Morgunblaðið - 23.01.2020, Page 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
SNJALLTÆKJA
VIÐGERÐIR
allar tegundir
síma, spjaldtölva
og Apple tölva
MI 9T 64GB
Verð: 61.990 kr.
MI A3 64GB
Verð: 35.990 kr.
REDMI 7A 32GB
Verð: 19.990 kr.
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
MI HOME ÖRYGGIS
MYNDAVÉL 360°
Verð: 9.990 kr.
SNJALLSÍMAR
SNJALLHEIMILIÐ fleiri vörur á smartfix.is
AMAZFIT GTR 47/42MMÚR
Verð: 34.990 kr. / 33.990 kr.
QICYCLE RAFMAGNSHJÓL
Verð: 149.990 kr.
45 KM
DRÆGNI
MI ROBOT RYKSUGA
Verð: 49.990 kr.
Í liðinni viku birtist í
ViðskiptaMogganum
viðtal sem var með
hreinum ólíkindum.
Þar var rætt við Guð-
rúnu Jóhannsdóttur,
sem kennd er við versl-
unina Kokku á Lauga-
vegi, en hún er jafn-
framt formaður
Miðborgarinnar okkar.
Þar heggur sá er hlífa
skyldi en í viðtalinu ræðst Guðrún
með offorsi á fjölda kaupmanna,
raunar afgerandi meirihluta kaup-
manna við Laugaveg, Skólavörðustíg
og Bankastræti, og gerir lítið úr ára-
langri baráttu þeirra gegn lokunum
gatna sem hafa stórskaðað rekstur og
valdið því að mikill fjöldi verslana og
veitingahúsa hefur lagt upp laupana
ellegar flust annað þar sem aðgengi
er gott og næg bílastæði.
Í viðtalinu kemur fram að Guðrún
álítur mótmæli afgerandi meirihluta
rekstraraðila gegn götulokunum sem
„reglulegar upphrópanir örfárra
kaupmanna“. Konu sem ber titilinn
formaður Miðborgarinnar okkar
stæði nær að hlusta á raddir megin-
þorra kaupmanna sem hafa tekið af-
gerandi afstöðu gegn götulokunum.
Málflutningur Guðrúnar er sem
endurómur úr Ráðhúsi Reykjavíkur
þar sem tekin hefur verið einarðleg
afstaða gegn kaupmönnum í mið-
bænum og rekstri þeirra.
Í grein Guðrúnar kemur fram að
60 nýir aðilar hafi nýverið tekið til
starfa á svæðinu. Þessir 60 aðilar eru
hvorki við Laugaveg né Skólavörðu-
stíg. Þarna er farið með hrein ósann-
indi. Hér er í engu getið þeirra sem
hætt hafa starfsemi á síðasta ári eða
flutt sig annað. Okkur
langar að beina orðum
beint að Guðrúnu:
Veistu hversu margir
rekstraraðilar hurfu af
svæðinu á síðasta ári?
Voru þeir 70 eða 100?
Jafnvel fleiri? Nei, þú
kýst að geta þeirra í
engu. Væntanlega
vegna þess að það hent-
ar ekki málstað borg-
aryfirvalda.
Á fyrstu þremur
mánuðum síðasta árs stóð Miðbæjar-
félagið í Reykjavík (ekki það sama og
Miðborgin okkar) fyrir undir-
skriftasöfnun þar sem lokunum gatna
var mótmælt. Undir listana rituðu
247 rekstaraðilar af Laugavegi.
Bankastræti, Skólavörðustíg og allra
næsta nágrenni, eða rúmlega 90%
þeirra sem tóku afstöðu. Afgerandi
meirihluti er gegn götulokunum. Af
þessum 247 aðilum sem skrifuðu und-
ir eru yfir 40 horfnir á innan við einu
ári ásamt nokkrum sem skrifuðu ekki
undir. Hversu margir skyldu enn
vera hér starfandi ef á okkur hefði
verið hlustað og látið af lokunum
gatna?
Þar sem niðurstaða undirskrifta-
söfnunarinnar var hvorki þér né
borgaryfirvöldum að skapi beittir þú
þér fyrir því að Miðborgin okkar léti
gera sína eigin könnun. Til þess að
gefa þeirri könnun aukið vægi voru
Samtök verslunar og þjónustu fengin
í samstarf. Nú skyldi þessi háværi
„minnihluti“ fá það óþvegið! Zenter-
rannsóknir voru fengnar til verksins
og könnunin stóð yfir frá 9. maí til 7.
júní.
Niðurstöðurnar voru algjörlega á
skjön við það sem stjórnendur borg-
arinnar og þín samtök höfðu vænst og
var niðurstaðan í takt við okkar könn-
un. Afgerandi meirihluti rekstrar-
aðila leggst gegn götulokunum í
heildina. Aðeins rekstrarðilar á Hafn-
artorgi, í Kvosinni og á Granda vilja
göngugötur. Ætli þeir vilji láta loka
götum fyrir framan hjá sér – eða vilja
þeir bara loka götum annars staðar?
Ekki urðum við mikið vör við að
niðurstöður þessarar könnunar væru
kynntar opinberlega enda hvorki þér
né borgaryfirvöldum að skapi. Ætlar
Miðborgin okkar ekki að taka mark á
niðurstöðunni? Til hvers var eig-
inlega farið út í gerð þessarar könn-
unar? Hvers konar stjórn er þetta hjá
Miðborginni okkar sem hunsar vilja
þeirra sem þeir segjast vera að vinna
fyrir? Eru það hagsmunir stjórnenda
Reykjavíkurborgar sem þið eruð að
gæta?
Hvernig getur svona stjórn og for-
maður Miðborgarinnar okkar starfað
í andstöðu við afgerandi vilja
rekstraraðila?
Já, við bara spyrjum!
Grein þessi er skrifuð fyrir hönd
eftirtalinna fyrirtækja:
Ertu ekki að gleyma einhverju, Guðrún í Kokku?
» Afgerandi meirihluti
er gegn götulok-
unum. Af þessum 247
aðilum sem skrifuðu
undir eru yfir 40 horfnir
á innan við einu ári
ásamt nokkrum sem
skrifuðu ekki undir.
Morgunblaðið/Eggert
Nokkrar niðurstöður úr könnun Miðborgarinnar okkar og Samtaka verslunar og þjónustu. Ítrekað skal að könn-
unin er Miðbæjarfélagi Reykjavíkur algjörlega óviðkomandi.
Eftir Bolla
Kristinsson
Bolli Kristinsson
Verslunin Brynja
Herrafataverslun
Guðsteins
Gleraugnamiðstöðin
Vinnufatabúðin
Kós leður
Dún og fiður
Dimmalimm
Litla jólabúðin
Litla gjafavörubúðin
Gull og silfur
Jón og Óskar
Stella
Gullkúnst Helgu
Ófeigur skartgripir
Hárskeri almúgans
Vitinn
Mónakó
Gleraugnasalan L-65
Rossopomodoro
Íslandsapótek,
Stefán Bogi, Metal
design
Anna María Design