Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020 Spánn Meistarabikar, undanúrslit: Barcelona – Atlético Madríd ....................2:3  Atlético Madríd mætir Real Madrid í úr- slitaleik á sunnudaginn. Vináttulandsleikur karla Svíþjóð – Moldóva .................................... 1:0 KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:: Dalhús: Fjölnir – Þór Akureyri ...........18:30 Sauðárkrókur: Tindastóll – Njarðvík..20:15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Fylkishöll: Fylkir – Fjölnir .......................19 Víkin: Víkingur – HK U........................19:30 Safamýri: Fram U – FH.......................20:15 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót karla: Egilshöll: KR – Fylkir .............................. 19 Egilshöll: ÍR – Fjölnir............................... 21 Norðurlandsmót ka., Kjarnafæðismótið: Boginn: KA – Magni.................................. 19 Í KVÖLD! EM 2020 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Erlingur Richardsson var fyrsti Ís- lendingurinn á stóra sviðið í EM karla á handbolta, en hann stýrði Hollendingum í fyrsta leik þjóð- arinnar á Evrópumóti gegn Þjóð- verjum í C-riðli í Þrándheimi í gær. Hann mátti hins vegar þola 23:34- tap. Hollendingar stóðu lengi vel í þýska liðinu og var staðan 22:19 snemma í seinni hálfleik. Þá tóku Þjóðverjar hins vegar öll völd og unnu að lokum sannfærandi sigur. Leikurinn var að mörgu leyti svip- aður og vináttuleikur Íslands og Þýskalands í Manheim í undirbún- ingi fyrir mótið. Markmenn Þjóð- verja vörðu vel og útileikmenn refs- uðu fyrir mistök með hraðaupp- hlaupum. Líkt og íslenska liðið stóð það hollenska lengi vel í þýska lið- inu, en það má ekki mikið út af bera gegn jafn sterku liði og því þýska. Erlingur getur tekið margt jákvætt með sér úr þessari frumraun í leik gegn Lettum á morgun. Þjóðverjar virðast vera með afar sterkt lið og verður spennandi að sjá þá mæta ríkjandi Evrópumeisturum Spánar á morgun. Það tók Spánverja nokkurn tíma að komast í gang gegn Lettum, sem eru að leika á EM í fyrsta skipti. Staðan var 18:16 þegar nokkuð var liðið á seinni hálfleik, en þá duttu Spánverjarnir í gang og unnu að lok- um sannfærandi sigur. Leikurinn var þægilegur fyrir Spánverja á þessum tímapunkti og fengu margir leikmenn að spreyta sig. Þeir verða væntanlega sterkari eftir því sem líður á mótið og verður afar áhuga- vert að sjá þá kljást við Þjóðverja. Í A-riðli mættust Hvíta-Rússland og Serbía í Graz í Austurríki. Þar höfðu Hvít-Rússar betur, 35:30. Margir spá því að Hvít-Rússar gætu náð langt og byrjunin lofar sann- arlega góðu. Í sama riðli hafði Kró- atía betur gegn Svartfjallalandi. Luka Cindric, samherji Arons Pálm- arssonar hjá Barelona, átti stórleik fyrir Króata og skoraði sjö mörk og lagði auk þess upp fjölmörg á liðs- félaga sína. Það verður áhugavert að sjá hvernig Hvít-Rússum gengur gegn Króötum, en liðin mætast á morgun. Fengu sömu með- ferð og Íslendingar  Hollendingum skellt í frumrauninni AFP Frumraun Kay Smits leitar leiða framhjá markmanninum Andreas Wolff. Jóhann Berg Guðmundsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu og leik- maður enska úrvalsdeildarliðsins Burnley, er ekki illa meiddur. Fór hann meiddur af velli í 4:2-sigri Burnley gegn Peterborough í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi. Sean Dyche, knattspyrnu- stjóri Burnley, sagði á blaðamanna- fundi í gær að um væri að ræða smávægilega tognun aftan í læri hjá Íslendingnum. Jóhann mun þó ekki taka þátt í næsta leik sem er gegn Chelsea í London í úrvals- deildinni. bjarnih@mbl.is Smávægileg tognun í læri Ljósmynd/Burnley Tognun Jóhann verður væntanlega orðinn leikfær innan tíðar. Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, stóð fyrir sínu að venju með Alba Berlín þeg- ar liðið þurfti að sætta sig við tap á heimavelli gegn ísraelska stórliðinu Maccabi Tel Aviv, 89:95, í Euro- league í gær. Martin var stigahæst- ur í Berlínarliðinu með 16 stig en gaf auk þess fjórar stoðsendingar á samherja sína. Maccabi er í 4. sæti deildarinnar en róðurinn hefur verið þungur fyr- ir þýska liðið í Euroleague en Alba Berlín er nú í 16.-17. sæti af átján liðum. kris@mbl.is Stigahæstur gegn Maccabi Ljósmynd/Euroleague Atkvæðamikill Martin hefur látið að sér kveða í Evrópuleikjunum. EM karla A-RIÐILL, Graz: Hvíta-Rússland – Serbía...................... 35:30 Króatía – Svartfjallaland ..................... 27:21 Staðan: Króatía 1 1 0 0 27:21 2 Hvíta-Rússland 1 1 0 0 35:30 2 Serbía 1 0 0 1 30:35 0 Svartfjallaland 1 0 0 1 21:27 0 C-RIÐILL, Þrándheimi: Þýskaland – Holland ........................... 34:23  Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Spánn – Lettland.................................. 33:22 Staðan: Þýskaland 1 1 0 0 34:23 2 Spánn 1 1 0 0 33:22 2 Holland 1 0 0 1 23:34 0 Lettland 1 0 0 1 22:33 0 Svíþjóð Skövde – Skuru.................................... 25:34  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði ekki fyr- ir Skuru. Grill 66-deild kvenna Valur U – Selfoss .................................. 22:27 Staðan: Fram U 11 11 0 0 375:252 22 FH 11 9 1 1 309:238 19 Selfoss 12 8 2 2 280:258 18 Grótta 11 7 1 3 276:255 15 ÍR 11 7 0 4 286:266 14 Valur U 12 6 1 5 323:304 13 ÍBV U 11 4 1 6 275:276 9 Stjarnan U 11 3 1 7 267:309 7 Fylkir 11 3 0 8 214:244 6 Fjölnir 11 3 0 8 262:303 6 HK U 11 2 1 8 262:326 5 Víkingur 11 0 0 11 247:345 0  Dominos-deild karla ÍR – Stjarnan ........................................ 75:93 Þór Þ. – Valur ....................................... 87:70 Haukar – KR......................................... 83:75 Keflavík – Grindavík ............................ 80:60 Staðan: Stjarnan 13 11 2 1215:1075 22 Keflavík 13 10 3 1155:1057 20 Tindastóll 12 8 4 1061:1006 16 Njarðvík 12 8 4 1014:887 16 KR 12 7 5 995:990 14 Haukar 13 7 6 1156:1124 14 ÍR 13 6 7 1054:1128 12 Þór Þ. 13 6 7 1044:1063 12 Grindavík 13 5 8 1107:1151 10 Valur 13 4 9 1044:1119 8 Þór Ak. 11 2 9 893:1038 4 Fjölnir 12 1 11 1020:1120 2 1. deild karla Breiðablik – Álftanes ......................... 107:95 Staðan: Breiðablik 13 11 2 1314:1086 22 Höttur 12 11 1 1040:928 22 Hamar 13 11 2 1287:1159 22 Vestri 11 6 5 957:881 12 Álftanes 13 5 8 1078:1131 10 Selfoss 11 4 7 845:879 8 Snæfell 12 2 10 949:1150 4 Skallagrímur 11 2 9 921:1066 4 Sindri 10 1 9 808:919 2 Evrópudeildin Alba Berlín – Maccabi Tel Aviv ......... 89:95  Martin Hermannsson skoraði 16 stig, tók 2 fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir Alba Berlín. NBA Boston – San Antonio....................... 114:129 Charlotte – Toronto ......................... 110:112 Indiana – Miami................................ 108:122 Orlando – Washington ....................... 123:89 Atlanta – Houston ............................ 115:122 Dallas – Denver ................................ 106:107 New Orleans – Chicago.................... 123:108 Utah – New York.............................. 128:104 Golden State – Milwaukee................. 98:107  EM 2020 Jóhann Ingi Hafþórsson Kristján Jónsson Íslenska karlalandsliðið í handbolta er mætt til Malmö í Svíþjóð, þar sem liðið leikur í E-riðli Evr- ópumótsins. Fyrsti leikur liðsins er gegn Dönum á morgun klukkan 17:15. Ferðalaginu var flýtt um 16 klukkutíma vegna veðurs, en annars gekk það áfallalaust fyrir sig, að sögn Kjartans Vídó Ólafssonar, markaðsstjóra HSÍ, en hann verður liðinu til halds og trausts meðan á mótinu stendur. Leikmenn náðu að hvíl- ast vel í næturflugi og gátu sofið út í kjölfarið. Þeir æfðu í fyrsta skipti í Svíþjóð í gær og tóku allir fullan þátt í æfingunni, þar á meðal Elvar Örn Jónsson, Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson, en þeir hafa glímt við meiðsli að undanförnu eins og fram hefur komið. Að öllu óbreyttu ættu því allir að geta tekið þátt í fyrsta leik liðsins á morgun og má því segja að bati Elvars hafi verið hraður en hann tognaði á ökkla í vináttulandsleiknum gegn Þjóðverjum á dögunum. Leikið í Malmö á HM 2011 Íslenska liðið æfir í keppnishöllinni í fyrsta skipti í dag, en Malmö Arena tekur um 13.000 manns í sæti. Ekki verður þetta í fyrsta skipti sem handboltalandsliðið spilar í höllinni. Ísland mætti þar Króatíu í leik um 5. sætið á HM árið 2011. Kró- atía hafði betur 34:33. Fimm sem nú eru í hópnum voru á leikskýrslu í Malmö Arena árið 2011. Fyr- irliðinn Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 10 mörk í leiknum og Alexander Petersson 6. Björgvin Páll Gústavsson, Aron Pálmarsson og Kári Kristján Kristjánsson voru þá einnig í liðinu. Guðmundur Þ. Guðmundsson var landsliðsþjálfari þá eins og nú. Auk Dana og Íslendinga eru Ungverjar og Rússar í E-riðlinum. Ísland leikur við Rússland mánudaginn 13. janúar og tveimur dögum síðar við Ungverjaland. Komast tvö efstu liðin áfram í milli- riðil. Allir tóku fullan þátt í æfingu  Landsliðið æfir í keppnishöllinni í dag  Allir heilir heilsu og æfa á fullu  Vel hvíldir þrátt fyrir breytt flug  Höllin í Malmö tekur um 13.000 áhorfendur Morgunblaðið/RAX Landsliðsæfing Guðmundur Guðmundsson gat notað alla sína leikmenn á æfingu í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.