Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 18
Loksins, segja nú örugg-lega einhverjir leikhús-þyrstir Íslendingar sem langþreyttir eru orðnir á að horfa á sjónvarpsskjá-inn mánuð eftir mánuð. Í samtals um 100 ára langri sögu þessara tveggja leikhúsa hafa húsin aldrei staðið svo lengi án áhorfenda. Nándartakmarkanir eru þó í fullu gildi og aðeins selt í um helm- ing sæta í hverjum sal. Þannig má ætla að rýmra verði um hvern og einn gest svo þeim sem líkar illa við of mikla persónulega nánd geta fagnað enn ákafar og breitt úr sér í sæti sínu. Bæði í Þjóðleikhúsi og Borgarleik- húsi hverfast fyrstu frumsýningar ársins um samskipti karls og konu, á báðum sviðum standa tveir leikarar á sviðinu og takast á við valdaójafn- vægi, óttann við skuldbindingar, þrána eftir nánd og margt f leira. En auðvitað á gjörólíkan hátt í sitt hvoru verkinu. Upphaf Þjóðleikhúsið – Kassinn Frumsýning: 19. september Fyrsta frumsýning Þjóðleikhúss- ins á nýju leikári ber þann mjög svo viðeigandi titil Upphaf. Ekki er aðeins um að ræða fyrstu sýningu eftir samkomutakmarkanir ársins, Loksins komumst við í leikhús Stóru leikhúsin opna dyr sínar nú um helgina með fyrstu frumsýningum vetrarins, hálfu ári eftir að samkomu­ bann var sett á og allar leiksýningar voru settar á ís. Aðstandendur sýninganna eru eðlilega fullir eftirvæntingar. L e i k a r a r n i r K r ist í n Þór a Haraldsdóttir og Hilmar Guð- jónsson í hlut- verkum sínum í verkinu Upp- haf. MYND/HÖRÐ- UR SVEINSSON Vala Kristín Eiríksdóttir og Hilmir Snær í hlutverkum sínum í Oleanna. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is heldur einnig fyrstu uppsetninguna í Þjóðleikhúsinu undir stjórn nýs Þjóðleikhússtjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Leikritið, sem var frumsýnt í Breska þjóðleikhúsinu í London fyrir þremur árum, hlaut einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda og hefur síðan verið sýnt víða um heim. Fyndið og ljúfsárt Um er að ræða fyndið og ljúfsárt leikrit sem fjallar um um þrána eftir nánd og löngun til að eignast fjöl- skyldu. En jafnframt um óttann við skuldbindingar og það að tengjast öðrum of sterkum böndum. Það eru leikararnir Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hilmar Guðjóns- son sem fara með hlutverk sýn- ingarinnar en þau leika nú saman í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu en bæði voru þau fastráðin við húsið í sumar. Getur ekki beðið María Reyndal leikstýrir verkinu og er hún eðli málsins samkvæmt spennt. „Mér þykir einstaklega vænt um að Upphaf sé fyrsta verkið sem er frumsýnt eftir þetta langa hlé. Þjóðleikhúsið hefur aldrei verið án leikhúsgesta í svona langan tíma í 70 ára sögu. Verkið er líka ákaflega gott og Kristín Þóra og Hilmar eru frábær í sínum hlutverkum. Ég get ekki beðið, ég er svo spennt að fá að frumsýna.“ Um verkið Það er miðnætti. Síðustu gestirnir úr innf lutningspartíinu hjá Guð- rúnu eru nýfarnir með leigubíl. Allir nema einn, Daníel, sem flæktist inn í partíið af hálfgerðri tilviljun. Hann hikar. Á hann að láta sig hverfa líka, eða þiggja eitt glas enn? Við fylgjumst með tveimur manneskjum reyna að nálgast hvor aðra. Þau þreifa sig áfram, kanna hvað þau gætu átt sameiginlegt. Straumarnir á milli þeirra … gæti þetta orðið upphafið að einhverju? Einnar nætur ævintýri? Eða er eitt- hvað miklu meira í vændum? Oleanna Borgarleikhúsið – Nýja sviðið Frumsýning: 18. september Fyrsta frumsýning Borgarleikhúss- ins þetta leikárið er Oleanna, tæp- lega 20 ára gamalt verk eftir banda- ríska leikskáldið David Mamet. Það eru þau Hilmir Snær Guðna- son og Vala Kristín Eiríksdóttir sem fara með hlutverk sýningarinnar, hlutverk ungu námskonunnar og háskólakennara hennar. Beittar og áleitnar spurningar Um er að ræða beitt verk sem spyr áleitinna spurninga og slær áhorf- endur jafnvel út af laginu. Í tilkynn- ingu frá leikhúsinu segir að á tímum þar sem umræður og deilur um skil- greiningarvald og ólíka orðræðu hafi magnast, sé þetta verk Mamets um vald og sannleika ofureldfimt. Gríðarleg tilhlökkun Hilmir Snær fer eins og fyrr segir með annað hlutverk sýningarinnar en lætur ekki þar við sitja og leik- stýrir því einnig, ásamt Gunnari Gunnsteinssyni sem segir að beðið hafi verið eftir frumsýningu gær- kvöldsins með mikilli eftirvænt- ingu. „Byrjað var að æfa verkið í febrú- ar og var það nánast tilbúið þegar samkomubann skall á. Leikarar og listrænir stjórnendur hafa beðið með óþreyju eftir því að geta loks sýnt verkið fyrir áhorfendum en það er ekki langt síðan að snerting var leyfð á æfingum og því hægt að fullklára verkið. Tilhlökkunin er því gríðarleg en líka fylgir þessu ákveðinn léttir, að geta klárað ætl- unarverkið – að eiga samtal við áhorfendur,“ segir Gunnar. Um verkið Ung námskona kemur í viðtalstíma til háskólakennara síns. Kennarinn nýtur mikillar velgengni í starfi og einkalífi, er að kaupa sér hús og á von á fastráðningu. Það sem byrjar sem sjálfsögð hjálp við námið breytist í miskunn- arlausa baráttu og óvænta atburða- rás, sem kollvarpar valdajafnvæg- inu á milli kennara og nemanda, karls og konu og lífi þeirra beggja í leiðinni. 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.