Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 42
Umsjónarmaður
fasteigna
Verzlunarskóli Íslands auglýsir laust til
umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna.
Í starfinu felst dagleg umsjón með húseignum og
búnaði skólans þ.m.t. ýmislegt viðhald og viðgerðir.
Umsjónarmaður er í samskiptum við eftirlitsaðila,
t.d. um bruna- og heilbrigðiseftirlit. Umsjónarmaður
annast jafnframt innkaup á húsbúnaði og vörum er
lúta að viðhaldi og rekstri húseigna.
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum
einstaklingi sem lætur sér annt um eignir skólans
og er lipur í mannlegum samskiptum. Um er að
ræða fjölbreytt starf á lifandi og skemmtilegum
vinnustað.
Hæfnikröfur:
Tæknimenntun, iðnmenntun eða sambærileg
menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla sem nýtist í starfi.
Þekking á framkvæmdum og viðhaldi.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Almenn tölvukunnátta.
Við bjóðum:
Góða vinnuaðstöðu.
Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen
starfsmanna- og þróunarstjóri gunninga@verslo.is
eða í síma 5 900 600. Umsóknarfrestur er til 1.
október og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á
netfangið gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með 1030 nemendur og er
húsnæði skólans 10.750 fermetrar. Samkvæmt lögum um
framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa
sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og
því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
REKSTRARSTJÓRI
Steypustöðin óskar eftir að ráða rekstrarstjóra fyrirtækisins í
Borgarnesi. Leitað er að öflugum einstaklinga í spennandi og
krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarf.
Leitað er að öflugum stjónanda með mikla stjórnunar- og rekstrar
reynslu. Lögð er áhersla á framsýni, umbótahugsun og skilning á
mikilvægi bestunar á framleiðsluferli og hámarksnýtingu þeirra
tækifæra sem eru framundan í rekstri.
Helstu verkefni
• Rekstur einingaverksmiðju í Borgarnesi
• Gæða og öryggismál
• Bestun framleiðsluferla
• Samskipti við viðskiptavini
• Innleiðing breytinga og nýrra tæknilausna
• Tryggja að ferli frá pöntun til afhendingar sé skilvirkt
• Greiningar og eftirfylgni KPI
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Björnsdóttir mannauðsstjóri, sirry@steypustodin.is.
Umsóknarfrestur er til 27.september 2020
Tekið er á móti umsóknum í gegnum Alfred.is og á netfangið atvinna@steypustodin.is.
Öllum umsóknum um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
Steypustöðin ehf | Malarhöfða 10 | 110 Reykjavík | steypustodin.is | s: 4 400 400
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d.
á sviði tæknimenntunar
• Leiðtogahæfni og forystuhugsun
• Framsýni, frumkvæði og skilningur á
þróun tæknilausna
• Reynsla af verkefnastýringu og
ferlavinnu
• Góð greiningarhæfni
• Þekking og reynsla úr byggingariðnaði
mikill kostur
Hæfniskröfur
Við óskum eftir liðsauka í að efla ármála- og
rekstrarsvið fyrirtækisins auk þess sem
viðkomandi mun taka að sér önnur tengd verkefni
í rekstri fyrirtækisins og stoðdeildum.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af störfum
af þessum toga auk þess að hafa ríka
þjónustulund gagnvart samstarfsfólki og
viðskiptavinum.
Hæfniskröfur eru:
- Góð reynsla af ármálum og rekstri almennt
- Menntun á háskólasviði sem nýtist í starfinu
- Framúrskarandi tölvuþekking
Umsóknir berist ásamt ferilskrá á
atvinna@ldx.is merktar ,,Snillingur í ármálum”.
Umsóknarfrestur er til og með 5. okt n.k.
SNILLINGUR Í FJÁRMÁLUM OG REKSTRI
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is