Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 24
Misskildir skúrkar
Helgi lætur ekki eina þáttaröð á
helgi nægja, heldur leikur hann
einnig í þáttunum Ráðherrann sem
hefja göngu sína á sunnudaginn.
„Ef veðrið verður áfram grátt held
ég það verði fátt betra en að sitja
heima með heitt kókó eða rauð-
vínsglas og njóta þess að glápa.“
Það er erfitt að draga upplýs-
ingar um þættina upp úr Helga
sem reynist afar varkár til að spilla
ekki neinu. „Þetta myndi líklega
f lokkast undir pólitískt drama, ef
það þyrfti að gefa þessu einhvern
merkimiða á streymisveitum. Það
er auðvitað spenna í þessu líka,
og klækjabrögð eins og gengur og
gerist í pólitískum tryllum.“
Þættirnir fjalla um forsætisráð-
herra Íslands, sem Helgi segir að
gangi ekki alveg heill til skógar.
„Það býður upp á ansi áhugaverðar
f lækjur sem persónurnar þurfa að
takast á við. Mikil spenna þar sem
fólk þarf að bregðast við óvæntum
uppákomum.“
Sjálfur leikur Helgi tengdaföður
forsætisráðherrans, mann sem
hefur bæði fjármuni og völd. „Ég
leik þarna ansi innmúraðan bak-
hjarl í stjórnmálaf lokknum. Hann
hefur lent í einhverjum árekstrum
í fortíðinni sem ekki hefur verið
leyst úr.“
Erum við þá að tala um einhvern
skíthæl, eins og þú hefur nú stund-
um leikið áður? „Það skemmtilega
við þetta er að áhorfendum gefst
sjálfum tækifæri til að túlka hlut-
ina á sinn hátt. Mér finnst ég sjálfur
aldrei vera að leika neina skíthæla,
samt. Þetta eru allt fyrirmyndar-
menn.“ segir Helgi glottandi. En
hvað með Tryggva úr Reykjavík
Whale Watching Massacre? „Já,
hann er á gráu svæði!“
Þar sem pólitískir tryllar eru
Helga mjög hugleiknir var auðvelt
að snara hann í verkefnið. „Mér var
boðið í prufu og fékk hlutverkið
í kjölfarið. Þetta er mjög f lott
handrit,“ segir Helgi sem segir fátt
skemmtilegra en þætti á borð við
House of Cards og Borgen.
„Ég var alveg á heimavelli þarna.
Handrit verða oft keimlík, til
dæmis í spennuþáttum og morð-
gátum og svona, en ég held að þetta
verði fyrsta íslenska serían sem er
á þessum nótum. Það var óneitan-
lega skemmtilegt að takast á við
eitthvað á öðrum nótum en þeim
sem maður er vanur.“
Aftur í veitingabransann
Það er ekki að ástæðulausu að við-
talið við Helga fer fram á Hótel
Borg, en hann stefnir á veitinga-
rekstur í sölum hótelsins í náinni
framtíð. „Þetta er allt á frumstigi
ennþá, en þegar mér bauðst að taka
þessu verkefni skoraðist ég ekkert
undan því,“ segir Helgi sem hyggst,
ásamt Guðfinni Karlssyni veitinga-
manni, hefja Borgina aftur til fyrri
dýrðar.
„Við viljum koma Gyllta salnum
aftur í notkun þar sem vonandi
verður hægt að dansa, eins og sagan
ber með sér. Það er algjör synd að
einn fallegasti salur Reykjavíkur
hafi bara verið settur undir pítsuofn.
Mér hugnast það engan veginn.“
Þetta eru ekki fyrstu skref Helga
í veitingabransanum, en hann
hannaði og stofnaði veitingastað-
inn Astró á sínum tíma, við hvern
hin svokallaða Astró-kynslóð er
gjarnan kennd. Þar að auki hefur
Helgi einnig verið í veitingarekstri
í Berlín.
Hvað eldamennskuna heima
fyrir varðar, segir hann að hún vilji
oft fara í ítalskar áttir. „Einn uppá-
haldsrétturinn minn er „vitello a la
milanese“ eða kálfasnitsel að hætti
Mílanóbúa. Maður lærði auðvitað
heilmikið þarna úti.“
Helgi er ekki tilbúinn að segja
til um hvort ítalskir réttir verði
í forgrunni í sölum Borgarinnar,
en lofar að þar verði vandað til
verka. „Það eru ekki margir staðir
á Íslandi sem eru jafn „grand“ og
„classy“ og Borgin.“
Einyrkjar fá rödd
Í byrjun september var Félag sjálf-
stætt starfandi tónlistarmanna
(FSST) sett á laggirnar, þar sem Helgi
sinnir formennsku.
„Auðvitað hefði átt að vera búið
að stofna þetta félag fyrir löngu
síðan, en það skapast sérstök þörf
í ástandinu sem við lifum í þessa
dagana,“ segir Helgi. „Okkur tónlist-
armönnum er beinlínis bannað að
vinna, en vegna fjöldatakmarkana
er búið að slá allt af, jafnvel afmæli,
brúðkaup og jarðarfarir.“
Markmiðið með stofnun félagsins
var að gefa sjálfstætt starfandi tón-
listarmönnum sameiginlega rödd.
„Það áorkar engu ef allir eru að tala
bara hver í sínu horni. Þessi hópur
einyrkja í bransanum hefur mikið
verið að vinna verktakavinnu og til
þessa hafa þeir ekki haft neitt félag
í kringum sig – ekkert bakland sem
greip okkur þegar ástandið skall á.“
Strembinn bransi
Brýnasta verkefni FSST segir Helgi
vera að hjálpa þeim félagsmönnum
sem hafa verið atvinnulausir lengi.
„Það er mjög misjafnt hvernig fólk
stendur. Ég var mjög heppinn að fá
þau sjónvarpsverkefni sem ég fékk,
og aðrir hafa getað bjargað sér með
einhverjum hætti, en f lestir eru
í vandræðum. Margir hafa verið
atvinnulausir í hálft ár og það lifir
það enginn af til lengdar. Það gengur
ekki endalaust að frysta lánin, semja
við skattinn og hækka yfirdráttinn.“
Þá segir Helgi að mikilvægt sé að
standa vörð um ýmis réttindi félags-
manna, sem geta oft verið óljós.
„Margir tónlistarmenn geta líka átt
erfitt með að fá fæðingarorlof, þar
sem tekjurnar eru sveif lukenndar
og ekki fastar. Það eru ýmsir mein-
bugir við þennan blessaða bransa
sem passa ekki inn hjá Vinnumála-
stofnun. Fólk verður að fá einhverj-
ar bætur svo það missi einfaldlega
ekki heimilin.“
Þakklátur þjóðinni
Viðtökurnar við félaginu hafa verið
góðar. „Það hrúgast inn félagar. Við
náðum sambandi við menntamála-
ráðherra og þar er verið að smíða
einhverjar tillögur að aðgerðum. Ég
vona að þeim beri gæfa til að hrinda
þeim í framkvæmd sem allra fyrst,
fyrir tónlistarmenn og aðra. Við
erum auðvitað ekkert ein í þessum
aðstæðum, en við getum bara talað
fyrir okkur.“
Landsmenn hafa líka sýnt fram-
takinu mikinn stuðning og nýlega
var mínútu þögn á fjölda útvarps-
stöðva, til samstöðu með tón-
listarmönnum. „Það er frábært að
fá stuðning frá þjóðfélaginu, en
þegar öllu er á botninn hvolft snýst
þetta um stjórnvöld. Það þarf alltaf
fjármagn þegar farið er út í svona
aðgerðir. Þetta kostar auðvitað allt
peninga. Staðan er bara orðin það
erfið hjá stórum hópi að eitthvað
verður að gera, og eitthvað verður
að gera hratt.“
Sem dæmi um mikla óvissu tón-
listarfólks landsins þarf ekki að líta
lengra en á fyrirætlaða Sumarhátíð
Helga. „Upprunalega áttu þessir
tónleikar að vera í apríl, en þeim
hefur nú verið frestað í tvígang.
Herlegheitin eru nú sett í lok októ-
ber, en miðað við nýjustu fréttir þá
er allt eins líklegt að þessu verði
aftur skellt á frest.“
Þrátt fyrir að það sé vissulega
undarlegt að skipuleggja sumar-
hátíð í haustlok segist Helgi vera
þakklátur. „Maður er þakklátur
fólki fyrir þessa ótrúlegu þolin-
mæði og þennan skilning sem það
hefur sýnt. Það er ekki hægt að gera
annað en að lofa því að þetta verður
alvöru show þegar loksins kemur að
því.“
Það eru allir sexí
Þrátt fyrir að vera kominn yfir sext-
ugt er Helgi enn eitt af helstu kyn-
táknum landsins þótt hann skilji
ekkert í því sjálfur. Hann ranghvolfir
augunum þegar hann er beðinn um
ráð fyrir upprennandi kyntákn. „Ég
hef aldrei almennilega skilið þetta.
Ég reyni reyndar alltaf að vera líf-
legur og hress á sviðinu, en ætli
þetta komi ekki hreinlega frá því að
ég sé alltaf að spyrja fólk hvort það
séu ekki allir sexí? Svo hefur þetta
kannski bara snúist yfir á mig.“
Spurningin sem hefur verið svo
einkennandi segir Helgi vera retór-
íska. „Það sem ég á við með þessari
spurningu er að það eru allir sexí á
sinn hátt. Fyrirframgefnar tölur um
stærðir á hinu og þessu hafa ekkert
með það að gera, og þar tala ég sjálf-
ur af biturri reynslu,“ segir hann og
skellir upp úr. „Ef ég er dæmdur kyn-
þokkafullur hefur það sko ekkert að
gera með kassastærðina.“
Hreyfir sig eftir veðri
Þegar verkefnin eru jafn mörg og
raun ber vitni getur ekki verið auð-
velt að finna frítíma, en Helgi segir
að það takist nú samt. „Við hjónin
höfum mikið verið uppi í bústaðn-
um okkar í Þingvallasveit. Þar erum
við líka með hesta. Vilborg er mjög
dugleg að ríða út og við náðum
aðeins að gera það í ágúst, ásamt
því að mála þakið á bústaðnum og
stússast aðeins.“
Þá hafa Helgi og gömlu félagarnir
frá Ísafirði haft þann sið að ganga
árlega út á Hornstrandir og um
Jökulfirðina, en skiljanlega urðu
tálmanir þar á vegi í sumar. „Við ætl-
uðum að fara í Hornvík í sumar, en
tímasettum það þegar stærsti veður-
hvellurinn var í júní. Við breyttum
þá aðeins plönunum og tjölduðum
á Grímsstöðum á Fjöllum í staðinn í
sautján stiga hita og glampandi sól.
Gengum svo Jökulsárgljúfrin. Þetta
var alveg meiriháttar.“
Í framtíðinni segir Helgi að ferða-
plönin verði því frekar leikin af
fingrum fram. „Framvegis bleytum
við bara fingurinn og fylgjum vind-
inum. Ísland er svolítið þannig að
maður verður að hreyfa sig eftir
veðri.“
Kósíkvöldin
Þá hefur Helgi eins og áður var
nefnt gaman af stjórnmála- og sam-
félagsrýni í sjónvarpi. „Ég hef verið
að fylgjast með þessum þáttum
sem heita Social Dilemma og fjalla
mikið um samfélagsmiðlana. Þetta
fjallar um neikvæð áhrif samfélags-
miðla þar sem innanbúðarmenn
eru að gagnrýna neikvæða þróun
þeirra. Það snýst ekki um að það sé
verið að selja upplýsingarnar þínar
til að búa til pening, heldur er verið
að snúa skoðunum heimsins í ein-
hverjar áttir sem hefur náttúrulega
þvílík áhrif. Þetta er stórmerkilegt
og óhuggulegt líka.“
Svarið við ógnvænlegu ástandi
heimsins telur Helgi vera afturhvarf
til gömlu góðu kvöldvökustemmn-
ingarinnar. „Allir safnast saman,
syngja nokkur létt lög og passa að
hlutirnir séu ekki of f lóknir – ég
held að það sé rétta leiðin til að róa
okkur niður og njóta þess að hafa
gaman.“
Helgi segist vilja hefja Borgina aftur til fyrri dýrðar og að hægt verði að dansa í Gyllta salnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞETTA VAR MEIRA AÐ
SEGJA ORÐIÐ ÞANNIG AÐ
VIÐ FUNDUM GJAFIR Á
TRÖPPUNUM FYRIR UTAN
HJÁ OKKUR. KÖRFUR
MEÐ ALLS KONAR FÍNERÍI,
KÖKUR OG FLEIRA TIL.
ÞAÐ ER ALGJÖR SYND AÐ
EINN FALLEGASTI SALUR
REYKJAVÍKUR HAFI BARA
VERIÐ SETTUR UNDIR
PÍTSUOFN. MÉR HUGNAST
ÞAÐ ENGAN VEGINN.
Framhald af síðu 22
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð