Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 36

Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 AFP Faraldur Sóttvarnagrímur eru nú algeng sjón í Kína vegna faraldursins en 17 manns hafa látist af völdum hans. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kínversk stjórnvöld vöruðu við því í gær að kórónaveiran, sem valdið hef- ur faraldri í Kína, gæti tekið stökk- breytingum og dreifst víðar. Sögðu yfirvöld brýnt að fólk héldi sig fjarri Wuhan, borginni þar sem veikin kom upp. Fyrsta tilfelli veirunnar í Bandaríkjunum fannst í fyrrakvöld, og verður öllum flugferðum frá Wuhan til Bandaríkjanna beint til fimm flugvalla þar sem hægt er að greina líkamshita farþega. Kínversk heilbrigðisyfirvöld kynntu jafnframt í gær aðgerðir til þess að reyna að halda útbreiðslu sjúkdómsins niðri. Þar á meðal á að taka upp sótthreinsun á flugvöllum og rútumiðstöðvum, og einnig í flug- vélum og innan í lestum. Búið er að aflýsa stórum viðburð- um í Wuhan-borg, og hafa landsleik- ir í undankeppni Ólympíuleikanna í kvennaknattspyrnu, sem áttu að fara þar fram, verið færðir til Nanj- ing. Gestum til Kína hefur verið sagt að forðast borgina, og íbúum hennar, sem eru um 11 milljónir, hefur verið ráðlagt að yfirgefa ekki miðborg hennar. Zhou Xianwang, borgar- stjóri Wuhan, sagðist í gær ráð- leggja fólki að koma ekki til borg- arinnar nema það væri í algjörlega nauðsynlegum erindagjörðum. Þá hefur gestum í nokkrum hópferðum sem komu til borgarinnar verið meinað að yfirgefa hana um stund- arsakir vegna faraldursins. Óttast frekari útbreiðslu Sjúkdómurinn leggst á öndunar- færi fólks. Li Bin, aðstoðarheilbrigð- isráðherra í Kína, sagði á blaða- mannafundi sínum í Peking í gær að sá möguleiki væri til staðar að veiran gæti stökkbreyst þannig að hún ætti auðveldara með að fara á milli manna. Meira en 500 manns hafa nú sýkst í Kína og hafa flest tilfellin komið upp í Wuhan. Í máli Li kom fram að 1.394 manns væru enn undir lækn- ishendi vegna gruns um að þeir hefðu smitast. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hélt neyðarfund í gær, þar sem rætt var hvort lýsa ætti yfir al- þjóðlegu neyðarástandi vegna sjúk- dómsins, en hans hefur nú orðið vart í Kína, Bandaríkjunum, Taívan, Taí- landi, Japan, Suður-Kóreu og Makau. Þá lýstu yfirvöld í Hong Kong því yfir í gær að grunur léki á að fyrsta tilfellið hefði uppgötvast í borginni, en það mun ekki fást end- anlega staðfest fyrr en í dag. Versluðu með villidýrahræ Kínversk stjórnvöld hafa flokkað faraldurinn á sama hættustig og SARS-faraldurinn á sínum tíma. Þeir sem greinast með veikina eru settir í einangrun og hafa yfirvöld heimild til að setja upp sóttkví ef þörf krefur. Hins vegar hefur enn ekki verið komist að því hvaðan veiran, sem fengið hefur fræðiheitið 2019-nCoV, kom nákvæmlega, að öðru leyti en að fyrstu tilfellin hafa verið rakin til götumarkaðar í Wuhan, sem opin- berlega var sagður selja sjávarfang. Verðlisti frá markaðnum gengur hins vegar nú manna á milli á kín- verskum samfélagsmiðlum, en þar má sjá að verslað hefur verið með bæði lifandi og dauð landspendýr þar. Mun hafa verið hægt að kaupa þar lifandi refi, krókódíla, yrðlinga og rottur. Þá var einnig boðið upp á svonefnda desketti eða þefketti, en þeir voru taldir hafa stuðlað að SARS-faraldrinum á sínum tíma. Kínversk stjórnvöld bönnuðu alla verslun með villt dýr í kjölfar SARS- faraldursins, og segja kínversk sótt- varnayfirvöld ljóst að veiran hafi fyrst komið upp á markaðnum í Wuhan þar sem hin ólöglega verslun fór fram. Fleiri taka upp eftirlit Sífellt fleiri ríki bætast í hóp þeirra sem hafa tekið upp eftirlit með farþegum sem koma frá Wuhan og nálægum héruðum í Kína. Þannig tilkynntu stjórnvöld á Bretlandi og á Ítalíu í gær að þau hygðust rannsaka farþega frá Wuhan. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu að maðurinn sem þar greindist með veiruna væri nú undir eftirliti, en hann væri ekki alvarlega veikur. Maðurinn, sem búsettur er í ná- grenni Seattle, var á ferðalagi um Wuhan og kom til Bandaríkjanna tveimur dögum áður en farið var að skima eftir veikinni á flugvöllum. Gaf hann sig sjálfur fram við heilbrigðis- yfirvöld. Óttast að veiran stökkbreytist  Sautján látist af völdum kórónaveirunnar  Fyrsta tilfellið komið upp í Banda- ríkjunum  Bretar og Ítalir hefja eftirlit á flugvöllum með farþegum frá Wuhan Kórónaveiran » Staðfest var í gær að 17 hefðu látist af völdum veirunnar. » Meira en 500 manns hafa nú smitast af lungnabólgu vegna hennar. Óháðir sérfræð- ingar í mannrétt- indamálum á vegum Samein- uðu þjóðanna til- kynntu í gær að þeir hefðu fengið upplýsingar um að brotist hefði verið í síma Jeffs Bezos, eiganda verslunarsíð- unnar Amazon, í maí 2018 úr snjall- símaforriti, sem skráð væri á Mo- hammad bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu. Sögðu sérfræðingarnir á blaða- mannafundi sínum í Genf að upp- lýsingarnar krefðust þess að rann- sakað yrði þegar í stað hvað væri hæft í þeim, en slík rannsókn myndi kalla á aðgang að síma krónprins- ins. Sendiráð Sádi-Arabíu í Banda- ríkjunum vísaði ásökununum til föðurhúsanna og sagði að þær væru „fráleitar með öllu“. Vilja rannsaka síma bin Salmans vegna gruns um tölvuglæp Jeff Bezos SVISS Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Mikill hiti í umræðum um ákæru Demókratar á Bandaríkjaþingi hófu í gær munn- legan málflutning í réttarhöldunum gegn Donald Trump Banda- ríkjaforseta, sem nú fara fram í öldungadeild þingsins. Þing- menn flokkanna tveggja fóru í hár saman í fyrrinótt og spruttu upp heitar umræður um þær reglur sem Mitch McConnell, leiðtogi repúblik- ana í deildinni, lagði til að yrðu sett- ar til grundvallar réttarhöldunum, en demókratar höfðu sagt þær miða að því að hylma yfir embættisafglöp Trumps. Umræðurnar stóðu yfir í þrettán klukkutíma, en þeim lauk með at- kvæðagreiðslum sem fóru nær alfar- ið eftir flokkslínum, en repúblikanar hafa 53 þingsæti af 100 í öldunga- deildinni. Málflutningur demókrata mun nú standa yfir fram til næst- komandi föstudags áður en verj- endur taka til máls. Mitch McConnell  Atkvæði féllu nær öll eftir flokkslínum Luigi Di Maio, utanríkis- ráðherra Ítalíu og formaður Fimmstjörnu- hreyfingarinnar, tilkynnti í gær að hann hygðist segja af sér for- mennsku í flokknum. Talið er að af- sögnin tengist héraðskosningum sem haldnar verða á sunnudaginn, en skoðanakannanir benda til þess að hreyfingin muni þar gjalda af- hroð, á sama tíma og Bandalagið, sem áður sat í stjórn með Fimm- stjörnuhreyfingunni, hefur bætt við sig miklu fylgi. Fimmstjörnuhreyf- ingin situr nú í ríkisstjórn með sósí- aldemókrötum, en bandalag flokk- anna þykir óstöðugt. Gert var ráð fyrir að Di Maio yrði áfram utan- ríkisráðherra, a.m.k. um sinn. ÍTALÍA Luigi Di Maio segir af sér formennsku Luigi Di Maio

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.