Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 84
VIÐ LIFUM EKKI AF NEMA FÓLK ÞORI AÐ KOMA OG VERA MEÐ OKKUR OG UPPLIFA ÞAÐ SEM GERIST Á SVIÐINU. Leikritið Upphaf eftir David Elridge verður frumsýnt í Kassanum, Lindargötu, í k völd, laugardaginn 19. sept-ember. Leikarar er u Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hilmar Guðjónsson. Leikstjóri er María Reyndal. „Verkið fjallar um Guðrúnu og Daníel. Hann er einn eftir þegar gestirnir úr innf lutningspartíi hennar eru farnir. Verkið gerist á rauntíma á einum og hálfum klukkutíma og fjallar um sam- skipti þeirra þessa nótt,“ segir María. Sannleikur og nánd Leikritið var frumsýnt í London fyrir þremur árum, hlaut einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda og hefur verið sýnt víða um heim. Spurð hvað það sé sem heilli svo mjög við leikritið segir María: „Þarna eru litlar umbúðir og mik- ill sannleikur og nánd. Ég held að það hrífi fólk. Þetta er mjög vel skrifað leikrit og trúverðugt með áhugaverðum persónum. Þarna er hefðbundnum kynjahlutverk- um snúið við. Hún er sterk kona, framkvæmdastjóri í fyrirtæki, og hann er fráskilinn og býr hjá mömmu sinni. Í leikritinu, sem fjallar um einmanaleikann og þrá eftir að tengjast, er gleði, harmur og von. Ég held að allir geti sam- samað sig einhverju í verkinu.“ Einungis tveir leikarar eru í Upp- hafi og eru á sviðinu allan tímann. Engar senuskiptingar eru og ekkert hlé. Það reynir því mjög á leikarana Kristínu Þóru Haraldsdóttur og Hilmar Guðjónsson. „Þau eru mjög færir leikarar með mikla reynslu,“ segir María. „Við þrjú unnum saman í mikilli nánd og deildum sögum úr lífi okkar.“ Skrifaði leikrit í COVID Vegna COVID þurfti að skella í lás í leikhúsum landsins, en nú er verið að opna þau eitt af öðru. Spurð hvernig hafi verið að vera leikhús- manneskja á COVID-tímum segir María: „Ég er sjálfstætt starfandi leikstjóri og er alltaf að finna mér verkefni. Þegar allt varð skyndilega stopp dreif ég mig í að skrifa leikrit. Þessi tími hefur verið bæði erf- iður og langur fyrir stéttina. Öll þráum við að sýna og fá áhorfendur í leikhúsin. Við lifum ekki af nema fólk þori að koma og vera með okkur og upplifa það sem gerist á sviðinu. Við erum mjög spennt og glöð að fá að opna aftur.“ Verk um þrá eftir að tengjast Þjóðleikhúsið frumsýnir Upphaf eftir David Elridge um helgina. Leikstjórinn segir alla geta samsamað sig einhverju í verkinu. Við erum spennt að fá að opna aftur, segir María. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Kristín Jónína Taylor og Bryan Stanley koma fram á tónleikum í Salnum í dag, 19. septem- b e r, k l u k k a n 16.30. Þar verður f lutt upptaka af f lutningi þeirra á píanósónötu nr. 2 og píanó- sónötu nr. 28 eftir Beethoven. Frítt er inn á þessa u p p h a f s t ó n l e i k a raðarinnar. Arnar Jóns- son leikari mun lesa valda kafla á undan hverri sónötu, úr bókinni Beethoven – í bréfum og brotum, sem Árni Kristjánsson tók saman. Frítt er inn á tónleikana en gestir þurfa að tryggja sér frímiða á salur- inn.is Ókeypis Beethoven í Salnum í dag Arnar Jónsson leikari mun lesa valda kafla á undan hverri sónötu. TÓNLIST Sinfóníutónleikar Verk eftir Beethoven og Glass Flutningur: Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Eva Ollikainen. Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafs- son. Eldborg í Hörpu/Bein útsending RÚV fimmtudagur 17. september Einhver nemandi í barnaskóla skrif- aði einu sinni í ritgerð um tónlist að börn og eiginkona Beethovens hefðu alltaf verið að rífast í honum og gert hann ENNÞÁ heyrnarlausari. Það er að vísu satt að Beethoven byrjaði að þjást af heyrnarskerð- ingu 26 ára gamall og hún leiddi á endanum til algers heyrnarleysis. Hann átti hins vegar hvorki konu né börn. Heyrnarleysið gerði hann smám saman útlægan úr mannlegu samfélagi, og svo var hann einkar skapheitur í þokkabót. Ekki er vitað hvað olli heyrnarleysinu, en Beet- hoven sagðist ætla að taka örlögin kverkataki. Hann var staðráðinn í að láta þau ekki buga sig, og hann þjálfaði sig í að semja tónlist án þess að þurfa að heyra hvernig hún hljómaði á píanói, eins og tónskáld gjarnan gera. Fyrir byltingu Sú tónlist sem flutt var eftir hann á Beethoven-veislu Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands á fimmtudagskvöldið var samin frekar snemma á ferl- inum, áður en hann varð heyrnar- laus. Fyrsta verkið á dagskránni var lokakaflinn úr fyrstu sinfóníunni, en hann samdi alls níu. Sú fyrsta er í hefðbundnu formi að mestu; Beet- hoven var enn ekki orðinn sá bylt- ingarmaður sem hann varð síðar, er hann umbreytti hefðbundnum klassískum tónlistarformum og opnaði brautina fyrir miklu meira frelsi í tónsköpun en áður hafði þekkst. Kaf linn var hressilega spilaður undir stjórn Evu Ollikainen, sem er nýráðinn aðalstjórnandi hljóm- sveitarinnar. Strengir voru að vísu ekki alltaf alveg samtaka, sem heyrðist nokkuð glöggt í útsendingu RÚV, en undirritaður horfði á hana í sjónvarpinu. Túlkunin var þó fylli- lega í anda verksins; skapstór og tignarleg, gædd gríðarlegum krafti sem var algerlega óstöðvandi. Hin dulda merking Maður veltir stundum fyrir sér hvað svona tónlist merkir. Hver er merking tónlistarinnar? Beet- hoven var sjálfur spurður hvað til- tekið verk eiginlega þýddi, eftir að hann hafði leikið það á píanó fyrir lítinn hóp áheyrenda í stofu. Tón- skáldið reiddist við spurninguna, og án þess að svara settist hann aftur við píanóið og lék allt verkið á ný. Það var svar hans; merkingin var í sjálfri tónlistinni, hún þýddi ekkert annað. Merkingarþrungin túlkun Þetta kom upp í hugann þegar Vík- ingur Heiðar Ólafsson lék einleik- inn í þriðja píanókonsertinum, sem var næstur á dagskránni. Tækni- lega séð var leikurinn lýtalaus, alls konar tónahlaup voru óaðfinnan- lega skýr og jöfn, tónmyndunin var safarík og samspilið við hljóm- sveitina hárnákvæmt. Það í sjálfu sér var ekkert sérlega athyglisvert. Það sem var sláandi var hve túlkun Víkings var merkingarþrungin. Hún var gædd miklum tilfinningum án þess að vera væmin; stórbrotin með undiröldu sem greip mann strax. Þetta var frábær flutningur. Í lok tónleikanna kvað við nýjan tón, en þá var byrjunin úr Glass- works eftir Philip Glass á dag- skránni. Þetta er heillandi tónlist í einfaldleika sínum, hún byggist á sífelldri endurtekningu einfalds tónefnis, sem skapar dálítið nost- algíska stemningu. Flutningur strengjaleikara og píanóleikara var fágaður og ljúfur áheyrnar, og var það fallegur endir skemmtilegra tónleika. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Magnþrunginn flutningur á þriðja píanókonsertinum eftir Beethoven, og annað kom líka ágætlega út. Undiraldan í Beethoven var grípandi Þetta var frábær flutningur, segir Jónas Sen um Víking Heiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.