Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020 18. apríl 1960 Kristín Þorgeirsdóttir verður fjórfaldur Íslandsmeistari og er sigursælasti keppandinn á Skíðalandsmóti Íslands sem lýkur í blíðskaparveðri á Siglufirði annan í páskum. Ofsaveður var hins vegar þeg- ar mótið átti að hefjast fyrir helgina, segir Morgunblaðið. 18. apríl 1964 Hrafnhildur Guðmundsdóttir setur Íslandsmet í 100 metra bringusundi á alþjóðlegu móti í Reykjavík. Syndir hún á 1:21,01 mínútu og er það besta afrek Íslendings á mótinu sam- kvæmt al- þjóðlegri stiga- töflu. Fær hún Afreksbikar SSÍ fyrir vikið en Hrafnhildur setti einnig met í 50 metra flugsundi á 32,3 sekúndum. 18. apríl 1970 Bjarni Stefánsson fer undir 6 sekúndur í 50 metra hlaupi innanhúss á móti sem FRÍ heldur í Laug- ardalnum. Bjarni hleypur tvívegis á 5,9 sekúndum og bætir eigið Ís- landsmet. 18. apríl 1986 Pétur Guðmundsson kemur mikið við sögu þegar LA La- kers sigrar San Antonio Spurs í fyrsta leik sínum í úrslita- keppni NBA-körfuboltans, 135:88. Pétur skorar 10 stig fyrir Lakers en fer af velli með sex villur. 19. apríl 1986 Ævintýraleg karfa Pálmars Sigurðssonar einni sekúndu fyrir leikslok, langt utan af velli, tryggir Íslandi sigur á Noregi, 75:72, í úrslitaleik C- riðils Evrópu- keppni karla í körfuknattleik í Laugardals- höllinni. Ísland vinnur sér þar með sæti í B-riðli EM í fyrsta skipti í sögunni. 18. apríl 1990 Arnór Guðjohnsen og sam- herjar í belgíska liðinu And- erlecht tryggja sér sæti í úr- slitaleik Evrópukeppni bikarhafa með sigri á Dinamo Búkarest 1:0 í undanúrslitum og samtals 2:0. Anderlecht mætir ítalska liðinu Samp- doria í úrslitaleik. 18. apríl 1996 Elín Sigurðardóttir bætir eig- ið Íslandsmet í 50 metra skrið- sundi á HM í 50 metra laug í Gautaborg þegar hún syndir á 26,17 sekúndum. Elín hafnar í 23. sæti í greininni og setti metið þrátt fyrir hálsbólgu. Á ýmsu gengur hjá Elínu á HM því hún varð að hætta sem fánaberi á setningarathöfn- inni samkvæmt frétt Morg- unblaðsins eftir að hafa fengið aðsvif. 18. apríl 1998 Jón Kristjánsson verður Ís- landsmeistari í handknattleik með Val í áttunda skipti á að- eins tíu árum þegar liðið sigr- ar Fram í úrslitarimmunni. Jón verður auk þess meistari í annað sinn á þremur árum sem spilandi þjálfari. Á ÞESSUM DEGI KÖRFUBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Körfuknattleikskappinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson er án samn- ings eftir að leiðir hans og ÍR skildu nokkuð óvænt á dögunum. Sigurður gekk til liðs við ÍR á nýjan leik í október á síðasta ári eftir að hafa rift samningi sínum við franska C- deildarliðið BC Orchies. Sigurður, sem er 31 árs gamall, sleit krossband í hné eftir níu mín- útna leik gegn Þór frá Akureyri á Akureyri í fjórðu umferð úrvals- deildar karla, Dominos-deildinni, þann 25. október í fyrsta leik sínum á tímabilinu. Hann lék því ekkert með liðinu á tímabilinu, að undan- skildum þessum níu mínútum á Ak- ureyri. Framherjinn átti frábært tímabil með ÍR á næstsíðustu leiktíð, 2018- 19, en þá skoraði hann 13 stig, tók átta fráköst og var með tvö skot varin að meðaltali í leik þegar ÍR fór alla leið í úrslit Íslandsmótsins en tapaði fyrir KR í oddaleik í Frostaskjóli. Sigurður var valinn í úrvalslið deildarinnar að tímabili loknu. Ágreiningur um laun meðan ég var meiddur „Það var uppi ákveðinn ágrein- ingur á milli okkar um atriði sem kom upp fyrr í vetur þannig að það kom mér ekki beint á óvart að þeir skyldu rifta samningnum við mig,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið. „Þetta snerist um það hvort ætti að greiða mér laun á meðan ég var meiddur og við vorum einfaldlega ekki sammála þar. Þetta var því leiðinlegur endir á tíma mín- um í Breiðholtinu.“ Sigurður er að jafna sig eftir krossbandsslit en endurhæfing hans hefur gengið framar vonum og stefnir ótrauður á að byrja að æfa körfubolta af fullum krafti í ágúst á þessu ári. Þrátt fyrir að hann sé bú- inn að vera samningslaus í nokkra daga hafa þó nokkur lið nú þegar sett sig í samband við leikmanninn. Tilbúinn í fyrsta leik „Endurhæfingin hefur gengið mjög vel og það er lítið yfir henni að kvarta. Ég má byrja að hlaupa aftur í júní og ég stefni á að byrja að æfa körfubolta á fullu í ágúst. Ég sé því ekkert því til fyrirstöðu að ég geti komið mér í gott form áður en tíma- bilið hefst í október. Ég hef því litl- ar sem engar áhyggjur af næsta tímabili og ætti að vera klár í slag- inn þegar tímabilið hefst. Ég er búinn að fá einhver símtöl og það hafa einhverjar þreifingar átt sér stað. Ég hef hins vegar ekki fengið nein tilboð ennþá en það er alveg möguleiki á því að ég fari út á nýjan leik. Það er hins vegar erfitt að segja með þessi erlendu lið í dag og það er í raun bara spurning hvaða lið verða til á næsta tímabili en ég er opinn fyrir flestu.“ Vill vinna titla Sigurður hefur þrívegis orðið Ís- landsmeistari á ferlinum, einu sinni með Keflavík árið 2008 og tvívegis með Grindavík, 2012 og 2013. Þá varð hann bikarmeistari með Grindavík 2013 en ferilinn hóf hann í heimabænum, Ísafirði, og lék þar kornungur fyrstu meistaraflokks- leiki sína. Hann lék með þremur er- lendum liðum á árunum 2014 til 2017, Solna í Svíþjóð og grísku lið- unum Doxas og AEL. Sigurður telur að íslenskur körfu- bolti sé á mikilli uppleið og að úr- valsdeildin verði sterkari með hverju árinu sem líður. „Deildin hefur verið að styrkjast ár frá ári. Það eru komnir fleiri út- lendingar í deildina og gæðin eru meiri í hverri stöðu fyrir sig. Á Ís- landi hefur átt sér stað ákveðin framför hjá ekki bara leikmönnum heldur þjálfurum líka. Körfuboltinn hefur því verið að breytast hér- lendis og hann er ekki eins villtur og í gamla daga. Að sjálfsögðu er maður í þessu til þess að vinna bikara en ég lít líka þannig á þetta að öll lið sem eru með mig innanborðs eigi möguleika á því að vinna titla. Það er hægt að gera ótrúlega hluti í körfubolta og þú þarft ekki alltaf að vera með besta liðið á pappír. Ef liðsheildin er góð er hægt að gera ansi magnaða hluti út frá því, eins og við sýndum í Breiðholtinu á þarsíðustu leiktíð.“ Kostir og gallar Nokkuð hávær umræða hefur verið um það hér á landi að ungir ís- lenskir leikmenn séu ekki að fá sinn skammt af tækifærum í efstu deild vegna fjölda útlendinga í deildinni. Fyrir tímabilið 2018-19 var regl- unum hér á landi breytt og mega ís- lensk lið því tefla fram eins mörgum erlendum leikmönnum og þau vilja, svo framarlega sem þeir eru með evrópskt vegabréf. „Það eru kostir og gallar við þetta fyrirkomulag eins og svo margt annað. Eins og ég horfi á þetta er ekki nauðsynlegt fyrir sex- tán ára strák að spila í efstu deild. Hann má alveg eyða næstu tveimur til þremur árum á æfingum gegn fullvaxta karlmönnum áður en hann stígur inn á gólfið. Fjölmargir strákar sem fara út í háskóla í Bandaríkjunum sjá ekki gólfið á fyrsta ári sínu sem dæmi. Ef þeir eru hins vegar nægilega góðir fá þeir sín tækifæri.“ Ungu leikmennirnir eru ekki allir tilbúnir „Eins og staðan er í dag er fullt af góðum leikmönnum sem eru betri í deildinni en þessir ungu leikmenn. Þá eru ekkert allir ungir leikmenn tilbúnir í þennan slag. Þeir þurfa í fyrsta lagi að skilja leikinn og það er kannski nokkuð sem hefur vant- að upp á líka. Þegar allt kemur til alls þá styrkir það menn líka að æfa gegn sterkari leikmönnum og ef þú hefur ekki styrkinn í að halda það út að æfa í tvö til þrjú ár, áður en þú verður fastamaður í efstu deild, þá kannski hefurðu ekki styrkinn sem þarf til þess að verða Íslands- meistari,“ sagði Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Þarf ekki besta liðið til að vinna  Sigurður Gunnar ætlar sér að vera tilbúinn í upphafi næsta tímabils Drjúgur Sigurður Gunnar Þorsteinsson var í lykilhlutverki hjá ÍR-ingum þegar þeir léku til úrslita við KR um Íslandsmeistaratitilinn vorið 2019. Morgunblaðið/Eggert Bikarmeistarar Fram í handbolta munu fá góðan liðstyrk fyrir næstu leiktíð því Guðrún Erla Bjarnadótt- ir mun ganga í raðir félagsins frá Haukum samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Guðrún Erla hef- ur verið í aðalhlutverki hjá Hauk- um og gerði hún 60 mörk í 18 leikj- um í vetur. Þá hefur hún einnig leikið með HK og Stjörnunni og verið viðloðandi landsliðið. Haukar voru í fimmta sæti Olísdeildarinnar þegar tímabilinu var aflýst, með 14 stig eftir 18 leiki. Fram var í topp- sætinu með 34 stig. Bikarmeistararnir fá liðstyrk Morgunblaðið/Hari Safamýri Heimavöllur Guðrúnar verður í Safamýrinni næsta vetur. Kvennalið HK í handknattleik hef- ur fengið tvöfaldan liðsauka fyrir næsta keppnistímabil en Ólöf Ásta Arnþórsdóttir er komin til Kópa- vogsliðsins frá Stjörnunni og Alex- andra Líf Arnarsdóttir frá Hauk- um. Eru þær báðar tvítugar. Ólöf leikur sem miðjumaður eða skytta vinstra megin og Alexandra á lín- unni. HK hafnaði í fjórða sæti deild- arinnar í vetur og hefði væntanlega komist í fjögurra liða úrslitakeppn- ina um Íslandsmeistaratitilinn en keppni var hætt þegar þremur um- ferðum var ólokið. Tvöfaldur lið- styrkur til HK Ljósmynd/HK Kópavogur Alexandra Líf Arnars- dóttir er orðin HK-ingur. Knattspyrnusamband Íslands stefnir að því að hefja Ís- landsmótið föstudagskvöldið 13. júní, hálfum öðrum mánuði eftir að það átti upphaflega að fara í gang, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikarinn, á að fara af stað 5. júní samkvæmt sömu áætlun en hann átti upphaflega að hefjast 8. apríl. Aðrar deildir Íslandsmótsins fara síðan af stað næstu daga á eftir úrvalsdeild karla, eða á bilinu 14. til 21. júní, ef þetta gengur eftir, en þessar áætlanir eru háðar því að óhætt sé talið að hefja leik þar sem kórónuveiruf- araldurinn sé að mestu genginn yfir. Reiknað er með því að samkomubanni verði létt af í áföngum í sumar og því er viðbúið að einhverjar takmarkanir á áhorfendafjölda verði í gildi þegar mótið fer af stað. Þá samþykkti FIFA beiðni KSÍ um að félagaskiptatímabilið 22. febrúar til 15. maí 2020 verði sett á bið og lokað verði tímabundið fyrir félagaskipti á meðan ekki liggur fyrir hvenær mótahald hefst. Íslandsmótið hefjist 13. júní Guðni Bergsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.