Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 72

Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Útsalaallt að 70% af völdum vörum RECAST PLUS svefnsófi með geymsluhólfi. Dökkgrátt áklæði, dökkir viðarfætur. L 200 x D 140 cm. Áður 149.900 kr. NÚ 99.900 kr. RIA TUNGUSÓFI með bláu áklæði. L 222 x D 148 cm. Áður 139.900 kr.NÚ 109.900 kr. 109.900 SPARaðu 30.000 PRATO BORÐSTOFUSTÓLL Brúnt PU leður. Áður 29.900 kr. Nú 14.950 kr. CACTUS KRUKKA með krana. Áður 3.995 kr. Nú 1.199 kr. GASSY SPEGILL á ljósgráum fæti. Áður 2.495 kr. Nú 1.497 kr. 14.950 SPARaðu 14.950 64.900 SPARaðu 65.000 SECRET SÓFABORÐ með geymslu. Lökkuð gegnheil eik. Ø xx x H 45 cm. Áður 129.900 kr. Nú 64.900 kr. CHARME VÍNGLÖS Kampavínsglös, rauðvínsglös og hvítvínsglös. 18 stk. Áður 7.995 kr.NÚ 2.395 kr 70% 40% 70% 2.395 SPARaðu 5.600 Uppfærsla Óskabarna ógæfunnar á einleiknum Rocky! eftir Tue Biering í leikstjórn Vignis Rafns Valþórs- sonar snýr aftur í Tjarnarbíó í kvöld, fimmtudag, og á laugardag kl. 20 bæði kvöld. Sveinn Ólafur Gunnarsson hefur hlotið einróma lof fyrir frammistöðu sína í verk- inu, sem fjallar með gagnrýnum hætti um uppgang popúlismans í samtímanum. Einleikurinn Rocky! snýr aftur í Tjarnarbíó FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Ísland hafnaði í ellefta sæti af 24 liðum á Evrópumóti karla í hand- knattleik eftir ósigur gegn Svíum í síðasta leik milliriðlakeppninnar í Malmö í gær. Þar með hefur ís- lenska liðið lokið keppni en leikið verður um sex efstu sætin í Stokk- hólmi frá föstudegi til sunnudags. Árangur íslenska liðsins er þó sá besti á EM frá árinu 2014. »60-61 Ellefta sætið á EM og Ísland á heimleið ÍÞRÓTTIR MENNING saman í keppni kom á RIG fyrir um ári. „Það var mjög skemmtilegt þeg- ar við náðum því,“ segir Eva. „Þetta var líka fyrsti sigur minn og það var æðislegt,“ segir Guðjón. Krakkarnir hafa æft samkvæmis- dansa hjá dansdeild HK í Kópavogi frá því þeir stigu sín fyrstu dansspor. Eva byrjaði tveggja ára að dansa og Guðjón var fimm ára, en þau eru í 6. bekk í Kársnesskóla og verða tólf ára í ár. „Öll fjölskylda mín var eiginlega mikið í dansi,“ segir Eva um fyrstu sporin. „Amma mín og afi minn kenna dans og mamma mín var í dansi og þau byrjuðu að kenna mér.“ Guðjón segist líka hafa kynnst dans- inum á heimavelli. „Mamma æfði dans og ákvað að láta mig fara í dans en hún hætti svo.“ Nær allur frítími þeirra fer í dans- æfingar og keppni. Kennarar þeirra eru Adam og Karen Reeve, Esther Inga Níelsdóttir og Rakel Guð- mundsdóttir auk erlendra gesta- kennara. Þau eru í hóptímum fjórum sinnum í viku og sækja síðan einka- tíma. „Planið er að verða atvinnu- maður í dansi,“ segir Guðjón ákveð- inn og Eva tekur undir það, en næsta ferð verður vegna keppni erlendis í lok febrúar. „Okkur verður að ganga vel í skólanum til þess að fara svona oft til útlanda en okkur Guðjóni geng- ur ógeðslega vel í skólanum þannig að það er mjög gott,“ segir Eva. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Keppt verður í dansi á Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum (RIG) í Laug- ardalshöll á laugardag og verða Eva Karen Ólafsdóttir og Guðjón Erik Óskarsson á meðal keppenda í hæsta getustigi í 12-13 ára flokki. Þar sýna þau tíu dansa með frjálsri aðferð. „Við erum að byrja í nýjum aldurs- flokki og hugsum bara um að hafa gaman af og svo kemur í ljós í hvaða sæti við lendum,“ segir Eva yfirveg- uð og hógvær. Guðjón tekur í sama streng. „Við hugsum ekkert um sæti, bara um það hvað þetta er gaman.“ Guðjón og Eva vöktu mikla lukku á Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveit- arinnar í Eldborg í Hörpu á dögunum og í raun hefur árangur þeirra á dansgólfinu verið með ólíkindum. „Við fengum sponsor fyrir stuttu og það var mjög skemmtilegt,“ upplýsir Eva, en um er að ræða samning við breska fyrirtækið DSI, einn stærsta fataframleiðandann í dansheiminum. Þetta er fyrsti samningur DSI við ís- lenskt barnapar. Setja stefnuna hátt Á nýliðnu ári kepptu þau í barna- flokki 10-11 ára og sigruðu í öllum keppnum sem þau tóku þátt í á Ís- landi. Erlendis kepptu þau í barna- flokki yngri en 12 ára og urðu meðal annars tvöfaldir Norðurlandameist- arar auk þess sem þau sigruðu í tveimur keppnum á Englandi og komust í úrslit í latín- og standard- dönsum á Opna heimsmeistara- mótinu í Dublin. „Við erum best í rumba og fox- trot,“ segir Guðjón og Eva samsinnir því. Þau segja mikinn mun á því að keppa heima og erlendis. „Það er svo- lítið mikið öðruvísi í útlöndum en hérna á Íslandi,“ segir Eva. „Þar eru svona frægari dómarar stundum.“ „Meira adrenalín, meiri spenna,“ bætir Guðjón við. Þau vilja samt ekki gera upp á milli staða. „Bæði,“ segja þau í kór þegar spurt er hvort skemmtilegra sé að dansa hérlendis eða erlendis. Þau hafa verið danspar síðan í maí 2018 og það er fyrst og fremst ánægj- an, sem þau fá út úr því að dansa, sem rekur þau áfram. Fyrsti sigur þeirra Dansa í gegnum lífið  Eva Karen Ólafsdóttir og Guðjón Erik Óskarsson sigursæl á dansgólfinu  RIG í Höllinni á laugardag Dublin Eva Karen Ólafsdóttir og Guðjón Erik Óskarsson dansa í desember. Nils Mönkemeyer leikur einleik í Víólukonsert eftir William Walton á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn Pietari Inkinen. Á efnisskránni eru einnig Masque- rade eftir Önnu Clyne og Konsert fyrir hljómsveit eftir Béla Bartók. Clyne var til- nefnd til Grammy- verðlauna 2015 og var í fimm ár staðar- tónskáld Chicago- sinfóníunnar. Víólukonsert Wal- ton er lykilverk sinnar gerðar. Konsert Bartóks er eitt dáðasta hljómsveitarverk 20. aldar. Mönkemeyer leikur konsert eftir Walton

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.