Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 75
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
Við ætluðum upphaflega að
vera viðstödd og vorum búin
að öngla saman fyrir farinu, en
nærveru okkar var ekki óskað.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
dr. Gunnar Mýrdal Einarsson
yfirlæknir og sérfræðingur í
brjóstholsskurðlækningum,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
þann 10. september sl.
Jarðarförin fer fram miðvikudaginn
23. september kl. 15.00, frá Hallgrímskirkju.
Streymt verður frá athöfninni:
https://vimeo.com/event/305327.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Minningarsjóð Gunnars Mýrdal hjá Kviku
fjárfestingarbanka: 0701-26-110464, kt. 030579-3649.
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Hulda Haraldsdóttir
Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir Þórunn María Kærnested
Dagmar Mýrdal Gunnarsd. Bryndís María Theódórsd.
Erna Mýrdal Gunnarsdóttir Anton Ingi Sigurðarson
Valdís Jóna Mýrdal Gunnarsdóttir
Gunnar Breki Mýrdal Gunnarsson
Rafn Alexander Mýrdal Gunnarsson
Geirlaug María Mýrdal Gunnarsdóttir
Kara Lív Mýrdal Dagmarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi,
Jón Guðmundsson
arkitekt,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar
sunnudaginn 6. september 2020.
Útförin fer fram í Dómkirkjunni,
24. september kl. 13.
Ragnheiður Björk Hreinsdóttir
Sigurrós Jónsdóttir Brynjar Þór Björnsson
Guðmundur Hjalti Jónsson Lísa Mikaela Gunnarsdóttir
Ingunn Ívarsdóttir
Bjartmar og Sólmar
Elskuleg móðir okkar,
amma og langamma,
Ingigerður Stefanía
Óskarsdóttir
(Inga)
lést á hjartadeild Landspítalans
aðfaranótt 15. september.
Útför verður auglýst síðar.
Guðjón Árni Konráðsson
Jóna Ósk Konráðsdóttir
Guðmundur Kristinn Konráðsson
Óli Gunnarr Håkansson Lena Håkansson
Hildur Arna Håkansson Andri Buchholz
Frantz Adolf Håkansson
Crystal Elaine Moore Håkansson
Henný Guðmundsdóttir Magnús Þór Bjarnason
Tinna Guðmundsdóttir
Inga Kavow Guðmundsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og sonur,
Bjarni Sverrisson
Hnjúkaseli 4,
lést á líknardeild Landspítalans,
þriðjudaginn 15. september.
Útför hans verður frá Seljakirkju,
föstudaginn 25. september, klukkan 15. Streymt
verður frá útförinni á https://www.facebook.com/
minningarsidabjarnasverrissonar.
Hanna María Oddsteinsdóttir
Linda Björk Bjarnadóttir Bragi Hilmarsson
Guðný Sigríður Bjarnadóttir Kristinn Snær Agnarsson
Lára Jóhannesdóttir Sverrir Geirdal
Lilja Jóhannesdóttir Reynir Björnsson
Steinunn Árnadóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæri sonur og faðir,
Kjartan Sveinarsson
andaðist á Landspítalanum við
Hringbraut, 3. september sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
F.h. ástvina,
Margrét Kjartansdóttir
Sveinar Eyfjörð Þórsson
Margrét Kjartansdóttir
Jón Valgeir Kjartansson
Kristín H. Pálsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Skipalóni 24,
Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
10. september. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði, miðvikudaginn
23. september klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánasta fjölskylda og vinir
verða viðstaddir. Athöfninni verður streymt á
https://www.sonik.is/kristin.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Rjóðrið, hvíldar- og endurhæfingarheimili
fyrir langveik börn: 0513-26-22241, kt. 640394-4479.
Guðmundur Friðrik Sigurðsson
Sigrún Sveinbjörnsdóttir Michael Ted Lawson
Páll Arnar Sveinbjörnsson Henny María Frímannsdóttir
Þröstur Sveinbjörnsson Valgerður Jóna Jónbjörnsd.
Jónas Hagan Guðmundsson Jóhanna Sævarsdóttir
Magnús Friðrik Guðmundss. Becky Guðmundsson
og barnabörnin tólf.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristínar Önnu
Guðjónsdóttur
Álfaskeiði 58, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Sólvangi.
Guðjón Þorkelsson Sesselja G. Sigurðardóttir
Magnús Þorkelsson Guðrún Ásmundsdóttir
Íris Þorkelsdóttir Friðrik Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og
hlýju við andlát elsku móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Kristínar L. Valdemarsdóttur
Sléttuvegi 11,
áður Hrauntungu 22, Kópavogi,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 6. ágúst sl.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks Báruhrauns í Hafnarfirði
fyrir einstaka umhyggju.
Kærleikskveðja,
Frosti Bergsson Halldóra M. Mathiesen
Valdimar Bergsson Helga M. Geirsdóttir
Anna Rós Bergsdóttir Haraldur Guðfinnsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Ástkær dóttir okkar og systir,
Eiríka Steinunn Petersen
Agnarsdóttir
lést í faðmi ástvina sinna á
gjörgæsludeild Landspítalans við
Fossvog, miðvikudaginn 9. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju,
fimmtudaginn 24. september, kl. 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina.
Agnar Már Jónsson Soffía Dóra Sigurðardóttir
Sigurður Andri Agnarsson
Anna Kristín Petersen Agnarsdóttir
Elsku faðir minn, afi,
tengdafaðir og bróðir,
Jóhann Guðjónsson
líffræðingur og kennari við
Flensborgarskólann,
lést þann 14. september.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju,
föstudaginn 25. september, kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja
umhverfis- og náttúruverndarsamtök að eigin vali.
Guðrún Eva Jóhannsdóttir Jón Trausti Guðjónsson
Jóhanna Eldey Óskarsdóttir Gunnsteinn Guðjónsson
Daníel Orri Óskarsson Anna Kristín Guðjónsdóttir
Óskar Pétur Einarsson Magnús Guðjónsson
Ingvar Guðjónsson
Sex af níu eigendum listaverka í kassanum sem sendur var til Svíþjóðar: Ragnar
Hólm, Ívar Freyr, Jónborg (Jonna), Anna, Guðrún H. (Hadda) og Guðmundur Ármann.
Samsýning níu íslenskra mynd-listarmanna verður opnuð í bænum Hälleforsnäs í Svíþjóð í dag, 19. september, undir yfir-skriftinni Islandsfärger, sem útleggst: Litir Íslands.
Listaverkin eru af ýmsum toga: tví-
og þrívíð textílverk, bókverk, málverk,
vatnslitamyndir, samklippur og papp-
írslágmyndir og bak við þau er níu
manna hópur sem tengist Gilfélaginu á
Akureyri, þó ekki búi allir í höfuðstað
Norðurlands.
„Opnunin verður með óhefðbundnum
hætti vegna COVID-19 en hún verður
send út beint á netinu. Þar mun fara fram
samtal nokkurra þátttakenda, sænskra
listamanna og listnema. Við ætluðum
upphaflega að vera viðstödd og vorum
búin að öngla saman fyrir farinu, en nær-
veru okkar var ekki óskað og við skiljum
það. Enda mælst til að ekki séu fleiri en
10 saman í sýningarrýminu,“ segir Guð-
mundur Ármann Sigurjónsson, einn
þeirra sem eiga verk á sýningunni. Hinir
eru Anna Gunnarsdóttir, Eiríkur Arnar
Magnússon, Guðrún H. Bjarnadóttir
(Hadda), Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir,
Ívar Freyr Kárason, Jónborg Sigurðar-
dóttir (Jonna), Ragnar Hólm Ragnarsson
og Sigurður Magnússon.
„Við erum að endurgjalda sýningu
sem hópur sænskra listamanna kom
með til okkar og var í Deiglunni á Akur-
eyri haustið 2018,“ segir Guðmundur.
Sýningin í Hälleforsnäs stendur til 22.
nóvember. gun@frettabladid.is
Litir Íslands utanlands
Í sænska bænum Hälleforsnäs verður viðburður í dag, þegar sýning níu íslenskra mynd-
listarmanna verður opnuð, klukkan 12 að íslenskum tíma. Hún nefnist Islandsfärger.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0