Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020 Embætti dómara við Landsrétt laust til umsóknar Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Stefnt er að því að skipa í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) núverandi starf, 2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 11) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 4. maí 2020. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 17. apríl 2020. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Gjaldkeri Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is RARIK ohf. er hlutafélag í eigu ríkisins með meginstarfsemi í dreifingu raforku auk þess að reka fimm hitaveitur. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið. RARIK hefur á undanförnum áratugum unnið jafnt og þétt að uppbyggingu rafdreifikerfisins og er nú svo komið að um 65% þess er jarðstrengir. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.rarik.is Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um. • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af gjaldkerastarfi og bókhaldi • Gott tölulæsi • Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar • Greiðsla reikninga • Millifærslur • Afstemmingar • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni: RARIK óskar eftir að öflugan aðila í starf gjaldkera. Um fullt starf er að ræða og er starfsstöðin í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.