Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 47

Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 ✝ Elísabet Á.Möller fæddist í Vestmannaeyjum 4. mars 1930. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Mörk 10. jan- úar 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Árni Sigfússon útgerðar- maður í Vest- mannaeyjum, f. 31.7. 1887, d. 7.3. 1948, og Ólafía Sigríður Árna- dóttir frá Gerðum í Garði, f. 8.5. 1895, d. 15.3. 1962 í Reykjavík. Seinni eiginmaður Ólafíu var séra Þórður Oddgeirsson, f. 1883, d. 1966. Systkini Elísabet- ar voru: Jón Árni, f. 1916, d. 1970, Ragnheiður Á. Rogich, f. 1918, d. 1999, Guðni Hjörtur, f. 1920, d. 1965, Elín, f. 1927, d. 2003. Elísabet giftist 16.3. 1951 Jó- hanni G. Möller, skrifstofustjóra OJ&Kaaber, f. 7.2. 1920, d. 26.2. 2011. Foreldrar hans voru Willi- am Tómas Möller símstöðvar- stjóri í Stykkishólmi, f. 1885, d. 1961, og Kristín Elísabet Sveins- dóttir, f. 1979, d. 1926. Systkini Jóhanns voru Guðrún Sveina Möller, Óttarr Möller, Agnar Möller og Kristín Möller sem öll eru látin og William Thomas urðar Friðrikssonar, f. 1979, er Jóhann Georg Jónsson, f. 2005. Börn Helgu og seinni eig- inmanns, Péturs Ormslev, f. 1958, eru Gunnar Ormslev, f. 1987, og Elísabet Ormslev, f. 1993. Elísabet ólst upp í Vestmanna- eyjum til 16 ára aldurs en fór í vist til móðursystur sinnar í Keflavík, eftir að faðir hennar varð fyrir fjárhagslegum áföll- um. Hann lést síðan 1948 í flug- slysi á Hellisheiði. Elísabet vann svo á Skattstofunni í Reykjavík fram að giftingu. Þau hjónin voru útivistarfólk, bridgespilarar, stunduðu lax- veiði, skíði og ekki síst golf. El- ísabet varð klúbbmeistari GR og Íslandsmeistari kvenna í golfi árið 1969. Þau Jóhann tóku virk- an þátt í starfi Golfklúbbs Reykjavíkur og Nesklúbbsins. Jafnframt ruddu þau eigin hendi 6 holu golfvöll á sjávarbakk- anum við Kotið þeirra í Stað- arhverfi sem varð vísirinn að Húsatóftarvelli og stofnun Golf- klúbbs Grindavíkur þar sem þau voru heiðursfélagar. Elísabet tók lengi virkan þátt í starfi kvenfélagsins Hringsins. Hún starfaði á efri árum sem fram- kvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands og vann þar að ýmsum framfaramálum fyrir félagið. Útför Elísabetar fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 23. janúar 2020, klukkan 13. Möller. Þau bjuggu fyrst að Mávahlíð 36, síðan að Sporða- grunni 13 í Reykja- vík og að lokum að Naustahlein 20 í Garðabæ. Eftir andlát Jóhanns flutti Elísabet á Dalbraut 14 í Reykjavík. Börn Elísabetar og Jóhanns eru: 1) Árni Möller, fv. skrifstofustjóri og bóndi, f. 18.1. 1952 í Reykja- vík. Eiginkona hans er Signý Pálsdóttir, f. 1950. Synir Árna og fyrri eiginkonu hans Haf- rúnar Kristjánsdóttur, f. 1954, eru tveir: Jóhann Möller, f. 1975, maki Anchana Meenoi, dóttir Su- pattra Meenoi, og Eiður Á. Möll- er, f. 1981. Börn Signýjar og fyrri eiginmanns hennar, Ólafs H. Torfasonar, f. 1947, d. 2017, eru Melkorka Tekla, f. 1970, Torfi Frans, f. 1975, og Guðrún Jóhanna, f. 1977. Barnabörn þeirra eru fimm. 2) Helga Möll- er, söngkona og flugfreyja f. 12.5. 1957 í Reykjavík. Sambýlis- maður Hafliði Halldórsson. Barn Helgu og fyrri eiginmanns, Jó- hanns Tómassonar, f. 1957, er Maggý Helga Jóhannsdóttir f. 1979. Sonur hennar og Jóns Sig- Eftir andlát Elísabetar hef ég farið yfir myndasafn þeirra hjóna, einkum með augastað á henni sem bar gælunafnið Dúddí. Myndirnar staðfesta margt sem hún hefur sagt mér úr lífi sínu. Augað grípur gullfallega ferm- ingarstúlku með þykkt og dökkt liðað hár, þar sem hún situr bros- andi í hvítum blúndukjól á sjáv- arbakka í Vestmannaeyjum með Elliðaey og Eyjafjallajökul í bak- sýn. Lífið blasir við henni, hún er námshestur og stefnir á Mennta- skólann í Reykjavík. En örlögin gripu í taumana þegar útgerðar- maðurinn faðir hennar varð fyrir miklu fjárhagstjóni og lést síðan voveiflega í flugslysi. Á næstu mynd sést hún 16 ára gömul við jólaborðið hjá Eiríku móðursyst- ur sinni í Keflavík þar sem hún er komin í vist á góðu heimili sem hún annast á meðan húsbændur sinna miklu félagslífi. Á næstu myndum er hún komin til Reykjavíkur, alltaf jafn falleg og vel klædd eins og sjá má á mynd sem hún hefur skrifað aftan á „Skvísurnar á Skattstofunni“. Þar vann hún þar til hún giftist 21 árs glæsimenninu Jóhanni G. Möller sem var 10 árum eldri. Og við tók heimilishald og barnsfæð- ingar, sem gengu reyndar ekki áfallalaust, en Árni og Helga komust á legg og urðu augastein- ar foreldranna. Myndirnar sýna líka námsmeyjar í Húsmæðra- skólanum á Laugarvatni, glæsi- leg boð á heimili þeirra Jóhanns, útilegur, laxveiðar við Hítará, bridgespil, sumarbústaðinn Kot- ið og síðast en ekki síst golfið. El- ísabet hóf golfiðkun á eftir Jó- hanni, en náði skjótt svo miklum árangri að hún hampaði fjölda bikara, bæði hjá Nesklúbbnum, Golfklúbbi Reykjavíkur og sem Íslandsmeistari kvenna. Hún var samt ekkert að stæra sig af þessu, faldi bikarana úti í bílskúr og sagði þetta bara hafa verið verkefni eins og hvað annað sem hún vildi sinna sem best. En þannig var hún, hógvær og ein- stakur dugnaðarforkur. Líkam- inn fann ætíð fyrir afleiðingum grjótburðar af sjávarbakkanum við Kotið þeirra í Staðarhverfi sem varð vísirinn að Húsatóftar- velli og stofnun Golfklúbbs Grindavíkur. Hún brann fyrir starf sitt við Geðvernd þar sem hún vann á seinni hluta ævinnar. Mér var hún einstaklega góð tengdamóðir þá tæpu þrjá ára- tugi sem leiðir okkar lágu saman. Það var alltaf mikil reisn yfir El- ísabetu og ég bar of mikla virð- ingu fyrir henni til að ávarpa hana með gælunafni. Hún var bráðgreind, ótrúlegur lestrar- hestur bæði á íslensku, ensku og dönsku, gjafmild með afbrigðum, og stolt af eiginmanni, ættingjum og ekki síst afkomendum sínum. Það þarf ekki að orðlengja gest- risnina, fegurð heimilisins og hversu fullkomin húsmóðir hún var, en þar miðlaði hún ýmsu til tengdadótturinnar. Mér fannst alltaf gaman að spjalla við hana og hún átti til að vera skemmti- lega afdráttarlaus í afstöðu sinni til manna og málefna. Alltaf hélt hún reisn sinni þótt af henni drægi og var glæsileg fram að andlátsstund. Starfsfólk hjúkr- unarheimilisins Markar sinnti henni af mikilli alúð. Hún elskaði Jóhann sinn heitt og var farin að þrá að hitta hann aftur. Blessuð sé minning hennar og þeirra Jó- hanns beggja. Ég kveð hana með kærleika og þakklæti. Signý Pálsdóttir. Elsku amma mín hefur yfir- gefið þennan heim og sit ég hér eftir með allar minningarnar mínar um hana. Ég eyddi löngum stundum á heimili ömmu og afa í Sporðagrunni. Lengi vel var ég eina ömmustelpan og fékk óskipta athygli þeirra beggja. Ég fékk að sitja uppi á eldhúsbekkn- um á meðan amma eldaði og fékk að taka þátt í matseldinni. Ég var svo heppin að fá að fara með ömmu og afa í Kotið og þar naut ég mín til hins ýtrasta. Amma kenndi mér allt um garðyrkju og enn þann dag í dag man ég nöfnin á öllum plöntunum sem uxu suð- ur með sjó. Amma átti ekki alltaf auðvelt líf en aldrei heyrðist hún kvarta. Amma var sterk og ákveðin og þrjósk. Allt þetta eru kostir sem ég vona að ég geti tileinkað mér í mínu eigin lífi. Ég kveð ömmu mína með söknuði og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar. Dagleiðin erfið er, óvíst hvert stefna ber, leið mig langa vegu mjúka mildings höndin þín. Sest ég við sólarlag, sátt er við liðinn dag, svæfir mig svefni værum mjúka mildings höndin þín. (Eygló Eyjólfsdóttir) Þín ömmustelpa, Maggý Helga. Elísabet Á. Möllerblómstrað og orðið að alvöruhagsmunasamtökum og fyrir það geta stúdentar við HA verið afar þakklátir. Þegar skrifstofur náms- og starfsráðgjafar fluttu urðum við nágrannakonur og í kjölfarið urðu samskipti okkar tíðari og óform- legri. Ég hikaði ekki við að rölta yfir til Sólveigar til þess að spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar. Það var alltaf gott og gagnlegt að bera undir hana hinar ýmsu vangaveltur, ákvarðanir og skoðanir. Hún hlustaði vel, ræddi málin, var hreinskilin og gaf oftar en ekki bestu ráðin. Vegna stað- setningar skrifstofu SHA átti nafna oft leið framhjá og það var notalegt að heyra í upphafi hvers morguns, „góðan daginn, nafna mín“. Ég sakna þessarar ljúfu morgunkveðju ásamt raulinu og söngnum sem lýsti upp daginn. Hún stoppaði gjarnan í dyragætt- inni, ýmist til þess að spyrja frétta eða til þess að pústa smá. Að því loknu sögðum við alltaf „jæja, áfram gakk“. Á erfiðum dögum var líka einstaklega gott að rölta yfir til nöfnu, setjast í stólinn og létta aðeins á sér með kaffibolla í hönd. Við þær aðstæður var eins og alltaf hlustað vel og gefin ein- læg ráð. Jafnvel tekið utan um mann og stappað í mann stálinu. Eftir slíkar stundir gat ég óhikað haldið áfram með daginn, bros- andi og upprétt. Elsku nafna mín, takk fyrir ein- stök kynni og öll samtölin, þau eru mér afar dýrmæt og gáfu mér mikið. Ég lofa þér því að halda áfram og bera höfuðið hátt, vera ætíð samkvæm sjálfri mér og staðföst, bjartsýn og jákvæð. Ég minnist þín með hlýju og þakk- læti, þú verður mér alltaf kær um ókomna tíð. Orra vini mínum og fjölskyld- unni allri sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Sólveig María Árnadóttir, formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri. Komið er að kveðjustund, okk- ar ástkæra samstarfskona Sól- veig Hrafnsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar náms- og starfsráð- gjafar við Háskólann á Akureyri, er fallin frá og skilur eftir sig stórt skarð í okkar einingu og hjörtum. Sólveig var fyrsti náms- og starfsráðgjafi HA og starfaði óslitið við skólann frá árinu 1995 og allt til dauðadags. Hún gegndi þeirri stöðu ein síns liðs í 22 ár og byggði starfsemina upp frá grunni, ásamt því að sitja í ýmsum nefndum og sinna óteljandi verk- efnum innan skólans. Þegar við hófum að starfa með henni varð okkur ljóst hvílíkur dugnaðar- forkur hún var. Hún var mikill eldhugi, með ómældan drifkraft og óhrædd við hvers lags áskor- anir. Hún hugsaði og vann hraðar en flestir. Sólveig fylgdist með nýjungum og átti gott samstarf við ráðgjafa og fræðimenn í háskólum hér- lendis og ekki síður erlendis, enda hafði hún myndað töluvert tengsl- anet við háskóla víða um heim. Fagþekking og framsýni hennar nýttist nemendum vel þegar nám skólans þróaðist yfir í sveigjan- legra form, hún vatt sér í að hanna hin ýmsu námstækni- og próf- kvíðanámskeið í vefútgáfum og var líklega frumkvöðull í rafrænni þjónustu á því sviði í námsráðgjöf hérlendis. Einnig hannaði hún og stýrði verkefninu Námstuð, sem ætlað var fyrsta árs nemendum til stuðnings og til að sporna við brottfalli. Jafnt aðgengi að námi og ráðgjöf var henni hugleikið og vann hún ötult starf með jafnrétti og réttlæti að leiðarljósi. Fyrst og fremst sinnti hún þó hefðbundinni náms- og starfsráð- gjöf og bar hag nemenda ávallt fyrir brjósti. Hún bjó yfir miklum baráttuanda og var drifin áfram af seiglu sem sennilega var henni í blóð borin. Þeir mannkostir hjálp- uðu henni í erfiðum veikindum sem hún tókst á við af einstökum styrk. Elsku Sólveig, nú sitjum við hér tvær í musterinu þínu sem þú byggðir upp í aldarfjórðung af miklum metnaði fyrir nemendur. Fyrst og síðast erum við þakklát- ar fyrir samstarfið og að hafa kynnst þér sem manneskju, feng- ið að ganga þennan spöl með þér í gleði og gráti, baráttu, sorgum og sigrum. Þú varst óspör að gefa af þér, full af visku og fróðleik og sagðir okkur sögur á þinn ein- staka hátt, en nú verða þær því miður ekki fleiri. Nú syngur þú með fallegu gyðjunum þínum í Sumarlandinu, þú syngur einnig áfram í hjörtum okkar allra sem fengum að kynnast þér. Hver lítil stjarna, sem lýsir og hrapar, er ljóð sem himininn sjálfur skapar. Hvert lítið blóm, sem ljósinu safnar, er ljóð um kjarnann, sem vex og dafnar. Hvert lítið orð, sem lífinu fagnar, er ljóð við sönginn sem aldrei þagnar. (Davíð Stefánsson) Elsku Kiddi, Sindri og Orri, missir ykkar er mikill. Megi hlýj- ar minningar um einstaka konu styrkja ykkur í sorginni. Við vott- um ykkur, fjölskyldu og vinum okkar dýpstu samúð. Árný Þóra Ármannsdóttir og Ólína Freysteinsdóttir, Miðstöð náms- og starfs- ráðgjafar HA. Fyrir nokkrum árum stofnuðu átta konur á Akureyri klúbb sem þær nefndu Lessystur. Einu sinni í mánuði á veturna hittust þær á heimilum hver annarrar, snæddu saman kvöldverð, ræddu um bæk- ur og nutu dýrmætra samvista. Flestar höfðu þær líkan bak- grunn, voru eða höfðu verið kenn- arar á ýmsum skólastigum, og jafnvel unnið saman um lengri tíma. Aðrar þekktust ekkert – en þrátt fyrir það varð til afar sam- heldinn hópur þar sem trúnaður ríkti og allir fengu að blómstra. Í dag kveðjum við eina af okkar kæru systrum, Sólveigu Hrafns- dóttur. Hún var sterkur persónu- leiki, hæfileikarík og hreinskiptin. Eftir að alvarlegt mein fannst hjá henni fyrir rúmum tveimur árum leyfði hún okkur, eins og öðrum vinum sínum, að fylgjast með framvindu sjúkdómsins. Hún mætti honum af miklum kjarki og raunsæi, ákveðin í að njóta hverr- ar stundar sem gafst. Sólveig bjó líka yfir ýmsu sem styrkti hana í baráttunni. Hún sótti í arfleifð og kraft kvenna langt aftur í aldir og lét viðteknar venjur samfélagsins ekki stjórna lífi sínu. Og svo átti hún sterkan bakhjarl í eiginmanni sínum og besta vini. Ég man þegar ég fyrst kom inn á heimili Sólveigar og Kristjáns. Á köldu vetrarkvöldi var þar hlýtt og notalegt – og húsið angaði af sterku kryddi. Húsbóndinn hafði eldað kvöldverð fyrir kvennahóp- inn. Og þegar bókmenntaumræð- an hófst fengum við að vita að þau höfðu lesið ljóð úr nýrri bók hvort fyrir annað. Sólveig var sérstak- lega handgengin ljóðum og söng- textum og hafði sterka tilfinningu fyrir takti háttbundins kveðskap- ar. Þetta tengdist svo aftur tón- listarhæfileikum hennar sem birt- ust í fagurri söngrödd. Ekki þótti henni heldur verra ef húmor var með í skáldskapnum. Samvinna þeirra Kristjáns og Sólveigar, sem birtist þetta kvöld, varð síðar grunnurinn að óbilandi samstöðu þeirra á erfiðum tímum og því hvernig þau náðu að nýta tíma sinn til uppbyggilegrar sam- veru heima og erlendis. Sólveigar verður sárt saknað í hópnum okkar. Við þökkum hverja stund með henni og minn- ingar um hlýtt faðmlag, blik í auga og dillandi hlátur munu lifa. Söngur Sólveigar mun einnig áfram verma hjörtu þeirra sem hana syrgja. Við vottum Kristjáni, Sindra, Orra og fjölskyldum þeirra samúð okkar og biðjum þeim blessunar. F.h. Lessystra, Svanfríður Larsen. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hluttekningu og alúð við andlát ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, ÓLAFAR EINARSDÓTTUR hárgreiðslumeistara, Engjaseli 52, sem lést á Landspítala í Fossvogi 13. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B2 í Fossvogi, sem annaðist hana á dánardegi. Bogi Þórðarson Þórður Birgir Bogason Tinna Björk Baldvinsdóttir Einar Þór Bogason Jana Friðfinnsdóttir Aron Baldvin, Dara Sóllilja, Stígur Diljan, Snæfríður Eva, Tandri og Ýrr Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RUTH ERLA ÁRMANNSDÓTTIR, Laufásvegi 11, lést föstudaginn 20. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Margrét Þórðardóttir Halldóra Lydía Þórðardóttir Steindór Gunnlaugsson og fjölskyldur Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.