Morgunblaðið - 23.01.2020, Page 2

Morgunblaðið - 23.01.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a 60+ÁBENIDORM – fáðumeira út úr fríinu meðBirgitte Bengtsson 19. apríl í 16 nætur Verð frá kr. 168.995 19. apríl í 19 nætur Verð frá kr. 188.995 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Erla María Markúsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson Borgarstjóri verður að mæta okk- ur, segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar – stéttarfélags. Á fundi í Iðnó í gær kynnti félagið hugmyndir sínar gagnvart Reykja- víkurborg í kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Gerð er krafa um að desemberuppbót hækki úr um 97 þús. kr. í rúm 380 þús. kr. í janúar 2022. Einnig að orlofsuppbót fari úr 51 þús. kr. í um 190 þús. kr. í janúar 2022. Samtals er því krafan um hækkun rúm 420 þús. kr. Samningar lausir í 10 mánuði Samningar Eflingar við borgina hafa verið lausir í tíu mánuði. Gerð nýs samnings er komin nokkuð áleiðis og á fundinum í gær upplýsti Viðar Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Eflingar, að búið væri að ganga frá mikilvægum atriðum, svo sem taxta, vinnutímastyttingu í dagvinnu og gildistíma og for- sendum samningsins. Ekki verður þó gengið til samninga fyrr en nið- urstaða úr starfi vaktavinnuhóps liggur fyrir. „Það sem eftir stendur eru raunhæfar tillögur til lausnar sem borgin getur komið með svar við,“ sagði Viðar á fundinum í gær. Eflingarfólk óskaði sérstaklega eftir því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mætti á Iðnófundinn í gær. Hann varð ekki við því, sem Sólveig Anna Jónsdóttir sagði vera sárt en fjarvera hans kom ekki á óvart. Í fílabeinsturni „Hann er bara í sínum fílabeins- turni,“ sagði Sólveig Anna í sam- tali við mbl.is og bætti við að sér þætti mikilvægt að eiga viðræður við borgarstjóra um stöðu lág- launahópa fyrir opnum tjöldum. Á hinn bóginn hefur borgarstjóri sagt að hann vilji gera allt sem í hans valdi stendur til að flýta því að samningar borgarinnar við Efl- ingu náist sem fyrst. Hann vilji þó ekki gera neitt sem grafi undan umboði samningarnefndar borg- arinnar. Alls starfa um 1.800 manns úr röðum Eflingar hjá Reykjavíkurborg, þar af um 1.000 á leikskólum. Þetta fólk greiðir nú atkvæði um verkfall og bíl frá stéttafélaginu merktur slagorð- unum Borgin er í okkar höndum er þessa dagana ekið milli vinnustaða þar sem atkvæðum greiddum utan kjörfundar er safnað saman. Kosn- ingarþátttaka þykir ágæt en verði verkfall samþykkt hefst það fyrsta 4. febrúar kl. 12.30 og stendur til miðnættis. Ef semst ekki fylgja fleiri verkföll sem frá degi til dags standa mislengi. Morgunblaðið/Eggert Formaður Mikilvægt að eiga viðræður við borgarstjóra um stöðu láglaunahópa, segir Sólveig Anna Jónsdóttir. Borgin svari raunhæfum tillögum til lausnar deilu  Efling kynnir kröfur og félagsmenn kjósa um verkfall Sigurður Bogi Sævarsson Ragnhildur Þrastardóttir Stjórn Sorpu bs. samþykkti á fundi sínum í gær að afþakka vinnuframlag Björns H. Hall- dórssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, meðan fjallað verður nánar um mál er hann varðar. Á fundinum var kynnt skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um ástæð- ur frávika á áætluðum framkvæmdakostnaði vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og móttökustöðvar í Gufunesi. „Stjórn var aldrei upplýst“ Alls fór kostnaður við byggingu stöðvarinn- ar um 1,4 milljarða kr. fram úr áætlun. Sú stað- reynd þótti tilefni til endurskoðunar og skýrsla um málið var afhent stjórn Sorpu hinn 30. des- ember sl. Framkvæmdastjóranum var 6. jan- úar sl. gefinn frestur til andmæla. Innri endurskoðun telur alvarlegan mis- brest hafa orðið í upplýsingagjöf fram- kvæmdastjóra til stjórnar þegar verkfræði- stofan Mannvit lagði fram áætlun um byggingu jarðgerðarstöðvarinnar einum mán- uði eftir að fimm ára áætlun Sorpu fyrir árin 2919-2023 var samþykkt. Þar var áætlaður kostnaður 500 milljónum kr. hærri en stjórn hafði ráðgert. „Stjórn var aldrei upplýst um hina nýju áætlun né kom hún til umfjöllunar á vettvangi hennar,“ segir í skýrslunni. „Gera ætti kröfu til þess að við stórar verk- framkvæmdir á vegum byggðasamlags í eigu sveitarfélaga væru lög um skipan opinberra framkvæmda höfð til hliðsjónar á öllum stigum verkframkvæmdar. Að mati Innri endurskoð- unar má rekja þá stöðu, sem stjórn stóð frammi fyrir í júní sl., til veikleika í áætlunar- gerð og samræmdri upplýsingagjöf um þróun kostnaðar. Rætt hefur verið um að félagsform SORPU sem byggðasamlags hafi neikvæð áhrif á möguleika kjörinna fulltrúa til að sinna eftirlitshlutverki sínu. Að mati Innri endur- skoðunar gefur byggðasamlagsformið ekki síðri möguleika til eftirlits m.a. út frá því að með gildandi fyrirkomulagi, sem kveðið er á um í eigendastefnu SORPU, hafa handhafar eigendavalds ítarlegra hlutverki að gegna en t.d. í almennu hlutafélagaformi,“ segir í endur- skoðunarskýrslunni. „Mér finnst mikilvægt að undirstrika að þessi skýrsla var gerð að frumkvæði stjórnar og hún varpar ljósi á marga þætti sem út af brugðu í þessu máli. Við munum að svo komnu máli á meðan framkvæmdastjóri hefur and- mælafrest við bréfi sem við sendum honum ekki tjá okkur um einstök atriði skýrslunnar,“ segir Birkir Jón Jónsson, stjórnarformaður Sorpu. Hann telur að efla mætti byggðasamlög á höfuðborgarsvæðinu með aukinni samvinnu eða jafnvel sameiningu. Það gæti tryggt að betur væri staðið að ráðstöfun fjármuna og fleiri mikilvægum þáttum. Misbrestir á mörgum stöðum Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir í samtali við Morgunblaðið að skýrslan varpi ljósi á lausa- tök í rekstri Reykjavíkurborgar. Ljóst sé að verkferlum hafi ekki verið fylgt í rekstri Sorpu og reyndar ýmsum fleiri málum sem upp hafa komið á síðustu misserum. „Í Sorpumálinu eru misbrestir í áætlana- gerð, upplýsingagjöf og eftirliti. Útkoman er svo sú að verkefnið fer fram úr áætlun sem nemur vel á annað milljarð króna. Þetta mál er alfarið á ábyrgð meirihlutans í Reykjavík þar sem meirihlutinn einn á fulltrúa í Sorpu. Svar hans verður svo væntanlega að draga eigi lær- dóm af málinu en það svar höfum við bara svo oft heyrt áður í sambærilegum málum. Námið er dýrkeypt og árangur lítill,“ segir Eyþór. Alvarlegir misbrestir og veikleiki  Stjórn Sorpu bs. vék í gær framkvæmdastjóra félagsins tímabundið frá störfum  Úttekt Innri endurskoðunar á stjórnarháttum og áætlunargerð gas- og jarðgerðarstöðvar kynnt í stjórn Sorpu Morgunblaðið/Frikki Sorpa Kostnaður við byggðinu gas- og jarðgerðarstöðvar fór fram úr áætlunum. Loðnutorfur fundust vestur af Kol- beinseyjarhrygg og úti við land- grunnsbrúnina að Kögurgrunni nú fyrr í vikunni í leiðangri undir for- ystu Árna Friðrikssonar, skips Haf- rannsóknastofnunar. Því til viðbótar taka Hákon EA og grænlenska skip- ið Polar Aamaroq þátt í leitinni. Skipin eru nú komin inn til Ísafjarð- ar vegna veðurs en fara vætanlega út aftur á morgun, föstudag, og þá á að leita loðnu út af Vestfjörðum alveg suður í Víkurál. „Magnið sem við fundum er ekki mikið svo vonin um að hægt sé að gefa út kvóta og hefja veiðar er ekki endilega mikil. Við skulum þó spyrja að leikslokum,“ sagði Birkir Bárðar- son fiskifræðingur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Heilmikil yfirferð „Við erum búnir að taka heilmikla yfirferð að undanförnu, alveg frá Hvalbak fyrir austan land og nú er- um við komnir vestur og erum að ljúka þessu. Förum svo aftur í febr- úar og tökum þá annan svipaðan rúnt á miðunum í kringum landið. Jú, þetta er vissulega orðið spenn- andi – en við höfum samt sem áður – svo ég segi nú alveg eins og það er – ekki séð það magn af loðnu við landið nú að undanförnu að ég geti verið sérstaklega bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Birkir. sbs@mbl.is Loðnan fannst en í litlu magni  Lítil bjartsýni um kvóta og vertíð Skýrsla Innri endurskoð- anda Reykjavíkur ein- kennist af röngum, ótraustum og samheng- islausum ályktunum. Þetta segir Björn H. Hall- dórsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, í yf- irlýsingu. Hann bendir á að endurskoðandi hafi áður sagt að miða skuli áætlanir um kostnað við fullhannað mann- virki en ekki frumkostnað, eins og oft sé raunin í opinberri umfjöllun. Þó sé slíkt gert nú, í úttekt á kostnaði við byggingu gas- og jarðgerðarstöðina. Ef kostnaður við framkvæmdir sé miðaður við stöðina fullhannaða sé hann 11,7% umfram áætl- anir, en algeng óvissuviðmið í verkefnum sem þessu sé 10-15%. „Væri því helst sanngjarnt að álykta að kostnaðaráætlanir hefðu staðist fremur vel en illa,“ segir Björn í yfirlýsingunni. RÖNG OG ÓTRAUST SKÝRSLA Björn H. Halldórsson Segir áætlanir hafa staðist vel

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.