Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 498.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stjórn Samtaka sveitarfélaga og at- vinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og fyrrverandi fulltrúar í stjórn Eyþings neita því að stjórn Eyþings hafi sakað Pétur Þór Jón- asson, fv. framkvæmdastjóra Ey- þings, um kynferðislega áreitni á vinnustað heldur hafi stjórnin þurft að taka til meðferðar kvörtun und- irmanns vegna óviðeigandi og ófag- legra samskipta. Orðin kynferðis- leg áreitni séu frá honum sjálfum komin. Í viðtali við Morgunblaðið segir Pétur Þór frá starfslokum sínum hjá Eyþingi og eftirmálum sem orð- ið hafa, m.a. dómsátt í máli hans þar sem hann fékk bætur til við- bótar launum á uppsagnartíma og í veikindum. Segja stjórnarmenn- irnir að Eyþing hafi lengi glímt við stjórnunar- og rekstrarvanda og um það hafi verið fjallað á mörgum fundum og úttekt óháðra aðila hafi staðfest það. „Ásakanir Péturs Þórs um upplognar sakir sem átyllu til brottrekstrar eiga sér enga stoð í veruleikanum,“ segir þar. Fram kemur í yfirlýsingunni að staðhæfingar Péturs Þórs um að sátt hafi tekist milli hans og undir- manns séu ekki á rökum reistar og því hafnað að Eyþing hafi óskað eftir trúnaði um dómsáttina. „Af okkar hálfu lauk málinu með sáttinni 27. janúar 2020 og í fram- haldinu var það afgreitt af öllum 13 aðildarsveitarfélögunum og teljum við því ekki ástæðu til frekari um- ræðu um það,“ segja stjórnarmenn- irnir. Hilda Jana Gísladóttir, for- maður Eyþings og SSNE, vísar í yfirlýsinguna og kýs að tjá sig ekki frekar um málið. Hafna ásökunum framkvæmdastjóra  Eyþing telur málinu lokið með sátt Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fyrirsjáanlegt atvinnuleysi upp á að minnsta kosti 17% kallar á aðgerðir stjórnvalda sem aldrei yrði gripið til við aðrar aðstæður. Þetta segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, í samtali við Við- skiptapúlsinn, hlaðvarp Viðskipta- Moggans, sem nú er aðgengilegt á mbl.is og helstu hlaðvarpsveitum. Segir hann að höggið sem ís- lenskur vinnu- markaður hafi nú orðið fyrir geri það að verkum að fella verði niður opinber gjöld á fyrirtæki um ákveðinn tíma. Þar segist hann horfa sérstaklega til tryggingagjaldsins sem letji mjög fyrirtæki til að við- halda ráðningarsambandi eða ráða fólk til vinnu. „Ef markmiðið er að halda sem flestum í vinnu þá er þetta mjög nei- kvæður hvati þetta tryggingagjald.“ Hann segir sömuleiðis að leita þurfi leiða til að koma í meira mæli til móts við einyrkja og minni fyrir- tæki sem hafi orðið út undan í fyrri tillögum ríkisstjórnarinnar. Næsti aðgerðapakki hennar verður að öll- um líkindum kynntur strax upp úr helginni. Þá segir Sigmundur Davíð áður kynntar aðgerðir hafa verið of litlar að umfangi, of flóknar og sértækar. „Það er ekki verið að teikna upp sviðsmyndir sem eru þó ágætar vís- bendingar um hvernig hlutirnir geti orðið og ráðstafanir gerðar til að bregðast við þeim eftir því hvernig þær þróast heldur að sjá hvað hefur gerst og bregðast við því.“ Hann bendir sömuleiðis á að það sé of þröng skilgreining á stöðu fyr- irtækja í vanda að þau hafi glatað 40% af tekjum sínum vegna út- breiðslu kórónuveirunnar. „… hver er hvatinn í því? Hann er ekki sá að reyna að hámarka tekj- urnar og lifa af heldur að komast yfir viðmiðið til að fá þessa fyrir- greiðslu.“ Segir hann að fyrirgreiðsla stjórn- valda þurfi að byggjast á grundvall- arviðmiðum, fáum og einföldum, en segir þó að afnám tryggingagjalds eigi ekki að ná til allra fyrirtækja. Það þurfi ekki að rétta netverslunum eða matvöruverslunum hjálparhönd enda hafi þessi fyrirtæki ekki orðið fyrir alvarlegu höggi eins og mörg önnur. Of flókin viðmið Sigmundur Davíð segir hins vegar að viðmiðin sem sett hafi verið fram í síðasta aðgerðapakka um það hvaða fyrirtæki uppfylltu skilyrðin séu svo flókin að skattayfirvöld, sem hafi það verkefni að fara yfir stöðu fyrirtækj- anna, muni ekki ná að greiða úr stöð- unni fyrr en að vikum eða mánuðum liðnum. Þegar því verði lokið verði mörg fyrirtækjanna ekki lengur starfandi. Sigmundur Davíð segir að yfirlýs- ingar fjármálaráðherra um mögu- legan halla ríkissjóðs upp á ríflega 100 milljarða standist ekki skoðun. Mun líklegra sé að hallinn muni nema að minnsta kosti 300 milljörð- um króna á árinu. Tekjur muni drag- ast verulega saman á sama tíma og útgjöld muni aukast gríðarlega. Hann segir að það sé ákveðið ljós í myrkrinu að ríkissjóður sé það skuldléttur um þessar mundir að mögulegt sé að grípa til þessara að- gerða án þess að kafsigla stöðu hins opinbera. Mörg lönd sem hafi orðið illa fyrir barðinu á kórónuveirunni séu ekki í þeirri stöðu. Verða að átta sig á raunverulegri stöðu hagkerf- isins. Sigmundur Davíð segir að nú sé það verkefni forsvarsmanna ríkis- stjórnarinnar að leiða alla hags- munaaðila að borðinu. Oft sé litið til þjóðarsáttarsamninganna sem und- irritaðir voru í upphafi 10. áratugar síðustu aldar. Nú sé þörf á að ná breiðri samstöðu af því tagi. Það valdi hins vegar ákveðnum áhyggj- um að ákveðnir aðilar á vettvangi ís- lensks vinnumarkaðar tali eins og það ástand sem nú er uppi komi þeirra umbjóðendum ekki við. Um- fang þessara efnahagsþrenginga sé slíkt að enginn verði ósnertur af þeim og allir þurfi að leggjast á ár- arnar til þess að koma samfélaginu upp úr erfiðleikunum. Felli tryggingagjald niður út árið  Formaður Miðflokksins segir aðgerðir stjórnvalda of sértækar og flóknar til að nýtast fyrirtækjum  Segir stefna í að ríkissjóður verði rekinn með 300 milljarða halla á árinu  Þörf á breiðri samstöðu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Umskipti Fyrir fáeinum mánuðum var lítið sem ekkert atvinnuleysi á Ís- landi. Nú stefnir í að það mælist 17% og hefur aldrei mælst meira. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Skiptar skoðanir eru á meðal hjúkr- unarfræðinga um nýjan kjarasamn- ing Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga (Fíh) við samninganefnd ríkisins. Samkvæmt heimildum kemur óánægjan m.a. fram á lok- uðu spjallsvæði hjúkrunarfræð- inga. Guðbjörg Páls- dóttir, formaður Fíh, segir að tæp- lega 700 félags- menn hafi fylgst með fyrsta kynn- ingarfundinum um samninginn á fimmtudag. Það var fjarfundur á lokuðu vefsvæði Fíh. Þrír kynning- arfundir eru auglýstir í næstu viku. Rafræn atkvæðagreiðsla hefst á miðvikudag og stendur í viku. Samn- ingurinn nær til um 2.800 hjúkr- unarfræðinga. Guðbjörg segir að málið sé tví- þætt og geti virst flókið við fyrstu sýn. Annars vegar er kjarasamning- urinn sem snýr að hjúkrunarfræð- ingum og hins vegar stytting vinnu- tíma fyrir dagvinnu og vaktavinnu. Að henni koma einnig ASÍ, BHM og BSRB auk Fíh. „Þetta er mjög flók- ið og heilmikið að fara í gegnum það með fólkinu,“ segir Guðbjörg. Hún segir að óánægja með samn- inginn hafi einkum heyrst fyrst eftir að gögn um hann voru birt á lok- uðum vef félagsins sl. miðvikudag. „Það var greinilegt að fólkið þurfti að fá kynningu á þessum gögnum. Þarna gætti mikils misskilnings,“ segir Guðbjörg. Hún segir að á fyrsta kynningarfundinum hafi fólk fengið útskýringar og svör og marg- ir skipt um skoðun eftir það. Guðbjörg segir að breytingar á launatöflunni séu í samræmi við lífs- kjarasamninginn og það sem aðrir hafa fengið. Náðst hafi að lyfta byrj- unarlaunum hjúkrunarfræðinga verulega. „Vonandi er þetta á pari við aðrar stéttir með sambærilega menntun og ábyrgð en við höfum verið þar undir,“ segir Guðbjörg. Það lækkar enginn í launum Heyrst hefur að hjúkrunarfræð- ingar sem vinna aðeins dagvinnu kvarti yfir því að laun þeirra muni jafnvel lækka. Guðbjörg segir að ákvæði um styttingu vinnuviku inn- an vaktavinnufyrirkomulagsins séu þannig að þau hvetji til hærra starfs- hlutfalls og vinnu vaktavinnu. „Ég get fullyrt að það lækkar enginn í launum en þetta er eitt af þeim at- riðum sem fólk hefur misskilið,“ seg- ir Guðbjörg. Hún segir ljóst að þetta þurfi að útskýra betur fyrir dag- vinnufólkinu. Kjarninn í kröfugerð Fíh var stytting vinnuvikunnar, betra starfs- umhverfi og hækkun grunnlauna. Guðbjörg telur þessi markmið hafa náðst að verulegu leyti þótt þau hefðu viljað sjá meiri hækkun grunnlauna, en þar hafi lífskjara- samningurinn lagt línuna. Hún segir að sumir félagsmenn hafi verið uppteknir af því að stytt- ing vinnuvikunnar verði m.a. á kostnað neysluhléa. „Fólk þarf að átta sig á því að vinnutímastyttingin byggist á ákveðinni hugmyndafræði. Við metum verðmætin okkar megin og ríkið verðmætin sín megin. Þar á meðal er yfirvinna sem hefur verið greidd fyrir ótrúlegustu hluti en er ekki alltaf yfirvinna í raun,“ segir Guðbjörg. Hún nefnir t.d. að fólk hafi fengið greidda yfirvinnu fyrir matar- og kaffitíma þegar það hefur ekki komist í mat eða kaffi. Eins hefur verið ákveðin yfirvinnu- greiðsla þegar fólk hefur verið beðið að breyta vöktum. Fólk fái greitt fyrir að breyta vöktum eftir sem áður, þótt það heiti ekki lengur yfir- vinna. „Við erum að gera mestu breyt- ingu sem orðið hefur í 40 ár á vinnu- markaði með því að stytta vinnuvik- una. Því fylgja ný vinnubrögð. Það eru breyttir tímar,“ sagði Guðbjörg. Skiptar skoðanir um nýjan kjarasamning  Kynna kjarasamning hjúkrunarfræðinga á fjarfundum Ljósmyndir/Þorkell Þorkelsson Hjúkrunarfræðingar Nýr kjarasamningur er í umræðu og kynningu.Guðbjörg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.