Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Tölur Hagstofu Evrópu (Eurostat)
frá 2018 og síðustu þremur árum
þar á undan sýna að skimun fyrir
brjóstakrabbameini meðal evr-
ópskra kvenna á aldrinum 50 til 69
ára var hvergi algengari en í Finn-
landi, en þar gengust rúmlega 83%
allra kvenna á þessum aldri að
meðaltali undir slíka skoðun 2017.
Hlutfallið var 82% í Danmörku á
sama tíma. Hér á landi var hlut-
fallið 2018 og næstu þrjú ár þar á
undan langtum lægra í sama ald-
urshópi eða 57%. Nokkur minnkun
varð á aðsókn að brjóstaskimun hér
á landi frá aldamótunum síðustu
þegar hún var 62%, Meðfylgjandi
graf sýnir að 12 Evrópuþjóðir stóðu
sig betur í krabbameinsskoðun
kvenna á þessu aldursbili á til-
greindu tímabili, 2015 til 2017 eða
2018. Auk Finna og Dana eru það
Hollendingar, Norðmenn, Bretar,
Slóvenar, Írar, Króatar, Tékkar,
Belgar, Maltverjar og Ítalir. Lak-
astur er árangur Rúmena, 0,2%, en
þar er krabbameinsskoðun í algjör-
um ólestri eins og svo margt annað
sem lýtur að heilbrigðisþjónustu í
því landi. Stórþjóðirnar Þjóðverjar
og Frakkar eru fyrir neðan með-
altalið í Evrópu, þeir fyrrnefndu
með 52% þátttöku og hinir síðar-
nefndu með 50%.
Krabbameinsfélag Íslands hefur
um langt árabil annast skimun fyrir
brjóstakrabbameini hér á landi
samkvæmt samningi við Sjúkra-
tryggingar. Í nóvember í fyrra til-
kynnti heilbrigðisráðherra að þeg-
ar samningurinn rynni út í árslok
2020 myndi skimunin færast til
Landspítalans og Sjúkrahússins á
Akureyri. Er hugmyndin að skim-
anir verði hluti af almennri og op-
inberri heilbrigðisþjónustu. Heilsu-
gæslan mun aftur á móti annast þá
skimun á leghálsakrabbameini sem
Krabbameinsfélagið hefur nú með
höndum. Starfandi er sérstök verk-
efnastjórn sem á að gera tillögur
um útfærslu á fyrirliggjandi til-
lögum og ákvörðunum um breytt
skipulag á stjórnun, staðsetningu
og framkvæmd skimana fyrir
krabbameinum. Hún átti að skila
tillögum 1. desember en samkvæmt
upplýsingum frá ráðuneytinu í gær
eru þær ekki komnar en eiga að
liggja fyrir í lok þessa mánaðar.
Skimun eftir brjóstakrabbameini 2018
Hlutfall (%) kvenna á aldrinum
50-69 ára í Evrópulöndum*
Brjóstaskimun á Íslandi 2000-2018*
65%
60%
55%
50%
'00 '03 '06 '09 '12 '15 '18
**
Fi
nn
la
nd
**
*D
an
m
ör
k
**
**
H
ol
la
nd
**
N
or
eg
ur
Br
et
la
nd
Sl
óv
en
ía
**
Ír
la
nd
Kr
óa
tía
**
Té
kk
la
nd
**
*B
el
gí
a
M
al
ta
**
Íta
lía
Ís
la
nd
**
Lú
xe
m
bo
rg
**
Ei
st
la
nd
**
*Þ
ýs
ka
la
nd
**
Fr
ak
kl
an
d
**
Li
th
áe
n
Le
tt
la
nd
**
Un
gv
er
ja
la
nd
**
Ký
pu
r
**
Sl
óv
ak
ía
**
Bú
lg
ar
ía
**
Li
ec
ht
en
st
ei
n
**
**
Rú
m
en
ía
83 82
78
76 75 74 74
62 62 62 61 59
57 56 56
52 50 48
42 41
35
31
21
8,1
0,2
**Tölur frá 2017. ***Tölur
frá 2016. ***Tölur frá 2015.
Heimild: Eurostat.
*Skimun framkvæmd á árinu
eða árin tvö á undan.
Heimild: Eurostat
62%
57%
Hlutfall kvenna á aldrinum 50-69 ára
Minni þátttaka í
skimun á Íslandi
Mun fleiri fara í brjóstaskoðun í nágrannalöndunum
Ten Points
26.990 kr. 18.893 kr.
Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
30-
60%
afsláttur af
útsöluvörum
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Vonskuveður var víða um land í gær
og er áfram útlit fyrir slæmt veður á
landinu samkvæmt athugasemdum
veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Ýmis óþægindi hafa fylgt óveðrinu
en raskanir hafa orðið á flugi upp á
síðkastið og ágangur sjávar hefur
verið óvenjumikill, meðal annars á
Granda í Reykjavík.
Icelandair tilkynnti á vefsíðu sinni
í gær að gripið hefði verið til niður-
fellinga og seinkana á flugi sökum
ofsaveðurs í Keflavík. Átta flugferð-
um sem áætlaðar voru í gær var af-
lýst ásamt einu flugi sem átti að fara
í morgun. Þá urðu seinkanir á tíu
flugferðum Icelandair.
Foreldrar sóttu börn sín
Appelsínugul viðvörun var í gildi
við Breiðafjörð og á Vestfjörðum en
gul viðvörun var meðal annars á höf-
uðborgarsvæðinu. Voru foreldrar og
forráðamenn barna á svæðinu hvatt-
ir til að sækja börn sín í lok skóla eða
frístundastarfs samkvæmt tilkynn-
ingu frá skóla- og frístundasviði
Reykjavíkurborgar, deildarstjóra al-
mannavarnanefndar höfuðborgar-
svæðisins og Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins.
Sjór flæddi yfir á endurvinnslu-
stöð Sorpu í Ánanaustum í gær-
morgun vegna óheppilegrar vindátt-
ar og hárrar sjávarstöðu að því er
fram kom á mbl.is í gær. Eitthvert
tjón varð vegna flóðsins en mbl.is
hafði eftir Tryggva Ólafssyni,
rekstrarstjóra endurvinnslustöðva
Sorpu, að of snemmt væri að segja
hversu mikið tjónið væri.
„Það er fyrst og fremst að girð-
ingin brotnaði og inn á stöðina kom
snjór, sandur og grjót. Niðurföll
stífluðust og sjór flýtur út um allt.
Einnig eru smáskemmdir á húsi á
svæðinu,“ sagði hann.
Allt að 25 m/s voru á vestanverðu
landinu og nokkur éljagangur á Suð-
ur- og Vesturlandi sem og á Vest-
fjörðum en Landsnet tilkynnti á
Facebook-síðu sinni í gær að snark
og glæringar hefðu aukist verulega
vegna éls sem gekk yfir Vesturland-
ið og því hefði verið brýnt að halda
spennunni áfram lágri.
Há sjávarstaða væntanleg
Landhelgisgæslan vakti athygli á
hárri sjávarstöðu um og eftir helgi á
vef sínum í gær en stórstreymt á að
verða á sunnudaginn. Starfsmenn
Gæslunnar hvetja þá sem eiga skip
við bryggju til að hafa það í huga.
Morgunblaðið/Eggert
Austurbæjarskóli Foreldrar barna í Austurbæjarskóla sóttu börn sín í skólann vegna veðurs.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Þór Appelsínugul viðvörun var í gildi á Ísafirði í gær þar sem varðskipið Þór lá bundið.
Áfram útlit fyrir vonskuveður
Flugferðum aflýst vegna ofaveðurs
Allt á floti á endurvinnslustöð Sorpu
Morgunblaðið/Eggert
Brim Óheppileg vindátt varð m.a. til þess að sjór flæddi inn á Sorpu í gær.