Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 61

Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 61
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Yngstur Haukur Þrastarson, yngsti leik- maður Íslands á EM, skýtur að marki Svíanna í leiknum í Malmö í gærkvöld. ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 Þessa dagana er mikið rætt um hvort fjölga eigi liðum og leikjum í úrvalsdeild karla í fót- bolta, og lengja tímabilið úr fimm mánuðum í sex til sjö. Jafnvel átta. Flestir virðast sammála um að leikjunum þurfi að fjölga og tímabilið verði að lengja og í til- lögu sem Skagamenn leggja fyrir ársþing KSÍ í næsta mánuði er lagt til að liðum verði fjölgað úr tólf í sextán í tveimur áföngum, þannig að þau verði 14 árið 2021 og 16 árið 2022. Það þýðir að hvert lið myndi spila 26 leiki í deildinni á næsta ári og 30 leiki frá og með 2023, í stað 22 eins og það hefur verið frá árinu 2008 þegar liðum var síðast fjölgað, úr tíu í tólf. Þá er gert ráð fyrir 14 liða B-deild frá 2023. Sitt sýnist hverjum eins og við er að búast og helstu efa- semdirnar í þessu snúa að því hvort næg gæði verði til staðar ef liðin verða fjórtán eða sextán og hvort of margir leikir veki minni áhuga en æskilegt væri. Viðbúið er til dæmis að ef átta leikir eru spilaðir í einni um- ferð, jafnvel á sama deginum, þá verði umfjöllun fjölmiðla um suma þeirra frekar takmörkuð. Mikil fjölgun leikja þýðir að mótið þyrfti að hefjast í mars og svo virðist sem flestallir séu til- búnir til þess. Samt hafa ekki öll félögin aðstöðu til að spila heimaleiki á þeim árstíma. En væri ekki nær að halda óbreyttum fjölda liða, vera áfram með tólf lið, og tvískipta frekar deildinni að loknum hefð- bundnum 22 umferðum? Efri sex liðin myndu spila inn- byrðis á lokakaflanum, einfalda umferð, eða fimm leiki hvert, og sama væri með neðri sex liðin. Þá myndi hvert lið spila 27 leiki og mikið meira yrði um hálfgerða úrslitaleiki í lokaumferðunum, bæði á toppi og botni. Ef þetta reynist vel og auðvelt verður að bæta við leikjum og lengja tímabilið enn frekar væri hægt að hafa þessa úrslita- umferð tvöfalda og fara upp í 32 leiki á lið. Þetta fyrirkomulag er fyrir hendi víða í Evrópu og virð- ist hafa reynst ágætlega. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Norðmenn koma á fljúgandi sigl- ingu inn í undanúrslit Evrópumóts karla í handknattleik. Milliriðlunum lauk í gærkvöld, þrjú lið frá Malmö og þrjú frá Vínarborg fara í dag til Stokkhólms til að spila um sex efstu sætin á mótinu en hin sex sem kom- ust í milliriðlana halda heimleiðis. Norðmenn eru einir með fullt hús stiga eftir bæði riðlakeppnina og milliriðilinn. Þeir unnu alla sjö leiki sína, síðast Slóveníu 33:30 í Malmö í gær, í leik þar sem bæði lið hvíldu marga lykilmenn. Sander Sagosen, Kristian Björnsen og Christian O’Sullivan komu lítið sem ekkert við sögu hjá norska liðinu og sama var að segja um Dean Bombac og Jure Dolenec hjá Slóvenum. Norðmenn voru komnir áfram eft- ir leiki þriðjudagsins og Slóvenar voru öruggir með undanúrslitasæti eftir að Portúgal hafði unnið Ung- verjaland á mjög sannfærandi hátt, 34:26, í fyrsta leik dagsins í Malmö. Norska liðið mætir nú Króatíu í undanúrslitunum í Stokkhólmi ann- að kvöld. Króatar og Spánverjar gerðu jafntefli, 22:22, í lokaumferð milliriðilsins í Vínarborg í gær og enduðu þar með efst, jöfn og tap- laus. Spánn vann riðilinn á betri markatölu og mætir því Slóvenum í fyrri undanúrslitaleik morgundags- ins í sænsku höfuðborginni. Það sama var uppi á teningunum hjá Spánverjum og Króötum og hin- um tveimur, kraftarnir voru spar- aðir fyrir undanúrslitin. Igor Kara- cic fór á kostum með króatíska liðinu og skoraði 10 mörk en miðju- maðurinn snjalli Luka Cindric var hvíldur vegna meiðsla. Alex Dujs- hebaev skoraði sex mörk fyrir Spán- verja. Portúgalar voru í raun sigurveg- arar gærdagsins með frammistöð- unni gegn Ungverjum. Þeir tryggðu sér þriðja sæti riðilsins og um leið sæti í undankeppni Ólympíu- leikanna, ásamt Slóvenum. Um leið lokuðu þeir endanlega á allar vonir Íslands í þeim efnum. Norðmenn á flugi í undanúrslitin AFP Sigurganga Kevin Gulliksen skorar fyrir Norðmenn gegn Slóvenum í upp- gjöri efstu liða milliriðilsins í Malmö í gær þar sem Noregur vann 33:30. Leicester rétti sig af í gærkvöld eft- ir tvo ósigra í röð í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu og vann sannfærandi sigur á West Ham, 4:1. Um leið skoraði liðið sitt 50. mark í deildinni og það hefur Leicester ekki áður gert í 24 leikjum frá árinu 1933. Harvey Barnes og Ricardo Per- eria skoruðu fyrir Leicester í fyrri hálfleik. Mark Noble minnkaði muninn en Ayoze Perez innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum und- ir lokin. Leicester er því með 48 stig í þriðja sætinu, þremur stigum á eftir Manchester City. Tottenham náði að knýja fram heimasigur á botnliði Norwich, 2:1, og lyfti sér upp í sjötta sætið. Dele Alli kom Tottenham yfir en Finninn Teemu Pukki jafnaði fyrir Norwich úr vítaspyrnu á 70. mínútu. Son Heung-min skoraði sigurmark Tottenham níu mínútum síðar.  Leik Manchester United og Burnley á Old Trafford var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. vs@mbl.is AFP London Dele Alli kemur Tottenham yfir í leiknum við Norwich í gærkvöld. Mesta markaskor Leicester frá 1933 Björn Bergmann Sigurðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, verður hjá kýpversku meisturunum APOEL frá Nikósíu sem lánsmaður út þetta tímabil, eða til vors- ins, frá Rostov í Rússlandi. Frá þessu var gengið í gær og Björn gæti spilað fyrsta leikinn á laugardaginn þegar APOEL mætir Doxa í 1. deildinni þar í landi. APOEL hefur orðið meistari sjö ár í röð en stendur nú höllum fæti, er í fjórða sætinu og er átta stigum á eftir toppliði Anorthosis þegar keppnin er um það bil hálfnuð. Í Evrópudeildinni er liðið hins vegar komið í 32ja liða úr- slit og mætir þar Basel frá Sviss í febrúar. Björn er fjórði Íslendingurinn til að spila á Kýpur. Har- aldur Freyr Guðmundsson lék með Apollon 2009 og Kári Árnason með Omonia 2017. Jasmín Erla Ingadóttir leikur í vetur með meist- araliðinu Apollon í kvennadeildinni en hún er þar í láni frá Stjörnunni. Björn er kominn í fjölþjóðlegan hóp en aðeins tíu Kýpurbúar eru í þrjátíu manna hópi APOEL. Þjálfari liðsins er Norðmaðurinn Kåre Ingebrigtsen, sem þjálfaði Rosenborg frá 2014 til 2018. vs@mbl.is Björn er í fjölþjóðlegu liði Björn Bergmann Sigurðarson Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék fyrsta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi á La Manga á Spáni í gær á 73 höggum, tveimur yfir pari vall- arins. Hún er í 40. sæti ásamt nítján öðrum keppendum eftir fyrsta hringinn. Leiknir eru fimm hringir á La Manga og fimmtán efstu kepp- endurnir af þeim 120 sem hófu keppni í gær komast inn á Evr- ópumótaröðina 2020. Morgane Met- raux frá Sviss lék best í gær og er á þremur höggum undir pari. Guðrún fram- arlega á Spáni Morgunblaði/Arnþór Birkisson Spánn Guðrún Brá Björgvinsdóttir reynir að komast í hóp 15 efstu. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: IG-höllin: Þór Þ. – KR.......................... 19.15 Dalhús: Fjölnir – Haukar .................... 19.15 Njarðtaksgr.: Njarðvík – Grindavík... 19.15 1. deild karla: Borgarnes: Skallagrímur – Höttur..... 19.15 Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Stykkish.: Snæfell – Skallagrímur...... 19.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Varmá: Afturelding – Haukar............. 19.30 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót kvenna: Egilshöll: KR – Fjölnir ............................. 20 Faxaflóamót kvenna: Skessan: FH – Haukar ............................. 20 REYKJAVÍKURLEIKAR  Keppni á alþjóðlega badmintonmótinu Iceland International hefst með undan- keppni í TBR-húsum og er leikið frá 9 til 19.  Keppni í listhlaupi á skautum hefst í Skautahöllinni í Laugardal og stendur yfir frá kl. 15 til 19. Enski boltinn á Símanum Sport Wolves – Liverpool.................................... 20 Í KVÖLD! Endanleg niðurstaða Íslands á Evr- ópumóti karla í handknattleik 2020 er ellefta sætið. Það er besti árangur liðsins frá 2014, eftir að hafa endað í þrettánda sæti á tveimur síðustu mótum. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland endar í ellefta sæti en það gerðist áður í Króatíu árið 2000 og í Noregi árið 2008. Fimm sinnum hefur Ísland hins vegar náð betri árangri á EM. Þriðja sæti árið 2010, fjórða sæti árið 2002, fimmta sæti árið 2014, sjöunda sæti árið 2006 og tíunda sæti árið 2012. Árangurinn hefur þrisvar verið lakari á þeim ellefu mótum þar sem Ísland hefur verið með. Þrettánda sætið varð hlutskipti Íslands árið 2004 og aftur árin 2016 og 2018. Röð liðanna frá sjöunda sæti og niður úr liggur nú fyrir og er þannig hjá þeim sextán liðum sem nú hafa lokið keppni á EM: 7 Svíþjóð, 8 Austurríki, 9 Ung- verjaland, 10 Hvíta-Rússland, 11 Ís- land, 12 Tékkland, 13 Danmörk, 14 Frakkland, 15 Norður-Makedónía, 16 Sviss, 17 Holland, 18 Svartfjalla- land, 19 Úkraína, 20 Serbía, 21 Pól- land, 22 Rússland, 23 Bosnía, 24 Lettland. vs@mbl.is Besti árangurinn frá 2014

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.