Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 10
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ER08 hægindastóll
Leður – verð 285.000,-
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Allt í allt voru nálægt 38.600 einstak-
lingar á atvinnuleysisskrá í lok mars.
Þar af voru um 24.400 í minnkuðu
starfshlutfalli og ríflega 14.200
manns að auki á almennum atvinnu-
leysisbótum. Þetta kemur fram í
svartri mánaðarskýrslu Vinnumála-
stofnunar (VMST) um atvinnu-
ástandið og fordæmalausar aðstæður
sem uppi eru á vinnumarkaðinum.
Atvinnuleysi í mars mældist 9,2%.
Þar af voru 5,7% almennt atvinnu-
leysi, umsóknum um fullar atvinnu-
leysisbætur fjölgaði um ríflega 6.000,
og 3,5% var vegna minnkaðs starfs-
hlutfalls og hlutabóta.
Skráð atvinnuleysi vex mikið í yfir-
standandi mánuði þegar umsóknir
um minnkað starfshlutfall koma
fram af fullum þunga til viðbótar við
allmikla aukningu almennra um-
sókna.
Sérfræðingar VMST gera núna
ráð fyrir því að atvinnuleysi muni
vaxa í um 16,9% í aprílmánuði en fara
svo lækkandi í maí með auknum um-
svifum á ákveðnum sviðum efnahags-
lífsins. Þar af verði 10,1% atvinnu-
leysi vegna minnkaðs starfshlutfalls
sem vegur mjög þungt á atvinnuleys-
isskránni.
Atvinnuleysið í apríl bendir til þess
að um eða yfir 50.000 einstaklingar
verði á atvinnuleyssisskrá í lok apr-
ílmánaðar. Ef þessi fjöldi er settur í
samhengi við íbúa á landinu þá sam-
svarar fjöldinn á atvinnuleysisskrá í
apríl nokkurn veginn samanlögðum
íbúafjölda þriggja landshluta; Suður-
nesja, Vesturlands og Vestfjarða.
Yfir 20 þúsund starfsmenn fara
niður í 25% starfshlutfall
Ljósi punkturinn í þessu ástandi
er þó sá að verulega hefur dregið úr
umsóknum seinustu daga. Nálega
engar nýjar umsóknir berast um
þessar mundir um bætur á móti
skertu starfshlutfalli, skv. upplýsing-
um Karls Sigurðssonar, sérfræðings
hjá VMST.
„Það er líka að hægja mikið á
skráningum vegna almenns atvinnu-
leysis í apríl. Það verður miklu minni
aukning í apríl en var í mars,“ segir
hann.
Eftir að lögin tóku gildi um minnk-
að starfshlutfall, sem getur verið nið-
ur í allt að 25% starf á móti greiðslum
bóta, nýttu 5.200 fyrirtæki sér þenn-
an möguleika í marsmánuði fyrir
samtals um 24.400 einstaklinga.
VMST gerir ráð fyrir að allt að 6.500
fyrirtæki muni nýta sér þetta þegar
allt er talið yfir það tímabil sem þetta
verður heimilt, fyrir nálægt 35.000
launþega. Flestir starfsmennirnir
fara niður í 25% starf eða um 20.700
og um 7.600 í 50% starf.
Samdrátturinn á vinnumarkaði
hefur haft mjög alvarlegar afleiðing-
ar fyrir greinar sem tengjast flug-
rekstri og ferðaþjónustu. „Yfir 40%
af öllum umsóknum um minnkað
starfshlutfall eru í þeim greinum og
stór hluti annarra umsókna er úr
þeim hluta verslunargeirans sem
tengist ferðaþjónustu að einhverju
marki.
Samtals voru ríflega 17.000 manns
úr ferðaþjónustutengdum greinum á
skrá í lok marsmánaðar af þeim tæp-
lega 39.000 sem voru á skrá alls og er
þá horft bæði til almenna atvinnu-
leysisins og minnkaðs starfshlutfalls.
Það er um 43% af öllum atvinnulaus-
um en til samanburðar er ferðaþjón-
usta og tengdar greinar aðeins um
12% af vinnumarkaðnum,“ segir í
skýrslu VMST.
Spáð er 23,7% atvinnuleysi á
Suðurnesjum í apríl
Atvinnuleysið kemur sérstaklega
þungt niður á Suðurnesjum þar sem
það fór upp í 14,1% í mars og spáð er
að það fari í 23,7%% í apríl. Þar af
verði 13,4% vegna umsókna um
minnkað starfshlutfall. Í úttektinni
kemur fram að af sveitarfélögum á
Suðurnesjum er atvinnuleysi mest í
Reykjanesbæ í marsmánuði, eða
15,6% og fer úr 9,5% í febrúar. „Þá er
atvinnuleysið ríflega 12% í Vogum og
Suðurnesjabæ og er aukningin mikil
í Vogum þar sem atvinnuleysið var
um 5% í febrúar.“
Raunar hefur atvinnuleysið aukist
mikið víðast hvar á landinu. Það fór í
9,6% á höfuðborgarsvæðinu í mars
og athygli vekur að atvinnuleysið
tvöfaldaðist á Suðurlandi í seinasta
mánuði frá mánuðinum á undan og
fór í 8,3%, en ferðaþjónustan vegur
mjög þungt á vinnumarkaðinum á
því svæði. Er staðan sérstaklega
slæm í Mýrdalshreppi þar sem það
jókst úr 4,3% í nærri 21% á einum
mánuði.
Einnig má sjá að af einstökum
sveitarfélögum versnar ástandið
einna mest í Skútustaðahreppi þar
sem atvinnuleysið er komið hátt í
15%. Þar var það 6% í febrúar og er
að stærstum hluta tengt ferðaþjón-
ustu, bæði almenna atvinnuleysið og
atvinnuleysi sem tengist minnkuðu
starfshlutfalli.
VMST hefur farið í saumana á um-
sóknunum um bætur á móti minnk-
uðu starfshlutfalli en eins og fyrr
segir er nú gert ráð fyrir að atvinnu-
leysi vegna minnkaðs starfshlutfalls
fari í um 10% í apríl og komi þá til
viðbótar almennu atvinnuleysi ná-
lægt 7%. Fram kemur að um 40%
þeirra sem eru í þessu úrræði um
minnkað starfshlutfall starfa í flug-
starfsemi, gisti- og veitingarekstri og
öðrum ferðaþjónustutengdum grein-
um. Um 21% hópsins starfar í versl-
un og flutningastarfsemi þar sem
smásöluverslun vegur þyngst og um
16% starfa í iðnaði, byggingariðnaði,
sjávarútvegi og landbúnaði.
Ef litið er á aldur þeirra sem sótt
hafa um hlutabætur vegna minnkaðs
starfshlutfalls má sjá að um 27%
þeirra eru á aldrinum 18 til 29 ára en
aðeins 21% á aldrinum 40-49 ára.
„Nefna má að um 50 manns, sem eru
orðnir 70 ára eða eldri, eru í hópi um-
sækjenda á grundvelli útvíkkunar á
gildissviði laganna, þar af eru tveir
komnir yfir áttrætt og báðir að færa
sig úr fullu starfi,“ segir í skýrslunni.
Af þeim fyrirtækjum sem nýta sér
minnkað starfshlutfall koma 21% úr
ferðaþjónustutengdri starfsemi, um
20% úr iðnaði og sjávarútvegi og 19%
úr verslun.
Atvinnuleysi upp úr öllu valdi
Áætlaður fjöldi á atvinnuleysisskrá í apríl samsvarar heildarfjölda íbúa á Suðurnesjum, Vesturlandi
og Vestfjörðum Um 35 þúsund á hlutabótum Hægt hefur mikið á nýskráningum atvinnulausra
5,0%4,8%
16,9%
10,1%
9,2%
3,5%
Atvinnuleysi eftir landsvæðum í febrúar og mars 2020
Skipting minnkaðs starfshlutfalls í mars 2020
Atvinnuleysi alls
Þar af vegna
minnkaðs
starfshlutfalls
*Áætlun fyrir
aprílmánuð.
Heimild: Vinnu-
málastofnun.
Febrúar Mars
janúar febrúar mars apríl*
18-29 30-39 40-49 50-59 60-69
Atvinnuleysi
í janúar til apríl*
2020
Eftir bakgrunni Eftir atvinnugreinum
Iðnaður, sjávarútvegur o.fl .
Verslun
Flug og ferðaþjónusta
- þar af fl ugstarfsemi
- þar af gistiþjónusta
- þar af veitingarekstur
- þar af önnur ferðatengd starfsemi
Sérfræðiþjónusta, upplýsingatækni o.fl .
Félög, menning, opinber þjónusta o.fl .
16%
21%
40%
8%
9%
10%
11%
12%
11%
Höfuð-
borgarsv.
Suðurnes Vesturland Vestfi rðir Norðurl.
vestra
Norðurl.
eystra
Austur-
land
Suðurland
27%
9,6%
6,2%
4,3%
6,4%
14,1%
4,9%
7,6% 8,3%
26%
21%
16%
9%
Aldur í árum:
Karlar Konur Íslendingar
Pólverjar Aðrir
Meðaltal í mars, 9,2%
56% 76%
10%
14%44%
Morgunblaðið/Eggert
Við störf 9,2% atvinnuleysi í mars.
Mikill áhugi reyndist vera fyrir sum-
arstörfum hjá Reykjavíkurborg, en
opnað var fyrir umsóknir í febrúar
sl. Fjöldi umsækjenda var 1.749 og
sóttu margir þeirra um mörg störf.
Alls voru 88 skilgreind störf í boði,
samkvæmt upplýsingum Jóns Hall-
dórs Jónassonar, upplýsingafulltrúa
hjá Reykjavíkurborg.
„Áform voru um að ráða 822 ein-
staklinga í sumarstörf hjá Reykja-
víkurborg, en þessa dagana er verið
að skoða mögulega fjölgun sumar-
starfa. Það er í samræmi við sam-
þykkt borgarráðs frá 26. mars sl. um
markvissar aðgerðir til viðspyrnu
vegna áhrifa COVID-19 og viðbrögð
gegn atvinnuleysi. Tillögur munu
liggja fyrir í lok mánaðar,“ segir Jón
Halldór.
Sumarstörfin eru fyrir 17 ára og
eldri en misjafnt getur verið eftir
störfum hvaða aldurstakmark á við.
Almennt þurfa umsækjendur að
hafa náð 20 ára aldri til þess að vera
ráðnir leiðbeinendur á sumarnám-
skeiðum eða við öryggisstörf. Hjá
Vinnuskóla Reykjavíkur er lág-
marksaldur leiðbeinenda 22 ár en að-
stoðarleiðbeinenda 20 ár. sisi@mbl.is
Mikill áhugi á
sumarstörfum
Borgin skoðar að fjölga störfum
Morgunblaðið/Eggert
Vinnuskólinn Margir umsækjenda sóttu um mörg störf hjá borginni.