Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 32
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Án brýnna aðgerða ástralskra yfirvalda stefnir í að kóala birnir verði útdauðir
fyrir árið 2050. Mælt var með
42 aðgerðum til að sporna gegn
þessari þróun.
Vandi kóalabjarna vakti
heimsathygli í skæðu skógar-
eldunum sem geisuðu í Ástralíu
síðasta sumar, þar sem tugþús-
undir þeirra létust.
En það eru ekki bara loftslags-
breytingar og skógareldar sem
ógna þeim, heldur líka skógar-
högg, námugröftur og vöxtur
þéttbýlis.
Stjórnvöld eru nú að reyna að
vakta stofninn og mælt var með
friðlýsingu landsvæðis, banni við
frekari eyðingu gamalla skóga í
ríkiseigu og að sett yrði á lagg-
irnar net vel fjármagnaðra sjúkra-
húsa fyrir villt dýr á lykilstöðum
í Nýja Suður-Wales, þar sem hæft
starfsfólk og dýralæknar myndu
vinna.
Ríkisstjórn Nýja Suður-Wales
hefur sett rúmlega 6 milljarða
króna í verkefnið, sem er hæsta
fjárhæð sem hefur verið varið í
vernd kóalabjarna í sögu fylkisins.
Reyna að bjarga björnunum
Ríkisstjórn Nýja Suður-Wales í Ástralíu ætlar að eyða rúmlega sex milljörðum króna í vernd
kóalabjarna, en án brýnna aðgerða stefnir í að tegundin muni verða útdauð fyrir árið 2050.
Hér heldur Dean Reid, starfsmaður hjá ástralska skriðdýragarðinum, á ungum, fallegum
kóalabirni sem er kallaður Ash, en björninn var í almennri heilsufarsskoðun. MYNDIR/GETTY
Ungur kóalabjörn situr á grein eucalyptus-trés eftir
heilsufarsskoðun í ástralska skriðdýragarðinum.
Hér situr Ash í eucalyptus-tré. Í Port Macquarie starfa
um 150 sjálfboðaliðar sem passa dýrin og fæða þau.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R