Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 6
VIÐSKIPTI Hluthafalisti Icelandair mun taka verulegum breytingum eftir hlutafjárútboð sem fór langt fram úr væntingum markaðarins. Fagfjárfestar sem voru stórir hlut- hafar fyrir útboðið ákváðu að taka ekki þátt í útboðinu á meðan aðrir bættu verulega við hlut sinn og nýir komu inn af þunga. Stjórn Icelandair samþykkti yfir níu þúsund áskriftir að fjárhæð 30,3 milljarðar króna og var því ákveð- ið að nýta heimild til stækkunar útboðsins þannig að fjöldi seldra hluta verði 23 milljarðar. Nýjum hlutum fylgja 25 prósenta áskriftar- réttindi eða sem nemur 5,75 millj- örðum hluta. Fréttablaðið tók saman yfirlit yfir þátttöku helstu fagfjárfesta í útboð- inu. Sjóðir í stýringu Stefnis, sjóða- stýringarfélags Arion banka, sem áttu samtals 12,25 prósenta hlut fyrir útboðið, tóku þátt samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hlutur Stefnis mun þó minnka töluvert miðað við það sem áður var, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem var næststærsti hluthafinn með 11,8 prósenta hlut, tók ekki þátt. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins féll tillaga um að lífeyris- sjóðurinn myndi skrá sig fyrir 2,5 milljarða króna hlut í útboðinu á jöfnum atkvæðum þar sem fjórir stjórnarmenn greiddu atkvæði með og fjórir greiddu atkvæði gegn. Ef tillagan hefði verið samþykkt hefði Lífeyrissjóður verzlunarmanna verið með rúmlega 11 prósenta hlut í Icelandair í kjölfar útboðsins. Þá hafði um nokkurt skeið verið vitað að PAR Capital, sem var stærsti hluthafinn í Icelandair þegar kórónafaraldurinn skall á, myndi ekki taka þátt. Bandaríski fjárfest- ingasjóðurinn hafði selt sig niður í þriðja sæti hluthafalistans og nam eignarhluturinn 10 prósentum fyrir útboðið. Á r ni Guðmu ndsson, f ram- kvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs, staðfesti þátttöku sjóðsins í sam- tali við Viðskiptablaðið en hann gaf ekki upp hversu há fjárhæðin væri. Gildi var fjórði stærsti hlut- hafi Icelandair með 7,24 prósenta hlut fyrir útboðið. Lífeyrissjóður starfsmanna rík- isins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins og fjórði stærsti hluthafi Icelandair Group, skráði sig fyrir um 2 milljörðum hluta í því skyni að verja 8,25 prósenta eignarhlut sinn. Birta lífeyrissjóður, sem var sjötti stærsti hluthafi Icelandair Group með rúmlega 7 prósenta hlut, ákvað að taka ekki þátt í hlutafjárútboði f lugfélagsins. „Samstaða var um þessa ákvörðun bæði hjá starfs- mönnum og stjórn eftir ítarlega skoðun á málinu þar sem mörg fagleg sjónarmið vógust á,“ sagði í tilkynningunni frá sjóðnum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem fór með 2,8 prósenta hlut, tók ekki þátt í útboðinu samkvæmt svari frá Arn- aldi Loftssyni, framkvæmdastjóra sjóðsins. Sama gildir um Festu líf- eyrissjóð og Íslenska lífeyrissjóð- inn en hvorugur var á listanum yfir tuttugu stærstu hluthafana fyrir útboðið. Brú lífeyrissjóður tók þátt í útboðinu og fékk úthlutað 1.260 milljónum hluta. Þetta stað- festir Gerður Guðjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Brúar, í samtali við Fréttablaðið. Eignarhlutur Brúar, sem var 1,77 prósent, hækkar því í tæp 4,8 prósent eftir útboðið. Almenni lífeyrissjóðurinn tók þátt í útboði Icelandair Group sam- kvæmt svari frá Kristjönu Sigurðar- dóttur fjárfestastjóra og fékk rúma 441 milljón í sinn hlut. Eignarhlutur sjóðsins eykst því úr 1,5 prósentum upp í 1,8 prósent. Lífsverk, sem átti ekki teljandi hlut í Icelandair, sótti um 400 milljónir króna í útboðinu og fékk úthlutaðar 252 milljónir, sem sam- svarar tæplega 0,3 prósentum af eignum samtryggingardeildar. „Samhljómur var meðal stjórnar og eignastýringar Lífsverks að taka þátt í hlutafjárútboðinu,“ sagði í til- kynningu Lífsverks. Eftirlaunasjóður FÍA, sem átti smávægilegan hlut fyrir útboðið, keypti fyrir 439 milljónir. Íslandssjóðir, dótturfélag Íslands- banka tóku „vel þátt“ í útboðinu að sögn Kartans Smára Höskuldssonar framkvæmdastjóra en fjárhæðir eru ekki opinberar upplýsingar. Félag- ið var ekki á listanum yfir tuttugu stærstu hluthafana fyrir útboðið. Ekki fengust svör frá Landsbréfum, dótturfélagi Landsbankans, við fyrirspurn um þátttöku en félagið átti 1,9 prósenta hlut fyrir. Þá segir Jóhann Steinar Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Stapa líf- eyrissjóðs, sem átti 1,36 prósent, að sjóðurinn hafi tekið þátt í útboði Icelandair „í samræmi við hluta- fjáreign sína í félaginu“. Má því ætla að Stapi hafi keypt hluti í útboðinu fyrir tæplega 400 milljónir króna. Útgefið hlutafé Icelandair, sem verður aukið úr 5,4 milljörðum í 28,4 milljarða í kjölfar útboðsins, mun þynnast niður í um 19 til 21 prósent og ef nýir fjárfestar félags- ins nýta sér þau áskriftarréttindi sem fylgja með bréfunum, sem hægt verður að gera í einu lagi eða skrefum til allt að tveggja ára, þynn- ist eignarhlutur hluthafa niður í allt að 16 prósent. thorsteinn@frettabladid.is Nýr hluthafahópur tekur á sig mynd Uppstokkun verður í hluthafahópi Icelandair Group eftir útboðið. Íslandssjóðir tóku „vel þátt“ í útboðinu. Brú bætir verulega við hlut sinn og Lífsverk kemur nýr inn. Frjálsi sat hjá og hlutur Stefnis þynnist þrátt fyrir þátttöku. Almenni og Stapi viðhalda sínu. Mikil eftirspurn var eftir hlutum frá almennum fjárfestum og verður eignarhlutur þeirra í félaginu um 50 prósent í kjölfar útboðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Pálmi Haraldsson keypti hlut Pálmi Haraldsson staðfesti í samtali við Fréttablaðið að hann hefði tekið þátt. Eignar- hlutur Pálma í Icelandair, sem nam um 3 prósentum, er meðal annars í gegnum eignarhalds- félögin Sólvöll og Ferðaskrif- stofu Íslands. Pálmi var á sínum tíma stór hluthafi í Icelandair og sat í stjórn flugfélagsins á árunum 2003 og 2004. Vænting ehf., fjárfestingafélag Bláa lónsins, sem var með 1,3 pró- senta hlut, tók hins vegar ekki þátt samkvæmt svari frá Helgu Árnadóttur, framkvæmda- stjóra hjá Bláa lóninu. Þá náðist ekki í Högna Pétur Sigurðsson, fjárfesti og eiganda Hard Rock Cafe á Íslandi, sem varð stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Icelandair í vor. Hann átti þá samanlagt 3,4 prósent. Furðar sig á afstöðu fulltrúa launþega í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Guðrún Hafsteinsdóttir, vara- formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að and- stæðir pólar hefðu tekist á innan stjórnarinnar við mat á því hvort taka ætti þátt í hlutafjárútboði Icelandair. „Við fulltrúar atvinnurekenda vorum samstíga í því að styðja þátttöku,“ útskýrir Guðrún. Hún sagðist hafa átt von á því að stjórnin, sem telur átta manns, myndi standa saman að því að verja störf félagsmanna og þá hagsmuni sem eru undir fyrir íslenskt efnahagslíf að tryggja rekstur Icelandair. „Þarna er um að ræða lífs- viðurværi þúsunda starfsmanna og starfsfólk Icelandair er einn stærsti greiðandi félagsgjalda til VR og þar með til lífeyrissjóðsins. Það kom mér því á óvart að það hafi verið fulltrúar atvinnurek- enda í sjóðnum sem töluðu fyrir mikilvægi þess að verja störf félagsmanna en ekki fulltrúar launþegahreyfingarinnar,“ sagði Guðrún. Já Nei Hlutdeild áður Stefnir x 12,25% LIVE x 11,80% PAR x 10% LSR x 8,25% Gildi x 7,24% Birta x 7,07% Frjálsi x 2,84% Landsbréf 1,91% Brú x 1,77% Almenni x 1,53% Stapi x 1,36% SL lífeyrissjóður x 0,88% Festa x - Íslandssjóðir x - EFÍA x - Lífsverk x ~0% ✿ Þátttaka fagfjárfesta í útboði Icelandair 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.