Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 90
ÞAÐ HEFUR VERIÐ
MIKIÐ FERLI AÐ KOMA
SKIPULAGI Á DÁNARBÚIÐ OG
ARFLEIFÐ HANS Á SVO MÖRGUM
SVIÐUM.Þetta er alveg búið að vera dýrmætt ferðalag. Í fimm ár,“ segir Kristín Andrea Þórðardóttir um heimildar my nd sína Er ást, sem hún
frumsýnir á Skjaldborgarhátíðinni
í Bíó Paradís í dag.
Myndin fjallar um sterka ást
Helenu Jónsdóttur kvikmyndaleik-
stjóra og Þorvalds Þorsteinssonar,
skálds og myndlistarmanns, sem
jafnvel dauðinn fær ekki aðskilið,
en í myndinni fylgir Kristín Andrea
Helenu þegar hún leitar að styrk til
að halda áfram með líf sitt og list-
sköpun samhliða því að koma arf-
leifð Þorvaldar í örugga höfn, eftir
ótímabært andlát hans 2013.
„Ég kynntist Þorvaldi í byrjun árs
2007 og við vorum góðir vinir,“ segir
Kristín Andrea, sem síðan kynntist
Helenu í gegnum Þorvald og eftir
andlát hans og vinnuna við mynd-
ina er vinátta þeirra orðin svo náin
að Kristín segist hiklaust líta á þær
sem fjölskyldu.
Saga um sorg og ást
Helena og Þorvaldur höfðu búið í
Antwerpen í Hollandi í um það bil
eitt og hálft ár þegar Þorvaldur lést í
febrúar 2013. „Það hefur verið mikið
ferli að koma skipulagi á dánar-
búið og arfleifð hans á svo rosalega
mörgum sviðum. Það eru leikverk,
myndlist og bókverk. Það er tónlist
og ótal textar og hugmyndafræði
í skapandi skrifum og mennta-
málum.
Hugmyndin var að fylgjast með
henni koma öllu í örugga höfn á
mismunandi vígstöðvum og fara
með henni í gegnum sorgarferlið
meðfram því,“ segir Kristín og bætir
við að undirliggjandi sagan sé svo
hin sterka ástarsaga Þorvaldar og
Helenu. „Þetta er mjög persónuleg
mynd og Helena hleypir áhorfand-
anum mjög nærri sér. Þessi persónu-
legu efnistök voru mjög krefjandi
fyrir Kristínu í hennar fyrsta leik-
stjórnarverkefni, eftir að hafa verið
kvikmyndaframleiðandi um árabil.
Helena kom af og til heim til
Íslands eftir að Þorvaldur lést en
Kristín segir þær heimsóknir hafa
verið henni erfiðar. „Þannig að
hún var kannski ekkert að stoppa
lengur en hún þurfti. Helena hefur
kennt leikstjórn með hreyfimið-
aða nálgun við Listaháskólann um
árabil og þetta voru yfirleitt styttri
vinnuferðir tengdar þeirri kennslu.“
Hugljómun í ljósabúri
Kristín Andrea segir þær Helenu
hafa eytt talsverðum tíma saman í
þessum stuttu ferðum og það var í
einni slíkri, rúmlega tveimur árum
eftir að Þorvaldur lést, sem hug-
myndin að heimildarmyndinni
kviknaði hjá henni, á Listahátíð
2015.
Þá var opnuð myndlistarsýning á
verkum Þorvaldar í Hverfisgalleríi
og að kvöldi þess dags voru haldnir
tónleikar í Gamla Bíói með lögum
úr Ósómaljóðum, lagabálki sem
Þorvaldur samdi á námsárunum í
Hollandi í kringum 1990.
Kristín var Helenu til halds og
trausts á tónleikunum, þar sem hún
sá um sjónræna þáttinn.
„Ég var með henni uppi í ljósabúri
og það var þarna sem hugmyndin
kom, þegar það rann upp fyrir mér
hversu mikil ábyrgð er skilin eftir
hjá eftirlifandi maka listamanns
sem hefur skilið jafn mikið eftir sig
og Þorvaldur gerði á svo mörgum
sviðum.
Svo að það er ekki bara sorgin og
allt sem þarf að huga að eftir andlát
einhvers nákomins, heldur fylgir
því sú aukna ábyrgð að halda arf-
leifðinni og nafni listamannsins á
lofti.
Yfir mörk lífs og dauða
Þorvaldur snerti við svo mörgum á
lífsleiðinni og mörgum finnst þeir
eiga hlut í honum og hann heldur
áfram að hafa áhrif á fólk um ókom-
in ár. Líf og dauði eru landamæra-
laus að þessu leyti.“
Myndin dregur upp svipmyndir
af tveimur listamönnum á meðan
hún segir sögu ástar, sorgar og sorg-
arúrvinnslu, þar sem Kristín notast
mikið til við ómetanlegt safn efnis
úr einkasafni Helenu.
„Ég leitaði víða fanga en það er
einmitt þetta persónulega mynd-
efni sem er svo dýrmætt. Það minn-
ir mann líka á að fanga hversdagsleg
augnablik með sínum nánustu. Því
þó þau þyki ekki endilega dýrmæt
þegar þau eru tekin þá geta þau
orðið það löngu seinna, þegar þau
geta hafa öðlast aukið tilfinninga-
legt gildi.“
Kosmískir kraftar
Það var ekki til að auðvelda Kristínu
efnisöflunina að þegar Þorvaldur og
Helena f luttu til Antwerpen 2011
dreifðist búslóð þeirra á nokkra
staði.
„Ég vissi af tilvist ákveðins mynd-
efnis sem við vorum búin að leita að
alveg ótal sinnum í geymslum hérna
á Íslandi, heima hjá móður hennar
og eins úti í Antwerpen, og bara
fundum þetta ekki.
Ég var um það bil búin að gefast
upp þegar þetta kom svo í ljós,
lengst inni í skáp heima hjá móður
hennar. Þetta var lítil DV-spóla sem
hafði dottið á bak við þil, en það var
síðla sumars í fyrra sem efnið kemur
í ljós. Þá fannst mér við getað farið
að huga að því að læsa klippinu.
Ég held að kosmósið hafi aðeins
verið að vinna með mér þarna,“
segir Kristín Andrea, sem er loksins
komin í höfn eftir fimm ára ferða-
lag með þessa mjög svo persónulegu
mynd.
„Ég er svo þakklát öllum þeim
sem hafa lagt krafta sína í þetta
verkefni,“ segir leikstjórinn og
nefnir sérstaklega kvikmyndatöku-
manninn Bjarna Felix Bjarnason,
klipparann Sighvat Ómar Krist-
insson, Úlf Eldjárn, sem samdi tón-
listina, og hljóðhönnuðinn Kjartan
Kjartansson „Umfram allt hefur
þetta ferðalag með Helenu verið
mér ómetanleg reynsla, en hennar
helsti hvati til að taka þátt í þessu
verkefni var að opna umræðuna um
sorgina, því það eru ekki svo mörg
verkfæri sem syrgjendur geta gripið
í á leið sinni um þennan erfiða dal,
Íslendingar hafa verið fremur gjarn-
ir á að bíta á jaxlinn, setja hausinn
undir sig og knýja sig áfram, en ég
held að við verðum að fara að gefa
okkur pláss til að vera f lóknari til-
finningaverur en svo.“
toti@frettabladid.is
Sterk ást lifir í auðugu
dánarbúi hugverkanna
Heimildarmyndin Er ást, eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur,
fjallar um ástarsamband Helenu Jónsdóttur og Þorvalds Þor-
steinssonar og vinnu hennar við að koma listrænni arfleifð Þor-
valds í örugga höfn og halda áfram eftir ótímabært andlát hans.
Kristín Andrea var fimm ár að gera heimildarmynd um ástarsamband Helenu Jónsdóttur og Þorvalds Þorsteins-
sonar, ótímabært andlát hans og hvernig hún hélt áfram og kom arfleifð Þorvalds í örugga höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Veglegt sérblað um jólagjafir til starfsmanna og
viðskiptavina fyrirtækja kemur út 9. október nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í mes lesna dagbl ði landsins.
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ