir. Allir velkomnir. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Dans, dans, dans; á morgun laugardag kl. 14 verður prufutími fyrir eldri borgara í dansi í Dansskólanum Óskandi á Eiðisorgi í sam- starfi við félagsstarf eldri borgara. Fjölmennið. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur í Stangarhyl 4, sunnu- dagskvöld 12. janúar kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum. Smá- og raðauglýsingar Vantar þig dekk? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Birgir Mar-inósson fæddist í Engihlíð á Ár- skógsströnd 27. október 1939. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð Akureyri 26. desember 2019. Foreldrar hans voru Guðmunda Ingibjörg Einars- dóttir, húsfreyja og ljósmóðir, f. 1905, d. 1999, og Marinó Steinn Þor- steinsson bóndi, f. 1903, d. 1971. Systkini Birgis: Valgerður, f. 1927, d. 1963, Ása, f. 1932, Þor- steinn, f. 1934, og Hildur, f. 1941. Birgir eignaðist fjögur börn með fyrri konu sinni, Böðvínu Maríu Böðvarsdóttur: Böðvar, f. 1963, Arnar, f. 1965, Elvar, f. 1966, og Birgittu Maríu, f. 1970. Barna- börn Birgis eru 12. Seinni kona 1973. Kennari við Glerárskóla 1973-1976 og Oddeyrarskóla 1976-1977. Starfsmannastjóri hjá Iðnaðardeild SÍS og síðar Ála- fossi 1977-1991. Rak eftir það eigin bókhaldsþjónustu meðan heilsan leyfði. Birgir hefur tekið mikinn þátt í félagslífi margra félaga, þar á meðal í stjórn Ung- mennafélagsins Reynis og Ung- mennasambands Eyjafjarðar. Hann stundaði íþróttir á yngri árum og keppti einnig í mörgum greinum. Hann hefur spilað í mörgum hljómsveitum og stofn- aði þá fyrstu þegar hann var á Bifröst, Hljómsveit Birgis Mar- inóssonar, var seinna í hljómsveit Pálma Stefánssonar og fleirum. Hann spilaði á harmoniku, gítar og víbrator. Birgir átti létt með að yrkja og gaf út þrjár ljóða- bækur auk þess að yrkja fjölda af tækifærisvísum og ljóðum. Útför Birgis fór fram í kyrr- þey 2. janúar 2020 frá Höfðakap- ellu Akureyri og var þar farið eftir óskum hans. Birgis er Anna María Jóhanns- dóttir, f. 3. janúar 1940. Foreldrar hennar voru Fann- ey Oddgeirsdóttir, f. 1917, d. 2009, og Jóhann Konráðsson, f. 1917, d. 1982. Dætur Önnu Maríu frá fyrra hjóna- bandi eru Fanney Harðardóttir og Inga Björk Harðardóttir og barnabörnin eru fimm. Birgir ólst upp í Engihlíð við almenn bú- störf og sjósókn. Lauk námi í Héraðsskólanum á Laugum í S- Þing. 1959 og Samvinnuskól- anum á Bifröst árið 1961. Skrif- stofumaður hjá Ullarverksmiðj- unni Gefjun 1961-1966, bóndi í Engihlíð 1966-1968 og kennari við barnaskólann í Árskógi 1966- Elskulegur bróðir hefur nú kvatt okkur eftir að hafa barist við ólæknandi sjúkdóm um tíma. Okk- ur langar til að þakka honum sam- fylgdina allt frá æskuárunum og fram á þennan dag. Við systkinin ólumst upp í Engihlíð við venjuleg bústörf. Rafmagn kom ekki í sveit- ina fyrr en haustið 1955 og þurfti því að handmjólka kýrnar fram að þeim tíma og við heyskap voru notaðir hestar fyrir sláttu- og rakstrarvélar. Við þurftum oft að takast á við ýmis ábyrgðarstörf heima þegar foreldrarnir voru fjarverandi við önnur störf. Birgir var snemma líflegur og fjörugur strákur og stundum svolítið stríð- inn, en okkur kom þó öllum mjög vel saman. Birgir stundaði nám í þrjá vetur á Laugum í S.-Þing. og lauk þar námi 1959. Þar stofnaði hann sína fyrstu hljómsveit. Eftir það lá leiðin á Bifröst og útskrif- aðist hann þaðan 1961. Þar stofn- aði hann hljómsveit sem starfaði svo áfram eftir að skólagöngu lauk. Eftir þetta var hann óstöðv- andi, spilaði og söng, ýmist í eigin hljómsveit eða annarra. Áhuginn var þarna. En hann hafði líka áhuga á fleiru, bæði veiðiskap á sjó og landi og á íþróttum, bæði frjáls- um og fótbolta. Hann keppti oft í frjálsum, einkum hlaupum. Hann átti mjög auðvelt með að setja saman vísur og sagði að hann hefði enga skáldhæfileika, þetta væri 95% æfing. Eftir hann eru til ótal lausavísur og bragir, sem ekki hef- ur verið gefið út og sumt glatað, en hann hefur gefið út þrjár ljóða- bækur: Lausar kvarnir 1971, Ljós og skugga 1982, Létt ljóð seinna og smásögur 1972. Hann átti líka létt með að semja lög og hafa mörg þeirra komið út á plötum. Tvö eru kannski þekktust: Glókollur og Á heimleið og á hann þar textana líka. Birgir eða Biggi Mar. eins og hann var oft nefndur hefur alla tíð verið mjög virkur í öllu félagslífi, sem byrjaði í heimasveit í UMF Reyni, síðan UMSE, þá í skólun- um og seinna á Akureyri þar sem hann starfaði í mörgum félögum og hélt uppi líflegu félagslífi. Ekki er mögulegt í þessum skrifum að telja það upp frekar, en margt má finna á netinu. Ekki hefur þó lífið alltaf leikið við bróður okkar og margir erfiðleikar steðjað að í tím- anna rás. Valgerður systir okkar missti sitt fyrsta barn nokkurra daga gamalt. Hún lést svo 35 ára gömul frá eiginmanni og fimm börnum. Þetta fannst okkur ekki réttlátt. Í fjölskyldulífi sínu hefur Birgir barist við ýmsa erfiðleika á lífsleiðinni og hefur það tekið á. Hann hefur eignast góða vini á lífsleiðinni, skólafélaga frá Laug- um og frá Bifröst þar sem nokkrir koma saman oft árlega. Hann á nokkra trúfasta og góða vini frá tónlistinni. Þetta ber að þakka. Við þökkum líka yndislegu starfs- fólki Skógarhlíðar fyrir frábæra umönnun og góðvild í garð Birgis. Hann hefur fengið góðan stuðning frá eiginkonu sinni Önnu Maríu í baráttunni við þann sjúkdóm sem smátt og smátt hefur sogað til sín allan mátt úr vöðvum líkamans, þótt hugurinn væri skýr allt til enda. Við sendum Önnu Maríu, börnum þeirra Birgis og fjölskyld- unum öllum innilegar samúðar- kveðjur. Hvíl þú í friði, elsku bróð- ir. Þín systkin, Ása, Þorsteinn og Hildur. Góður vinur minn til fjölda ára, Birgir Marinósson, eða Biggi Mar, er fallinn frá eftir nokkuð langvarandi og erfið veikindi. Við Biggi kynntumst á Héraðsskólan- um á Laugum í Reykjadal haustið 1957, fljótlega tókst með okkur góð vinátta sem haldið hefur síð- an. Biggi var einn þeirra sem gátu eiginlega allt. Hann var góður námsmaður, spilaði á harmonikku sem var nú ekki ónýtt í héraðs- skóla á þessum árum. Síðar á æv- inni stofnaði hann hljómsveit sem lék fyrir dansi víða um land. Hann samdi bæði lög og texta við þau sem mörg hver urðu geysivinsæl. Hver man ekki Glókoll „Sofðu nú sonur minn kær“ sem dunaði í flestum óskalagaþáttum og var margoft vinsælasta lagið þá vik- una. Hann var fjölhæfur í íþrótt- um, spilaði fótbolta og blak svo eitthvað sé nefnt, átti gott með að umgangast aðra og var af þeim sökum m.a. valinn formaður skólafélagsins. Á þess vegum stóð hann fyrir útvist og keppnum af ýmsu tagi, eins og hlaupi í kring- um tjörnina, sem kallað var að hlaupa litla rúntinn, eða tæpa 400 m og býsna erfiður. Sá stóri var örugglega a.m.k. þrisvar sinnum lengri enda voru bara þeir for- framaðri sem lögðu í hann. Hluti af verkefnum formanns var sam- skipti við skólastjóra og kennara, en eins og þeir vita sem dvalið hafa í heimavistarskóla fer all- nokkur tími kennara og skóla- stjóra í að passa upp á hæfilega fjarlægð á milli kynjanna. Minnist þess að einhverju sinni var mikil umræða á milli Inga Tryggva, kennara og Bigga um lýsingu á skólaböllum. Ingi vildi helst hafa kastara í hverju horni en Biggi saklausar glóðarperur. Svo langt gekk umræðan að tendruð voru ljós af ýmsum styrkleika og síðan var strák og stelpu stillt upp og þau látin leggja vanga að vanga og síðan metið af færustu mönnum, þá voru ekki komnir sérfræðingar á öllum sviðum eins og nú er, hvort þessa vituðu nánd mætti greina nógu skýrt frá ákveðnum stað í stofunni. Eftir töluverðar til- raunir náðist samkomulag milli þeirra félaga um lýsinguna. Nú eru öll vandamál af þessu tagi úr sögunni, um það upplýsti mig okk- ar ágæti íþróttakennari Óskar Ágústsson fyrir svona 50 árum, þá átti ég leið um Laugar og hitti Óskar úti fyrir, við tókum tal sam- an eins og venja er til sveita. Hann sagði mér í óspurðum að nú væri búið að leysa farsællega öll sam- skiptamál kynjanna. Ég varð eitt spurningarmerki og spurði. Hvernig, með hökuna niður á bringu af undrun. Óskar glotti stríðnislega og sagði. Við lofum bara strákunum að sofa hjá stelp- unum. Flókið mál leyst á einfaldan hátt eins og hans var háttur. Er sannfærður um að vinnur minn Birgir og jafnvel ég hefðum unað vistinni á Laugum enn betur ef þetta fyrirkomulag samskipta kynjanna hefði verið við lýði á okkar sældarárum þar. Að lokum þakka ég vini mínum allar góðu stundirnar sem við átt- um saman á þessu tilverustigi mannsandans og bið honum far- arheilla á leið sinni til sumarlands- ins eilífa. Aðstandendum votta ég samúð mína. Helgi Laxdal. Birgir Marinósson Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.