Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020 ✝ Leif MagnúsGrétarsson Thisland fæddist í Kristiansand í Nor- egi 22. janúar 2003. Hann lést af slysför- um í Núpá í Eyja- firði 11. desember 2019. Foreldrar hans eru Grétar Már Óskarsson, f. 4. des- ember 1980, sjó- maður og vélamaður í Vest- mannaeyjum, og Heidi Thisland Jensen, f. 4. janúar 1983 í Noregi, d. 20. mars 2011. Leif Magnús er elstur þriggja systkina, systur hans samfeðra eru Elísabet Erla, f. 5. júlí 2012, og Alexandra sen, f. 12. janúar 1990, og Arne Jensen, f. 11. júní 1995. Systir Grétars er Valgerður Erla Óskarsdóttir, f. 30. maí 1986, og sambýlismaður hennar Brynjólfur Ásgeir Brynjólfsson, f. 15. ágúst 1988. Börn þeirra eru Malín Erla, f. 24. nóvember 2013, og Kári Kristinn, f. 10. júní 2017. Leif Magnús var nemandi í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hann hafði undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur stundað sveita- störf af kappi, aðallega á bæj- unum Hvassafelli, Steinum og Drangshlíð undir Eyjafjöllum. Nú síðast á bænum Leyningi í Eyjafirði. Sveitastörf og véla- vinna voru Leif Magnúsi mjög hugleikin. Þrátt fyrir ungan ald- ur átti hann tvær dráttarvélar og líklegt að hugur hans hafi stefnt til frekari landvinninga í sveita- stöfum og landbúnaði. Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 10. janúar 2020, klukkan 15. Árný, f. 11. nóv- ember 2013, móðir þeirra og fyrrver- andi sambýliskona Grétars Más er Sig- rún Agata Árna- dóttir, f. 16. sept- ember 1987. Móðuramma Leif Magnúsar er Jorun Thisland, f. 26. ágúst 1958, og móð- urafi Stein Arne Jensen, f. 5. júní 1957 d. 13. okt 2003. Föðuramma er Torfhildur Helgadóttir, f. 11. júní 1959, og föðurafi Óskar P. Friðriksson, f. 19. júní 1958. Systkin Heidi eru Lisa Marie Jensen, f. 3. október 2000, og bræðurnir Andreas Jen- Elsku (Leif) Magnús. Þetta var högg. Nei, þetta var kjaftshögg. Slys, kunnáttuleysi, klaufaskapur, kæruleysi. Stór orð eins og ef og af hverju eru orð sem ég hef mikið hugsað um, spyr út í loftið. En fæ ekkert svar. Þetta var slys,ekkert annað. Þú þessi fallegi ungi glókollur. Rétt að stíga þín fyrstu skref út í lífið. Ég man: Þegar við hittumst fyrst. Lítill teinréttur ljóshærður hrokkinkollur, feiminn, feginn að sleppa í burtu eftir að hafa verið kynntur fyrir þessari ókunnugu konu. Þegar við hittumst á fæð- ingardeildinni, bæði komin til að hitta nýjan fjölskyldumeðlim. Þú að hitta litla systur og ég að hitta lítið barnabarn. Þú varst svo stoltur af henni, straukst litla fingri blíðlega yfir enni hennar og brostir svo undurblítt til hennar. Þegar ég kom til Eyja, kastaði á þig kveðju þar sem þú sast spenntur í sófanum með toppinn ofan í augum og fjarstýringuna þar fyrir neðan. Ekki kom svarið heldur: „Þú ert að trufla mig.“ Þegar leikurinn var búinn komstu til mín og oftar en ekki fékk ég faðmlag. Þegar við vorum saman inni í stofu. Þú spurðir mig hvort ég vildi líka vera amma þín. Ég sagði að það væri meira en vel- komið. Veistu hvað mér þótti vænt um þessa bón? Þegar þið Agga sátuð við eldhúsborðið og unnuð heimanámið. Þér fannst það svo leiðinlegt. Þú þoldir þetta ekki. En Agga gafst ekki upp og með þolinmæði og samningavið- ræðum tókst ykkur þetta. Þegar þú komst í bæinn með snjóbrettið og þið Agga og systur þínar fóruð saman upp í Bláfjöll. Hvað það var yndislegt að horfa á ykkur brosandi, hamingjusöm. Þegar þú birtist á pallinum hjá okkur síð- astliðið sumar. Svona líka fullorð- inn, myndarlegur. Fórst hjá þér þegar ég rauk á þig og faðmaði þig. Ég hefði faðmað þig aftur ef ég hefði vitað að þetta væri síð- asta sinn sem ég sæi þig. Samúðarkveðja til þín elsku Grétar. Missir þinn er mikill. Hann gerði þig að föður. Hann var heppinn að eiga þig að. Sam- úðarkveðja til þín elsku Óskar. Þín vegna átti hann alltaf öryggi og athvarf. Samúðarkveðja til þín elsku Hildur. Hann gerði þig að ömmu. Hans vegna varst þú alltaf til staðar. Samúðarkveðja til þín elsku Valgerður. Hans vegna varst þú besta frænka sem hægt var að hugsa sér. Þolinmóð og stríðin. Samt blíð og kærleiksrík. Samúðarkveðja til þín elsku Agga mín. Þú áttir svo auðvelt með að styðja hann og hughreysta. Hann bar mikla virðingu fyrir þér. Hjá þér gat hann alltaf fengið ráð og stuðning. Haldið áfram að hafa Leibbahelgi. Samúðarkveðja til ykkar elsku Elísabet Erla og Alexandra Árný. Hans vegna fenguð þið stóra bróður. Ykkar vegna eignaðist hann systur. Haldið fast í minninguna um sím- talið frá honum. Hann sýndi ykk- ur hvað hann elskaði ykkur og hvað hann var stoltur af ykkur. Það er þyngra en tárum taki að sjá á bak þessu fallega sambandi sem hefði orðið svo miklu meira, betra og fallegra. Elsku drengurinn. Farðu í friði hvert sem þú ferð og hvar sem þú verður vil ég að þú vitir að: Ég mun hitta þig þegar tíminn ákveður hvenær okkar slóð liggur saman á ný Erla Baldursdóttir. Þú varst bara sjö ára þegar þú ráfaðir aleinn í skóginum við Mandal. Heimabæ móður þinnar í Noregi og þú leitaðir hennar. Hún hafði verið tekin frá þér, far- in upp til ljóssins sem þú reyndir að finna á milli þéttra trjátopp- anna. En það tók þig ekki nema níu ár að finna ljósið og mömmu þína, hrakinn og blautur. Þú elsk- aðir sveitina, túnin, heyið og hey- skapinn á stórum vélum. Þú varst bara 15 ára, búinn að kaupa tvo traktora en fáir peyjar á þínum aldri geta stjórnað stærstu trak- torum með heytætlur og rúlluvél- ar í eftirdragi. Ég man þegar ég koma fram að Mosunum í fyrra með þér, Páli Magnúsi heitnum og pabba þínum. Þú snaraðist út úr bílnum, tókst stórt skrúfjárn og tengdir milli pólanna á raf- geyminum og vélin hrökk í gang. Snaraðist fimlega upp stigann, inn í risa traktorinn, kúplaðir heytætlunni inn, settir í gír og vélin æddi af stað, glæsilegt. Ég horfði hugfanginn á eftir þér, þú hélst í stýrið og leist út um aft- urrúðuna til að athuga hvort allt væri í lagið og gjóaðir svo aug- unum til Ása frænda sem var eitt bros. Rosalega vorum við montnir á þessu augnabliki. Ég af þér og þú, náttúrubarn á heimavelli lífs þíns. Og í sumar þegar Leif og faðir hans tóku við Steinabúinu við fráfall Madda kom ég að þeim feðgum í heyskap. Grétar að raka heyi í garða og Leif Magnús rúll- aði. Það stíflaðist í vélinni og minn maður sveiflaði sér út úr trak- tornum, lagðist undir rúlluvélina og reif úr henni heyið. Þarna var maður á ferðinni sem kunni sitt fag og sló ekki slöku við þó að langt væri liðið á kvöld eftir marga langa daga. Hann var bara 16 ára en kröfurnar sem gerðar voru til hans voru kröfur á full- orðinn mann. Það var óraunhæft, en hann var ákveðinn í að verða bóndi, átti tvo traktora og var klár í slaginn. Var alvörupeyi sem fór sína leið og ætlaði að meika það í sveitinni. En Leif átti ekki eins góða samleið með skólabók- unum og sveitalífinu. Maður þarf ekki að kunna dönsku eða sam- félagsfræði til að geta unnið á stærsta traktornum í sveitinni með rúlluvél í eftirdragi, eða aleinn að bera skít á tún fram á nótt. Gera við, vera maður og halda öllu gangandi. En það er ekki prófað í skólanum hvað mað- ur kann í lífinu. Ekki frekar en í þinginu. Þá hefði minn maður dúxað alla grunnskóla. Grunn- skólakerfið er ekki fyrir nemend- ur sem kunna meira á lífið en kennslubækurnar. Samt ætlaði Leif að koma heim og klára nám- ið, hann var tilbúinn þegar hann tók þá ákvörðun sjálfur. Ég heyrði í honum rétt fyrir slysið og við ætluðum að hittast í Eyjum um jólin. Hann var kokhraustur og ætlaði að taka bílpróf í janúar og kaupa sér Mustang. Leif bar sig vel í símtalinu, en svo brast röddin. Hann var bara barn, blessaður litli frændi minn, óharðnaður og bjó að þyngri reynslu en barn á að bera. Ég sagði honum ekki frá því að við hinn endann á línunni láku líka tárin mín. Við kvöddumst sem vinir með tárvot augu. Síðasta kveðjan var blaut og köld eins og þegar Leif kvaddi þennan heim á leið inn í ljósið á milli trjátopp- anna í Mandal. Votta Grétari Má, systrum Leifs og fjölskyldunni samúð. Ásmundur Friðriksson. Við í sveitinni okkar undir Eyjafjöllum höfum fengið að reyna að tilveran er undarlegt ferðalag eins og Tómas Guð- mundsson kvað fyrr á árum. Við erum gestir en ráðum ekki hvað langan tíma við fáum. Það bætast nýir hópar í skörðin en það kemur enginn í staðinn fyrir þá sem við missum. Og elsku Leif Magnúsi mínum honum lá svo reiðinnar ósköp á. Ég kynntist Leif Magnúsi þeg- ar hann fimm ára gamall kom með Grétari pabba sínum að Hvassafelli eftir að ég flutti þang- að. Þá strax kotroskinn, glaður og stríðinn strákur. Grétar hafði verið hér á hlaðinu frá því hann var smá peyi, fyrst hjá Sigurjóni í Steinum og síðan hjá Magnúsi mínum á Hvassafelli. Grétar var Magnúsi miklu meira en vinnu- maður því hann var honum eins og sonur og einn af hans bestu vinum. Ég held að það hafi fáum komið á óvart þegar Grétar ákvað skíra son sinn í höfuðið honum og Leif Magnús Thisland ✝ MagnhildurSigurðardóttir fæddist í Efsta-Dal í Laugardalshr. Árn., 4. desember 1922. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Mörkinni í Reykjavík 2. janúar 2020. Hún var dótt- ir hjónanna frá Efsta-Dal, Jór- unnar Ásmunds- dóttur húsfreyju, f. 5. okt. 1880 í Efsta-Dal, d. 11. júní 1970 í Reykjavík, og Sigurðar Sigurðs- sonar, bónda í Efsta-Dal, f. 14 jan. 1879 í Eystri-Dalbæ í Land- broti, V-Skaft., d. 17. mars 1946 í Efsta-Dal. Systkini Magnhildar voru: Ásmundur, f. 1913, d. 1996, Magnhildur, f. 1914, d. sama ár, Sigurður, f. 20. sept. 1915, d. 2. des. 2008, Steinunn, f. 1917, d. 1976, Magnús, f. 1918, d. 1997, Ingvar, f. 1919, d. 1990, og Björn, f. 1920, d. 2008. Magnhildur giftist 17. október 1942 Sigurði Friðriki Jónssyni búfræðingi og lögregluþjóni en foreldrar hans voru Sigrún Sig- urðardóttir húsfreyja, f. 12. júní 1891 í Tjarnargarðshorni, Svarf- Sigrún, f. 22. mars 1955. M. Þröstur Þorvaldsson, f. 24. okt. 1956. Börn hennar: Jóhann Pét- ur, f. 13. jan. 1975, Snorri, f. 10. júlí 1983, Birkir, f. 9. mars 1993, Hlynur, f. 9. mars 1993. Börn hans: Kristinn Andri, f. 2. des. 1976, Sólveig, f. 23. júlí 1980. 5) Jón, f. 8. des. 1957. M. Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir, f. 31. jan. 1958. Börn hans: Karen Amelía, f. 15. júní 1979, Daði Rúnar, f. 20. maí 1982, Heiða Rún, f. 23. okt. 2000, Ásta María, f. 5. maí 2002. Börn hennar: Arnar Ström, f. 27. feb. 1981, Sólveig Lilja Ström, f. 1. nóv. 1983. 6) Hilmar Steinar, f. 1. apríl 1963. K. Þórdís Sigurðardóttir, f. 20. nóv. 1965. Börn þeirra: Guð- björg, f. 8. ág. 1990, Jóhannes, f. 27. okt. 1992, Hildur Sif, f. 5. júní 1999. Magnhildur ólst upp í Efsta- Dal í Laugardal, en flutti til Reykjavíkur um 1940 og bjó á Snorrabraut 35 en 1954 flutti fjölskyldan í Skaftahlíð 29. Eftir að börnin komust á legg starfaði Magnhildur við ýmis störf, lengst af á Grensásdeild Land- spítalans. Síðustu árin bjó hún í Mörkinni við Suðurlandsbraut, fyrst í leiguíbúð en flutti síðan á hjúkrunarheimilið í Mörkinni þar sem hún lést. Útför Magnhildar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykja- vík í dag, 10. janúar 2020, og hefst klukkan 13. aðardalshr., Eyjaf., d. 8. nóv. 1972 í Reykjavík, og Jón Þorsteinsson, út- vegsbóndi á Fagra- nesi á Langanesi, N-Þing., síðar bóndi á Syðri-Grund í Svarfaðardal, Eyj. 1930, f. 29 ágúst 1889 á Blikalóni á Melrakkasléttu, Presthólahr., N- Þing., d. 4. des. 1939 á Akureyri. Börn: 1) Júlíus, f. 5. feb. 1943 í Reykjavík, d. 18. nóv. 2017. K. 28 des. 1963 Jóhanna Ellý Sigurð- ardóttir, f. 24. júlí 1943 í Kefla- vík. Börn þeirra: Erlendur Ás- geir, f. 25. júní 1964, d. 19. apr. 2011, Hildur, f. 1. nóv. 1966, Júl- íus Þór, f. 16. maí 1975, Davíð, f. 18. maí 1978. 2) Sigurður, f. 16. mars 1945. Börn: Svala Rún, f. 25. feb. 1966, Elísabet, f. 27. nóv. 1973, d. 11. mars 2010, Egill Ragnar, f. 22. ág. 1980. 3) Jór- unn, f. 22. jan. 1951. M. Sigurður Kolbeinn Eggertsson, f. 20. feb. 1949. Börn þeirra: Sigur- mundur, f. 26. nóv. 1972, Stein- unn Hildur, f. 12. júní 1974, Sig- urður Friðrik, f. 3. apr. 1978. 4) Mamma kvaddi í Mörkinni í Reykjavík 2. janúar sl. og hefði orðið 98 ára á þessu ári. Í Mörk- inni leið henni vel í góðri íbúð þar sem alltaf var heitt á könnunni og nóg til með kaffinu. Pönnukök- urnar hennar voru frægar og lifði hún fyrir að taka vel á móti gest- um sínum. Undir lokin bjó hún á hjúkrunarheimilinu í Mörkinni og sýndi starfsfólkið þar henni alltaf einstaka vináttu. Mamma hafði alla tíð sterka tengingu við æskuheimili sitt í Efstadal. Móðir hennar Jórunn og faðir hennar Sigurður voru dugnaðarfólk og frumkvöðlar í sveitinni. Hún var alltaf svo stolt af þeim þar sem þau voru langt á undan sinni samtíð. Mamma sýndi ung hversu kjörkuð hún var þegar hún flutti ein til Reykjavík- ur árið 1940, þá aðeins 18 ára. Hún vildi vera nálægt Steinu systur sinni sem hafði yfirgefið Efstadalinn á þessum tíma. Milli systranna var einstaklega náið samband. Mamma fékk vinnu á veitingastað í Aðalstræti og Ráða vinkona hennar útvegaði her- bergi til leigu á Baldursgötunni fyrir þær báðar. Síðan kom pabbi fljótlega inn í myndina og eitt leiddi af öðru. Mamma var engri lík hvernig hún tengdist fólki sterkum bönd- um, ungum sem öldnum. Hún var dagmamma í nokkur ár og sum barnanna sem hún passaði urðu síðan hluti af okkar fjölskyldu. Hún var gleðigjafinn í fjölskyldu- boðunum og hláturinn hennar ómaði um allt húsið. Hún hélt fjöl- skyldunni saman frá því ég man eftir mér í gegnum súrt og sætt. Við vorum öll sex systkinin að reyna að ná athygli hennar alla daga og við vildum öll standa okk- ur vel fyrir mömmu. Ég sagði reglulega við hana að ég ætti bestu mömmu í heimi og hún var alltaf miðpunkturinn í öllu í okkar lífi. Þegar ég bauð vinum mínum heim í partí enduðu allir inn í eld- húsi hjá mömmu að spjalla og þar var kátt á hjalla. Gleðigjafinn hún mamma var alltaf tilbúin að mæta í allar veislur eða fara í bíltúra og síðast en ekki síst elskaði hún að ferðast um heiminn. Minnisstæðar eru ferðirnar okkar saman til Kaupmannahafn- ar að heimsækja Unu systur. Þá var mikið fjör og hlegið frá morgni til kvölds. Einnig var ferð- in til Berlínar 2014 með mömmu og Nonna bróður mikil ævintýra- ferð. Í þeirri ferð var mamma að verða 92 ára og fannst sjálfsagt að taka með sér soðið hangilæri því það mátti enginn verða svangur í hennar ferðum. Hún lifði fyrir börnin sín og tengdist þeim öllum mjög sterkum böndum og var þeim frábær móðir, besti vinur og helsti ráðgjafi. Mamma lagði áherslu á dugnað, menntun, sparnað og mikilvægi þess að eiga sitt eigið húsnæði. Hún var snjöll í fjármálum og hafðir skoðanir á pólitík. Mamma átti viðburðaríka ævi og komst í gegnum erfiðleik- ana með dugnaði og ótrúlegum styrk. Lífið verður aldrei eins án mömmu en minningin um hana og gildin hennar munu lifa áfram meðal okkar barnanna. Hvíl í friði elsku mamma. Hilmar Steinar Sigurðsson. Við andlát móður minnar, Magnhildar Sigurðardóttur frá Efsta-Dal, koma upp í hugann nokkur minningabrot liðinna ára. Þann 4. desember árið 1922 fædd- ist lítil perla í gamla bænum í Efsta-Dal í Laugardal. Magnhild- ur hét hún, kölluð Magga og lést hún 2. janúar sl., þá 97 ára gömul. Ég líki móður minni við dýrmæta perlu vegna þess að perla getur verið einstök, sérstaklega verð- mæt, sterk og einnig getur hún stækkað og dafnað í skelinni sinni. Móðir mín var yngst í hópi sjö systkina og að sjálfsögðu var hún í miklu uppáhaldi hjá foreldr- um sínum og sérstaklega var kært með henni og Steinu eldri systir hennar. Margar sögur hef- ur maður nú heyrt úr sveitinni og sérstaklega er mér minnisstæð sagan þegar Sigurður faðir henn- ar kom ríðandi á hesti úr jóla- kaupstaðarferðinni á aðventunni, þá kaldur og blautur. Litla perlan hans kom þá á harðaspretti niður Efsta-Dals brekkuna til að taka á móti honum og færði honum þá þurra og hlýja ullarvettlinga sem Jórunn kona hans hafði þá prjón- að. Þessi litla perla fékk gott upp- eldi í Efsta-Dal og óx þar úr grasi, hún var ansi spræk og fjörug og var mikil pabbastelpa. En það kom að því að perlan yf- irgaf skelina sína í Laugardalnum þá 18 ára og flutti til Reykjavíkur sem þá var hernumin af breska hernum, eða árið 1940. Hún festi fljótlega ráð sitt, kynntist Sigurði F. Jónssyni sem hafði þá stuttu áður yfirgefið Svarfaðardalinn og réð sig í vinnu fyrir sunnan. For- eldrar mínir eignuðust sex börn og ég var svo heppinn að vera eitt af þeim og næstyngstur. Móðir mín lifði alltaf mjög heil- brigðu lífi, fór í sund, göngur og elskaði gömlu dansana. Hún gerði jógaæfingar á stofugólfinu heima langt fram eftir aldri og það geisl- aði af henni lífskrafturinn. Hún gekk með mér á topp Esjunnar þegar hún var komin yfir sjötugt og einnig tók hún þátt í víða- vangshlaupum. Haustið 2014 tók ég þátt í Berlínarmaraþoninu og móðir mín ákvað að koma með sem dyggasti stuðningsaðilinn, en þá var hún að verða 92 ára. Hlaupið gekk vel og við áttum yndislega daga í Berlín ásamt Hilmari bróðir mínum sem fór með okkur um alla borg. Áhuga- mál hennar voru að fylgjast vel með okkur börnunum og hún sýndi fjölskyldu sinni mikla ást og umhyggju. Hún var okkar trún- aðarvinur og allrabesti vinur og við elskuðum hana öll. Það var gott að vera nálægt henni, þessir jákvæðu straumar og þessi hlýja frá henni umvafði okkur. Þessi litla perla úr sveitinni varð að risastórri, þroskaðri gæðaperlu sem ekki var hægt að klóna eða verðleggja til fjár, bara horfa á hana og dást að lífsgleði hennar og dugnaði. Hún var ráða- góð og virtist alltaf vera með réttu svörin við hinum flóknustu vandamálum, fann alltaf lausnir og stappaði í mann stálinu. Henn- ar verður sárt saknað. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Megi minning um ástkæra móður mína lifa að eilífu. Jón Sigurðsson (Nonni). Móðir mín Magnhildur Sigurð- ardóttir lést 2. janúar sl. í Hjúkr- unarheimilinu í Mörkinni í Reykjavík, 97 ára að aldri. Hún var yngst átta systkina frá Efsta- Dal í Laugardal. Eftir langa ævi í gríðarlega góðum tengslum og vináttu við fjölskyldu sína, ættingja og vini þá er af mörgu að taka þegar allar hinar góðu minningar flæða fram nú að leiðarlokum. Auðlegð móður minnar var fyrst og fremst gríðarlegt þol- gæði og elja og þessi stóri fjöl- skylduhópur, ættingjar og vinir sem héldu stöðugu og gríðarlega verðmætu sambandi við hana í gegnum lífið með einhvers konar ósýnilegum hætti. Engu breytti hvort fólk hittist oft eða sjaldan, alltaf var eins og vináttan, hlýjan og einlægnin væri órjúfanleg. Þessi einstaka sterka vinátta og fjölskyldutengsl birtust mjög vel þegar hún hélt upp á stærri áfanga í lífinu svo sem merk af- mæli því þá mættu allir og hlát- urinn og faðmlögunum ætlaði aldrei að linna. Margir vina henn- ar heiðruðu hana alltaf á afmæl- um og ótrúlegt hvernig börn sem hún gætti þegar þau voru yngri Magnhildur Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.