Fréttablaðið - 05.09.2020, Qupperneq 28
Notendum stefnumótaforritisins hefur fjölgað í faraldrinum og svæpin eru nú enn fleiri. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þann 16. mars síðastliðinn var sett á samkomu bann hér á landi vegna kórónaveirufaraldursins. Samkomubanninu fylgdu fjölda
takmarkanir sem miðuðu við að
ekki máttu koma saman f leiri
en 100 manns og upp var tekin
tveggja metra reglan. Viku síðar
voru takmarkanir hertar og ekki
máttu koma saman f leiri en tutt
ugu manns, enn var tveggja metra
reglan í gildi og sundlaugum og
skemmtistöðum var lokað.
Síðan hafa reglurnar farið fram
og til baka. Í dag miðast fjöldatak
markanir við 100 fullorðna, fólk
er hvatt til að viðhafa metrana tvo
og skemmti og vínveitingastaðir
mega hafa opið til klukkan ellefu
á kvöldin. Háværar raddir ein
hleypra landsmanna hafa heyrst
kvarta undan því síðastnefnda
og er kófið sagt hafa mikil áhrif á
stefnumótamenningu landsins.
Samkvæmt svari upplýsingafull
trúa stefnumótaappsins Tinder við
fyrirspurn Fréttablaðsins mátti
greina miklar breytingar á app
inu og notendum þess eftir að far
aldurinn hófst. Fleiri spjölluðu um
grímur, birgðastöðu klósettpappírs
og spritt, og bættu notendur Tinder
því jafnvel í grunnupplýsingar
sínar hversu mikill klósettpappír
væri til á heimilinu og að þau sinntu
vel einstaklingssóttvörnum.
Lie Barrén, upplýsingafulltrúi
Tinder í Svíþjóð, segir að greinileg
aukning hafi verið í spjallsam
skiptum í appinu í samkomu
banni og að færri hafi hist undir
fjögur augu. „Á heimsvísu sáum
við hámark í spjallsamskiptum 5.
apríl en þann dag sendu notendur
Tinder 52 prósentum f leiri skila
boð sín á milli en í byrjun mars.“
Notendum f jölgaði einnig í
faraldrinum og svæpin urðu enn
f leiri, í hópi notenda á aldrinum
25 ára og yngri f jölgaði um 39
prósent á heimsvísu en á Ítalíu,
þar sem fjöldi COVID19 tilfella
var gríðarlegur og dauðsföll voru
mörg, fjölgaði notendum mest eða
um 67 prósent.
Fréttablaðið fékk nokkra Íslend
inga á aldrinum 2050 ára til að tala
um upplifun sína af stefnumótum
og líf i einhleypra á fordæma
lausum tímum kórónaveirunnar
og voru þau öll sammála um að
lokun skemmtistaða og samkomu
takmarkanir hefðu mikil áhrif á
stefnumótasenu landsins.
Einmanalegt að vera
einhleyp á þessum tímum
Samkomubann, tveggja metra reglan og sóttvarnir vegna faraldursins hafa haft ýmsar afleiðingar um heim allan,
ekki síst fyrir einhleypa. Aldrei hafa fleiri verið skráðir á Tinder, færri hittast undir fjögur augu og tveggja metra
reglan útilokar nánd. Einhleypir Íslendingar segja lesendum frá áhrifum faraldursins á stefnumótasenu landsins.
COVID-BUMBAN
SKEMMIR FYRIR
„Ég hef ekki farið á eitt einasta
deit síðan í fyrra. Í byrjun árs
varð ég svo hræddur við að fá
veiruna að ég forðaðist í raun
alveg að hitta
fólk sem var
ekki í mínum
innsta hópi. Svo
kom sumarið
og allir gleymdu að
COVID væri til og þá fór
ég að skella mér á púbbinn
og segja hæ við stelpur en mér
fannst einhvern veginn eins og
fólk væri ekki alveg jafn til í og
áður að setjast niður og spjalla
við ókunnuga. En hvað veit ég?
Kannski var það bara CO-
VID-bumbunni að kenna.“
ENGINN SLEIKUR
„Það dettur enginn í
skemmtistaðasleik á Kaffi-
barnum núna. Það er eitthvað
vandræðalegt að henda sér í
hann fyrir klukkan 23!“
HÆTT AÐ PASSA SIG EFTIR NOKKRAR VIKUR
„Já, það er heldur betur breyting á stefnumótasenunni, það er ekki
endilega eins og ég hafi verið niðri í bæ allar helgar en ég gat það ef ég
vildi. Það er náttúrulega vandamál með þetta kóf, það hefur varpað ljósi
á ákveðna hluti sem ég hafði tekið sem sjálfsögðum hlut og ég sakna
þess að hafa ekki valið lengur. Eins og með svo margt annað í samfélag-
inu. Mín upplifun var að fólk var ekki mikið að hittast fyrst en svo þegar
voru liðnar nokkrar vikur þá voru margir ekki að passa sig eins mikið.“
HÚRRANDI FULLIR
„Mér finnst svo asnalega
skemmtilegt að kynnast fólki
á skemmtistöðum en ég hef
sjálfur ekki stundað þá mikið
upp á síðkastið og, eins og ég
sagði, finnst mér eins og fólk
sé kannski ekki alveg jafn til
í og áður að tjilla
með ókunnugum.
Ég vonaðist aðeins
til, þegar opnunar-
tími skemmtistaða var
styttur, að það yrði aðeins
meiri fimmtudagsstemning,
þú veist, meira tjill og sötur um
helgar, en í staðinn var fólk bara
orðið húrrandi fullt klukkan
hálf níu og farið heim klukkan
ellefu.“
DEITMENNINGIN
BYRJAÐI Á ÍSLANDI
„Fólk var
að hittast
á djamm-
inu eftir
að hafa
„matchað“
og sjá
hvort að það
laðaðist hvort að
öðru um miðja nótt á
troðfullum börum, sveitt og
sósað. En svo allt í einu fór
maður að heyra sögur af fólki
sem var að deita. Ha, deit-
menning á Íslandi? Ó, já, við
settum lopapeysuna í skápinn
og byrjuðum að haga okkur eins
og í amerískum bíómyndum og
byrjuðum að fara á deit.“
EINMANALEGT EIN
Á SÓFANUM HEIMA
„Við fengum náttúrulega
glugga þarna í sumar þegar það
kom smá veirulaust tímabil.
Þá fannst mér allir svolítið á
útopnu og smá leitandi. Enda
er alveg smá einmanalegt atriði
að vera einhleyp á þessum
tímum – þegar allir eru bara að
hjúfra sig uppi í sófa og forðast
mannamót.“
FÆRRI FERÐAMENN
– MINNA FRAMBOÐ
„Í fyrsta lagi er mikill munur
eftir að ferðamennirnir fóru,
minna framboð, en það hefur
líka leitt til meiri eftirspurnar
hjá þeim sem eftir sitja, svo
framboðið hefur kannski ekki
minnkað, bara breyst.“
ÞAKKLÁT FYRIR AÐ
TINDER VAR KOMIÐ
„Ég segi bara að
það sé eins
gott að Tinder
var komið inn
í menninguna
fyrir þessa
skrítnu tíma,
því þetta er einn af
fáum stöðum sem hægt er að
hitta einhvern. Það er eins gott
að það var búið að ala okkur
aðeins upp.“
ERFITT EN EKKI
ÓMÖGULEGT
„Lokun skemmti-
staða og fækkun
túrista hefur
klárlega fjölgað
þeim sem nota
date-ing öpp.
Það er erfitt, ef
ekki ómögulegt að
fara með einhverjum
heim þegar bærinn lokar
klukkan ellefu.“ MEÐVIRKNISKOSS
„Ég fékk COVID tiltölulega
snemma í fyrri bylgjunni. Svo ég
er kannski óhræddari en aðrir.
Auðvitað fer ég í sprittsturtu
áður en ég hitti fólk til að bera
ekki snertismit á milli.
En það ætti að vera
nokkuð áhættu-
laust að deita
mig eða smella á
mig meðvirkniskoss-
inum.“
EFTIRPARTÝIN KOMA STERK INN
„Lokun skemmtistaða hefur svakaleg áhrif á líf einhleypra
en eftirpartýin eru að koma sterk inn. Þar er fólk alveg að
blandast saman en allir virðast vera passasamir, spritta
sig, þvo sér um hendurnar og svona. Ég hef samt alveg
heyrt af fólki sem er að stinga saman nefjum í
partýj um og á skemmtistöðum fyrir klukkan ell-
efu…eða ókei ég skal viðurkenna að ég fór í sleik við
ókunnugan mann í partýi í miðjum faraldri, krossaði svo
bara fingur að hann væri ekki með COVID.“
EKKI HÆGT AÐ
FARA ALLA LEIÐ
„Ég hef ekki farið á jafn mörg
deit og ég er vön að fara á, og
þessi fáu sem maður fer á enda
ekki oft í einhverjum nánum
kynnum. Það er jú bara alls ekki
hægt að halda tveggja metra
fjarlægð við einhvern sem
maður ætlar alla
leið með.“
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn@frettabladid.is
5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð