Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 35
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýliðinn Urald King sækir að körfu ÍR-inga í gærkvöldi en sá hefur komið sterkur inn í lið Stjörnunnar.
BREIÐHOLT/KEFLAVÍK
Kristófer Kristjánsson
Skúli B. Sigurðsson
Topplið Stjörnunnar var ekki í mikl-
um vandræðum með ÍR-inga þegar
liðin mættust í Hertz-hellinum í
Dominos-deild karla í körfuknattleik í
gærkvöldi en Garðbæingar unnu afar
sannfærandi 93:75-sigur. Stjarnan
hefur nú unnið níu deildarleiki í röð
og stefnir ótrauð á deildarmeist-
aratitilinn annað árið í röð.
Stjarnan fékk mikinn liðsstyrk í
vetrarfríinu en félagið samdi við
landsliðsmanninn Gunnar Ólafsson
sem kom frá spænsku B-deildinni og
fékk einnig Urald King til liðs við sig
en sá lék síðast með Tindastól á síð-
ustu leiktíð. King var frábær í Selja-
skóla í gær, skoraði 22 stig og tók 19
fráköst og ljóst, þegar litið er á leik-
mannahóp Stjörnunnar, að liðið ætlar
sér langt í vetur. Það var einmitt
gegn ÍR sem Stjörnumenn féllu úr
leik í undanúrslitum Íslandsmótsins í
fyrra eftir æsispennandi viðureign og
eiga Garðbæingar því harma að hefna
í vor.
ÍR er nú búið að tapa þremur leikj-
um í röð, öllum með u.þ.b. 20 stiga
mun en illa virðist ganga að setja
saman nýtt lið í Breiðholtinu. ÍR-
ingar eru að vísu í sama sæti nú og
þeir enduðu í í fyrra, 7. sæti, og fóru
þá eftirminnilega alla leið í úrslit þar
sem þeir töpuðu gegn KR. Það er þó
erfitt að ímynda sér þetta ÍR-lið leika
sama leik eftir. Liðið var enn eina
ferðina einhverjum 20 fráköstum á
eftir andstæðingi sínum og virðist
hreinlega vanta þá baráttu sem hefur
einkennt ÍR-inga undanfarin ár.
Sannfærandi í grannaslagnum
Keflavík og Grindavík mættust í
líkast til allra daufasta leik í manna
minnum. Keflavík náði að lokum að
landa verðskulduðum og nokkuð
áreynslulausum sigri, 80:60. Keflavík
leiddi með sex stigum í hálfleik og í
raun má segja að sigur liðsins hafi
aldrei verið í hættu.
Þegar um þrjár mínútur voru liðn-
ar af leiknum var Guðmundi Jónssyni
úr Keflavík vikið í sturtu eftir að hafa
fengið á sig óíþróttamannslega villu
og svo í kjölfarið tæknivillu fyrir
munnsöfnuð. Hörð refsing má segja,
fyrir annars litlar sakir þannig séð.
Reglubókin tekur hinsvegar á þessu á
þennan hátt. En að leiknum, þá virt-
ist hann vera allt frá byrjun annars
leikhluta á sjálfstýringu í átt að
heimasigri. Keflvíkingar gerðu ein-
faldlega það sem þeir þurftu og lyftu
ekki fingri umfram það. Leiddir
áfram af Dominykas Milka í enn eitt
skiptið og setti kappinn í 22 stig og
tók heil 19 fráköst í leiknum. Frábær
leikmaður! Leikur Grindvíkinga var
vandræðalegur nánast allt kvöldið og
þetta „villta vestur“ sem loðað hefur
við liðið síðustu tímabil virðist ekkert
vera að hjaðna. Hvað eftir annað er
ein sending í sóknarkerfi liðsins og
þar með er einhver leikmaður búinn
að taka af skarið og kominn í einleik.
Vissulega hafði það áhrif að Jamal
Olasawere var í banni en hans vera
hefði ekki breytt neinu þetta kvöldið.
Stjörnumenn óstöðvandi
Stjarnan vann sinn níunda deildarsigur í röð ÍR enn eina ferðina undir á öll-
um vígstöðvum Keflavík vann grannaslaginn vandræðalaust og sannfærandi
Morgunblaðið/Skúli
Sterkur Dominykas Milka fór á kostum í grannaslagnum í Keflavík.
Eitt
ogannað
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Vetrarólympíuleikar ungmenna
voru settir í Lausanne í Sviss í gær-
kvöldi. Ísland á fjóra keppendur á leik-
unum: Einar Árna Gíslason og Lindu
Rós Hannesdóttur í skíðagöngu og
Gauta Guðmundsson og Aðalbjörgu
Lillý Hauksdóttur í alpagreinum en
Aðalbjörg var fánaberi Íslands á leik-
unum. Grímur Rúnarsson og Dagmar
Ýr Sigurjónsdóttir eru þjálfarar í alpa-
greinum og þau Sigrún Anna Auðar-
dóttir og Vadim Gusev í göngunni.
Leikarnir standa yfir frá 9. til 22. jan-
úar og eru keppendur 1.880 talsins.
Leikarnir eru fyrir afreksfólk á aldr-
inum 15 til 18 ára.
Tvíburarnir Dagur og Máni Aust-
mann Hilmarssynir eru nú báðir orðn-
ir leikmenn Leiknis í Breiðholti sem
leikur í B-deild Íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Máni gekk í gær í raðir Leiknis
frá HK en hann spilaði átta leiki með
HK í efstu deild síðasta sumar.
Knattspyrnu-
maðurinn Diego
Jóhannesson er
að skipta um félag
á Spáni eftir því
sem fram kemur í
fjölmiðlum þar í
landi. Diego er
samningsbundinn
Real Oviedo sem
leikur í spænsku B-deildinni en hann
hefur spilað með liðinu frá árinu 2011.
Samkvæmt fréttum er Diego að ganga
til liðs við Cartagena á láni. Cartagena
leikur í spænsku C-deildinni en þar er
liðið í efsta sæti síns riðils og á góðri
leið með að tryggja sér sæti í B-
deildinni. Diego, sem er 26 ára gamall,
hefur lítið komið við sögu hjá Real
Oviedo, aðeins spilað fimm leiki af 22,
en alls á hann að baki þrjá leiki fyrir ís-
lenska landsliðið.
Íslandsmeistarar KR í knattspyrnu
gerðu í gær tveggja ára samning við
markmanninn Guðjón Orra Sigur-
jónsson. Guðjón kemur til KR frá
Stjörnunni þar sem hann hefur verið
síðustu tvö ár. Guðjón hefur æft með
KR í vetur og lék hann með liðinu á
Bose-mótinu í síðasta mánuði. Hann
lék tvo deildarleiki með Stjörnunni á
síðasta tímabili, en var áður hjá ÍBV,
KFS og Selfossi. Eyjamaðurinn mun
berjast við Beiti Ólafsson um mark-
mannsstöðuna hjá KR en Sindri Snær
Jensson er hættur.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir reikn-
ar ekki með því að spila knattspyrnu
næstu mánuðina en þetta kemur fram
í samtali hennar við netmiðilinn Fót-
bolta.net í gær. Markmaðurinn öflugi
er án félags eftir að hafa sagt upp
samningi sínum við Þór/KA eftir síð-
asta tímabil. Bryndís Lára lék þrettán
leiki í úrvalsdeildinni með Þór/KA á
síðustu leiktíð en hún var að glíma við
meiðsli í baki allt tímabilið.
„Eins og staðan er í dag þá snýst þetta
númer eitt, tvö og þrjú um að ná heils-
unni og vera verkjalaus. Ég sé mig ekki
í fótbolta næstu vikur eða mánuði.
Það gerist fyrst
þegar ég er orð-
in verkjalaus,“
er meðal ann-
ars haft eftir
Bryndísi á
Fótbolta-
.net.
Meiðsli og veikindi hafa herjað á Ís-
landsmeistara KR síðustu vikur og
mátti liðið þola 75:83-tap á útivelli
fyrir Haukum í Dominos-deild
karla í körfubolta í gærkvöld.
Endurkoma Kristófers Acox dugði
ekki til fyrir KR, en hann hefur ver-
ið að glíma við erfið veikindi.
Haukar gengu á lagið og unnu
góðan sigur. Þeir vonast nú eftir
meiri stöðugleika, en aðeins einu
sinni í vetur hafa Haukar unnið tvo
leiki í röð. Með einu skrefi áfram
hafa yfirleitt tvö fylgt til baka. KR
ætti að vinna Fjölni í næstu umferð.
Haukar flugu hærra
en meistararnir
Morgunblaðið/Hari
Seigur Kári Jónsson og félagar í
Haukum unnu meistarana.
Þór Þorlákshöfn vann 87:70-sigur
á Val í Dominos-deild karla í
körfubolta á heimavelli sínum í
gærkvöld. Valsmenn voru með
57:51-forystu fyrir fjórða og síð-
asta leikhlutann, en heimamenn
sýndu allar sínar bestu hliðar í
leikhlutanum. Sigurinn var kær-
kominn hjá Þór, sem hafði tapað
fjórum af síðustu fimm, en Vals-
menn unnu langþráðan sigur á
Fjölni í síðasta leik.
Þórsarar eru í áttunda sæti með
tólf stig á meðan Valsmenn eru í
tíunda sæti með átta stig.
Þórsarar stungu
af á lokakaflanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorlákshöfn Dino Butorac og
félagar unnu góðan heimasigur.
Hertz Hellirinn, Dominos-deild karla,
9. janúar 2020.
Gangur leiksins: 0:9, 4:11, 12:20,
16:25, 20:31, 28:38, 33:47, 41:52,
41:59, 44:66, 50:71, 59:76, 60:82,
64:85, 68:91, 75:93.
ÍR: Collin Pryor 21/5 fráköst, Evan
Christopher Singletary 17/10 frá-
köst, Danero Thomas 10, Roberto
Kovac 8/6 fráköst, Georgi Boyanov
6/9 fráköst/3 varin skot, Daði Berg
Grétarsson 4, Skúli Kristjánsson 3,
Arnór Hermannsson 3, Sæþór Elmar
Kristjánsson 3/4 fráköst.
ÍR – Stjarnan 75:93
Fráköst: 27 í vörn, 10 í sókn.
Stjarnan: Urald King 22/19 fráköst,
Ægir Þór Steinarsson 19/6 fráköst/7
stoðsendingar, Gunnar Ólafsson 14,
Kyle Johnson 13/5 fráköst, Nikolas
Tomsick 10/6 fráköst/5 stoðsendingar,
Tómas Þórður Hilmarsson 9, Arnþór
Freyr Guðmundsson 2, Ágúst Ang-
antýsson 2, Hlynur Elías Bæringsson
2/12 fráköst.
Fráköst: 45 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson, Rögn-
valdur Hreiðarsson, Gunnlaugur Briem.
Áhorfendur: 336.
Blue-höllin, Dominos-deild karla, 9.
janúar 2020.
Gangur leiksins: 2:5, 5:9, 11:14,
18:14, 24:20, 30:24, 36:31, 40:36,
47:36, 49:36, 55:41, 65:43, 67:47,
72:54, 77:58, 80:60.
Keflavík: Dominykas Milka 22/19
fráköst, Deane Williams 22/14 frá-
köst, Hörður Axel Vilhjálmsson 14/8
stoðsendingar, Reggie Dupree 9,
Magnús Már Traustason 4, Callum
Reese Lawson 4, Davíð Alexander H.
Magnússon 3, Khalil Ullah Ahmad
2/6 stoðsendingar.
Keflavík – Grindavík 80:60
Fráköst: 31 í vörn, 12 í sókn.
Grindavík: Sigtryggur Arnar Björns-
son 18/4 fráköst, Ingvi Þór Guð-
mundsson 17/11 fráköst, Ólafur
Ólafsson 9/7 fráköst/3 varin skot,
Valdas Vasylius 7/5 fráköst, Björgvin
Hafþór Ríkharðsson 4/6 fráköst,
Kristófer Breki Gylfason 3, Davíð Páll
Hermannsson 2.
Fráköst: 26 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Davíð Tómas Tómasson,
Aðalsteinn Hjartarson, Jóhannes Páll
Friðriksson.
Áhorfendur: 316.