Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 74
Því leituðum við uppi hönnuði, handverksfólk og framleið- endur sem nota íslenska ull á margvíslegan hátt enda býr hún yfir óendanlegum möguleikum Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir, Guðný Sigurðardóttir lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða, 8. september síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju, þriðjudaginn 22. september kl. 13.00. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju. www.akraneskirkja.is. Guðmundína Hallgrímsdóttir Matthías Pálsson Ólafur Hallgrímsson Bryndís Bragadóttir Hörður Hallgrímsson Geirlaug Jóna Rafnsdóttir og fjölskyldur. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Upphaflega átti að vera allt önnur sýning hér í Hönn-unarsafninu á þessum tíma. Hennar uppruni var framandi, en sá póll var tekinn í hæðina að leggja frekar áherslu á íslenskt efni nú á þessum sérstöku tímum og hvað er íslenskara en ullin? Það fyrsta sem fólki dettur í hug er eflaust handprjón- aðar peysur en ullin er notuð í svo margt fleira og við vildum frekar beina sjónum þangað. Því leituðum við uppi hönnuði, handverksfólk og framleiðendur sem nota íslenska ull á margvíslegan hátt enda býr hún yfir óendanlegum mögu- leikum, þó um náttúrulegan og klass- ískan efnivið sé að ræða.“ Það er Signý Þórhallsdóttir hönnuður sem hefur orðið. Hún er annar tveggja sýningarstjóra hinnar nýju sýningar í Hönnunarsafninu, 100% ull. Hinn er líka hönnuður og heitir Birgir Örn Jóns- son. Meðal varnings á sýningunni er fatn- aður úr ullarefnum. Þó að verksmiðju- vefnaður heyri sögunni til hér á landi þá eru enn prjónaverksmiðjur og ullar- vinnslufyrirtækið Ístex er með mikla framleiðslu. Fatahönnuðurinn Magn- ea Einarsdóttir sýnir líka yfirhafnir úr 100% ull og Kormákur og Skjöldur kynna framleiðslu á vaðmáli (tweed) sem er búið til úr íslenskri ull og verða með fatnað úr því til sýnis. „Hún Ásthildur Magnúsdóttir vefari sat úti í glugga á safninu í vetur þegar allt var lokað vegna COVID-19 og óf röggvarfeld sem er hér núna og hún er líka með fræðsluborð þar sem hún sýnir mismunandi gerðir af ull sem ekki er búið að vinna úr,“ lýsir Signý. Hún vekur líka athygli á nýrri afurð frá hljóðvistar- fyrirtækinu Kula by Bryndís. Sú afurð er þó ekki kúlulaga en hún er gerð úr ull, eins og kúlurnar marglitu sem víða hafa verið settar upp á undanförnum árum til hljóðdempunar. Þessi er á heilum vegg á sýningunni og ætti víða heima þar sem bæta þarf hljóðvist. „Sýningin 100% ull mun verða uppi fram til 15. nóvember og hér verða haldnar smiðjur fyrir alla fjölskylduna og sunnudagsleiðsagnir meðan á henni stendur. Það verður allt auglýst á heima- síðu safnsins og Facebook,“ segir Signý og bætir við: „Hingað verður líka boðið skólahópum, því verið er að taka í notk- un nýjan sal þar sem auðvelt er að vera með fræðslu og aðra dagskrá.“ Hún bendir á að verkin á sýningunni séu ólík þó efniviðurinn sé í grunn- inn allur af íslenskum kindum og segir ánægjulegt að upplifa hversu mikil fjöl- breytni sé í því sem fólk er að búa til úr þessari eðalafurð, ullinni. gun@frettabladid.is Fátt íslenskara en ullin Ný sýning sem ber heitið 100% ull verður opnuð í dag í Hönnunarsafninu á Garðatorgi frá klukkan tólf til fimm. Signý Þórhallsdóttir sýningarstjóri lýsir henni nánar. Sýningarstjórarnir Birgir Örn Jónsson og Signý Þórhallsdóttir sitja hér á ullarballa frá Ístexi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Elsku afi okkar, tengdafaðir og langafi, Hákon Guðmundur Torfason lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, sunnudaginn 13. september. Útför hans fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi, mánudaginn 21. september, klukkan 13.00. Hákon Hallgrímsson Hrefna Guðmundsdóttir Unnur Hallgrímsdóttir Þór Hallgrímsson Sandra Heimisdóttir Hallgrímur Þór Ingólfsson og barnabarnabörn. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, Þórður Sigurðsson fyrrv. yfirlögregluþjónn, Böðvarsgötu 11, Borgarnesi, lést 4. september í Brákarhlíð, Borgarnesi. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju, 26. september, kl. 13. Henni verður einnig streymt á www.kvikborg.is. Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýju. Guðlaugur Þór Þórðarson Ágústa Johnson Þórður Ársæll Sonja Dís Anna Ýr Rafn Franklín Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Hannesar Haraldssonar vélvirkjameistara, Furulundi 47, Akureyri. Guðrún Guðmundsdóttir Haraldur Örn Hannesson Björk Birkisdóttir Guðmundur Heiðar Hannesson Herdís Arnórsdóttir Gauti Már Hannesson Brynja Eysteinsdóttir Sverrir Hannesson Hannes Rúnar Hannesson Vilborg Einarsdóttir Eðvarð Þór Eðvarðsson afabörn og langafabörn. 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.