Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 31
Raspberry Ket
ones minnkar
sykurþörfina og gefur
mér aukinn kraft og
einbeitingu.
Agnes Hlíf Andrésdóttir
Sykur er eitthvað sem gleður bragðlauka flestra okkar en getur líka verið eitt það
óhollasta sem við látum ofan í
okkur. Sykurinn getur nefnilega
valdið fíkn sem þýðir að erfitt er
að hætta neyslu án þess að finna
verulega fyrir því. Sykurneysla
getur valdið bólgum í líkamanum
sem við finnum oft sérstaklega
fyrir í liðunum. Sykur getur komið
ójafnvægi á þarmaflóruna, getur
valdið sveppasýkingum og haft
slæm áhrif á blóðsykurinn og
insúlínframleiðslu líkamans, sem
ýtir undir fitusöfnun. Það er því
til mikils að vinna fyrir okkur að
losna við sykurinn og hefur Rasp-
berry Ketones reynst mörgum vel í
þeim efnum.
Náttúrulegur andoxunargjafi
Raspberry Ketones er náttúruleg-
ur andoxunargjafi sem inniheldur
kjarna úr hindberjum og grænu
tei. Raspberry Ketones getur haft
áhrif á hormónið adiponectin sem
heilbrigt fólk í kjörþyngd hefur í
miklu magni í líkamanum. Þetta
hormón getur aukið insúlínnæmi
sem þýðir að blóðsykurinn er
jafnari og við brennum fitu betur.
Fitubrennsla
Grænt te er fullt af andoxunar-
efnum og lífrænum efnasam-
böndum sem geta haft mikil áhrif
á starfsemi líkamans. Þar á meðal
er bætt heilastarfsemi, fitutap
(aukin fitubrennsla) ásamt því að
geta dregið úr líkum á fjölmörgum
sjúkdómum.
Dregur úr sykurþörf
og eykur kraft
Agnes Hlíf Andrésdóttir er
viðskiptastjóri hjá auglýsinga-
stofunni Hvíta húsinu, móðir og
áhugamanneskja um heilbrigðan
lífsstíl. „Ég sinni krefjandi starfi
sem krefst bæði mikils aga og
einbeitingar á hverjum einasta
degi. Það skiptir mig því gríðar-
lega miklu máli að æfa reglulega og
huga vel að næringunni minni.“
Agnes Hlíf segir það lykilinn að
velgengni, bæði í leik og starfi, að
halda góðu jafnvægi í mataræði og
hreyfingu. Það skipti ekki síður
máli að vera góð fyrirmynd og
stundum geti stríðið við sykurpúk-
ann tekið á. „Raspberry Ketones
kom því eins og himnasending inn
í lífið mitt. Það dregur ekki aðeins
úr sykurþörfinni, heldur gefur mér
aukinn kraft í æfingarnar og veitir
oftar en ekki þetta „litla auka“ sem
stundum vantar upp á þegar kemur
að daglegu amstri,“ segir Agnes Hlíf.
„Ég byrja daginn alltaf á að taka
eina töflu fyrir morgunmat og
finn hvernig það gefur mér strax
aukakraft inn í daginn. Svo tek ég
eina áður en ég fer á æfingu, hvort
sem það er í hádeginu eða seinni-
partinn. Fyrir mér er Raspberry
Ketones jafn mikilvægt og lýsið er
fyrir börnin mín,“ útskýrir hún.
„Græna teið í Raspberry Ketones
hjálpar mér að halda góðri ein-
beitingu lengur og orkan helst
jafnari og stöðugri en ella. Ég mæli
Minni sykurlöngun, jafnari
blóðsykur og aukin orka
Raspberry Ketones frá Natures Aid getur hjálpað til að losna við sykurþörfina og minnkað matar-
löngunina. Fjölmargir tala um aukna orku og að auðveldara sé að losna við aukakílóin.
Agnes Hlíf
Andrésdóttir
segir að Rasp-
berry Ketones
hafi komið eins
og himnasend-
ing inn í líf sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
hiklaust með Raspberry Ketones
fyrir fólk með marga bolta á lofti.“
Veldu gæði
Hvert hylki inniheldur 400 mg af
hreinum hindberjakjarna ásamt
35 mg kjarna af hreinu, grænu tei.
Það inniheldur engin litarefni,
rotvarnarefni, laktósa eða ger.
Raspberry Ketones Advance frá
Natures Aid er GMP vottað (Good
manufacturing process) og upp-
fyllir ströngustu gæðakröfur sem
völ er á.
Fæst í apótekum heilsubúðum og
heilsuhillum verslana.
2-3ja
mánaða skammtur í hverju glasi„Ég upplifi enga verki í dag og er aftur farinn
að njóta þess að styðja við heilsu mína með
hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“
Kristófer Valdimarsson, 81 árs.
Mest selda liðbætiefni á Íslandi
LIÐVERKIR – STIRÐLEIKI – EÐA BRAK Í LIÐUM?
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0