Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 65
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Skjaldborg - Hátíð íslenskra heimildamynda, fer loksins fram um helgina eftir að hafa
verið frestað tvisvar í ár. Venjan
er að halda hátíðina á Patreksfirði
um hvítasunnuhelgina, en vegna
COVID var búið að fresta hátíðinni
fram að verslunarmannahelgi.
Hertar sóttvarnareglur sem tóku
gildi fyrir verslunarmannahelgi
urðu svo til þess að aflýsa þurfti
hátíðinni í annað sinn með dags
fyrirvara. En nú er komið að því
að unnendur heimildamynda geti
notið dagskrárinnar sem skipu-
leggjendur Skjalborgarhátíðar-
innar hafa staðið í ströngu við að
undirbúa.
„Eftir að hafa þurft að aflýsa
hátíðinni tvisvar var ekkert annað
í stöðunni en að reyna að keyra
hana í Reykjavík. Þá var tilvalið
að ganga í hjónaband með Bíó
Paradís, en þau hafa unnið vel að
framgangi íslenskra heimilda-
mynda ásamt okkur,“ segir Karna
Sigurðardóttir verkefnastjóri hjá
Skjaldborg.
Hátíðin var sett í gær en hún
stendur yfir alla helgina í Bíó Para-
dís. Skjaldborg er opnunarhátíð
kvikmyndahússins, sem hefur
verið lokað í fimm mánuði.
„Allur þunginn í ár er á heim-
ildamyndadagskránni. Við
leggjum áherslu á að frumsýna
myndirnar og halda fallega utan
um þau augnablik, auk þess að
kynna verk í vinnslu sem er mikil-
vægur hluti af hátíðinni,“ segir
Karna.
Hún segir að vegna sóttvarna-
ráðstafana sé hátíðinni í ár
sniðinn mjög þröngur stakkur,
sem þrengist með hverjum degi.
Skipuleggjendur taka því ekki
neina áhættu og vilja passa öryggi
gestanna, svo klassísk hliðar-
dagskrá eins og fiskiveislan og
limbókeppnin verða að bíða betri
tíma. Hún lofar þó að Skjaldborg
með öllum sínum hefðbundnu
viðburðum komi sterk aftur á Pat-
reksfjörð að ári.
Heiðursgestur Skjaldborgar í
ár er Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Hrafnhildur hefur lengi unnið
að heimildamyndum og var um
árabil kvikmyndatökustjóri en
undanfarin ár hefur hún einbeitt
sér að gerð heimildamynda sem
leikstjóri og framleiðandi. Á hátíð-
inni verða sýndar þrjár myndir
eftir hana auk þess sem hún verður
með masterclass á morgun.
„Heimildamyndadagskráin í ár
er mjög fjölbreytt en við höfum
aldrei fengið jafnmargar umsóknir
um þátttöku. Við finnum fyrir
mikilli grósku í faginu,“ segir
Karna.
„Þetta eru myndir frá fólki sem
er að taka sín fyrstu skref í heim-
ildamyndagerð upp í reynda leik-
stjóra. Við munum meðal annars
sýna fyrstu og einu mynd Jóhanns
Jóhannssonar, First and Last Men.
Þetta er kokteill af allavega við-
fangsefnum og sjónarhornum.
Þannig er Skjaldborg. Við erum
hörð á því að Skjaldborgarandinn
fylgi okkur niður á Hverfisgötu.“
Það er ljóst að í Bíó Paradís
verður veisla heimildamynda alla
helgina fram á sunnudagskvöld.
Karna hvetur gesti til að tryggja
sér miða tímanlega, vanda sig vel í
að halda fjarlægðarmörkum, fylgja
sóttvarnaviðmiðum og njóta þess
að fara í bíó.
Skjaldborg
í hjónaband með
Bíó Paradís
Skjaldborgarhátíðin hófst í gær og stendur yfir um helg-
ina. Hátíðin er haldin í Reykjavík í fyrsta sinn, en hún er
uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og þar er sér-
hæfingin að frumsýna nýjar, íslenskar heimildamyndir. Á Skjaldborg er lögð áhersla á að frumsýna íslenskar heimildamyndir.
Brugðið er út af vananum og fer Skjaldborgarhátíðin fram í Reykjavík í ár. Stilla úr myndinni Góði hirðirinn eftir Helgu Rakel Rafnsdóttur sem sýnd verður á hátíðinni.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins,
arnarm@frettabladid.is Sími: 550 5652
JÓLAHLAÐBORÐ
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um jólahlaðborð kemur út 7. október nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
7. október
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0