Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 30
Fólk mætir í venjulegum fötum, tekur á, svitnar ekki en getur fylgst mjög vel með styrktaraukningu. „Það er ómetanlegt að sjá hvernig með- limir okkar upplifa bætt lífsgæði. Ein af þeim sem stundar golf náði loksins að lækka forgjöfina sína um fjóra, eftir aðeins tveggja mánaða ástundun. Önnur lýsti því að hún hefði þurft að draga sig upp stiga í fimm ár vegna kraftleysis í fótleggjum. Eftir bara mánuð í OsteoStrong var hún farin á labba sjálf upp með fangið fullt af dóti. Það skiptir okkur miklu máli að fólk sé alltaf að keppa við sig sjálft, en ekki eitthvert meðaltal,“ segir Örn Helgason, annar eigandi OsteoStrong. „Styrktaraukning er mjög hröð hérna og fólk er að meðaltali að bæta sig um 73% á ári. Eftir að þessum 10 mínútum lýkur er fólki svo boðið að leggjast á PEMF bekki í slökun, sem eykur blóðflæði og dregur úr bólgum í líkamanum,“ bætir hann við. 3.600 Íslendingar hafa prófað OsteoStrong „Móttökurnar hafa verið mjög jákvæðar. Við heyrum gleði- og árangurssögur nánast á hverjum degi,“ segir Örn. „Það er frábært að fá svona mikla staðfestingu á því að kerfið virkar, en mest gefandi að vita að það sem maður starfar við geti breytt lífi fólks svona mikið til hins betra. Eitt af því fal- lega við OsteoStrong er að flestir sem að prófa fara strax að hugsa hverjum þetta gæti helst hentað og byrja að hvetja vini og ættingja til að mæta. Við höfum tekið á móti 3.600 manns hérna í Borgartúninu á árinu og núna stunda 450 manns OsteoStrong vikulega. Sumir koma bara í nokkra mánuði og þurfa ekki meira, þeir sem vinna að uppbyggingu beina þurfa allavega að vera hjá okkur í 1 til 3 ár. Aðrir hafa ákveðið að gera ástundun að hluta af heilbrigðum lífsstíl,“ bætir hann við. „Það hefur líka verið ánægjulegt hversu mikið af fólki úr heilbrigðisgeiranum hefur kynnt sér starfsemina, eins og læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálf- arar og aðrir sem láta sig heilbrigði varða.“ Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri, óháð líkamlegri getu. Með því að setja álag á líkamann hvetjum við hann til þess að styrkja sig. Tæki OsteoStrong gera meðlimum kleift að ýta frá sér f leiri kílóum en er mögulegt ann- ars staðar. Með ástundun þéttast beinin, vöðvar, sinar og liðbönd. Hjá OsteoStrong tekst fólki oft að setja á sig álag sem samsvarar margfaldri líkamsþyngd þess, með eins öruggum hætti og hægt er. „Þess vegna gerast hlutirnir oft hraðar hérna heldur en við aðra hreyfingu. Fólk finnur í framhaldi oft fyrir minni verkjum, betra jafn- vægi og meiri orku. Þá er svo miklu skemmtilegra að vera til,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong. Betra jafnvægi „Það má búast við því að jafnvægið batni hratt. Eftir aðeins fimm skipti er fólk að meðaltali búið að bæta það um 77%. Fyrir suma þýðir það að þeir eru betri í golfi, eða stöðugri í jógatímum. Fyrir aðra þýðir þetta að þeir geta sleppt göngugrindinni, eða átt auðveld- ara með að ganga.“ Einmitt það sem þarf Fólk sem stundar OsteoStrong er á öllum aldri og mjög mismunandi á sig komið. Margir nota þetta sem viðbót við aðra þjálfun, en fyrir suma er þetta það eina sem þeir geta stundað. „Það er ekki meiningin að við séum eina hreyfingin sem fólk stundar. Við hvetjum fólk endi- lega til að gera allt sem því þykir skemmtilegt. Fyrir suma erum við það fyrsta sem þeir geta gert eftir að hafa dottið út úr hreyfingu í langan tíma. Fyrir aðra þá erum við einmitt hjálpin sem þarf, til þess að ná markmiðum sínum í þríþrautinni,“ bætir Örn við. Fall er fararheill „Hugmyndin að opna OsteoStrong á Íslandi kom þegar við vorum tiltölulega nýflutt heim til Íslands eftir að hafa búið í fimm ár á Spáni. Við höfum bæði búið í nokkrum löndum og það er alltaf nokkur aðlögun sem þarf þegar maður flytur heim. Í þetta skiptið fannst okkur leiðinlegast hvað við fund- um hvað margir upplifðu mikið stress í daglega lífinu. Stress er hræðilegt fyrir heilsuna og gleðina og okkur fannst spennandi að geta boðið fólki upp á möguleika til að gera eitthvað uppbyggjandi fyrir sig sjálft á bara 20 mínútum einu sinni í viku. Þegar við vorum búin að skrifa undir samninga og fórum á ráðstefnu í Bandaríkjunum um rekstur svona stöðva þá braut ég mig rosalega illa og var í aðgerð skrúfuð saman með átta málm- stykkjum í fótinn, var í fimm daga á spítala í Las Vegas og svo send í læknisfylgd heim til Íslands. Ég var mikið veik og verkjuð í þrjá mánuði þannig að OsteoStrong er búið að vera mín endurhæfing. Það hefur verið ómetanlegt fyrir mig en líka hjálpað til með að skilja allt það sem fólk hefur gengið í gegnum áður en það kemur hingað. Þegar við ákváðum að opna OsteoStrong var ég ekki búin að geta lyft þungu í nokkur ár því að mjaðmagrindin var svo viðkvæm eftir fæðingu. Nú get ég bara gert hvað sem ég vil. Það hentar mér töluvert betur því ég er vön því að vera sterk og áræðin og að geta tætt í mig verkefnin,“ segir Svanlaug og brosir. Hámarksárangur á lágmarks- tíma hjá OsteoStrong „Við hjónin stofnuðum þetta fyrirtæki til þess að hjálpa fólki að fá hámarksárangur hreyfingar á lágmarkstíma. Ég var ekkert sér- staklega að hugsa um sjálfan mig í því samhengi. Ég hef alltaf verið hraustur. Síðan áttaði ég mig allt í einu á að ég var farinn að geta synt bringusund, sem ég hafði ekki getað í tólf ár út af hnénu á mér. Ég varð stundum þreyttur í bakinu, en það er alveg búið. Líkamsstaða mín er betri, ég er með opnari bringu og ber mig betur. Ég er orkumeiri, hressari og verð ekki veikur. Ég á líka miklu auðveldara með að stjórna mataræðinu, því að ástundun OsteoStrong hefur áhrif á blóðsykurinn. Ég er líka orðinn svo sterkur að ég næ að gera allt sem mér dettur í hug án þess að finna fyrir því daginn eftir. Við vinnum mjög mikið því við erum með nýtt fyrirtæki, svo að allur okkar frítími fer í að njóta þess að vera með börnunum okkar. Við erum reyndar nýbúin að taka upp á því að bjóða vinum okkar upp á mánaðarleg matarboð. Við veljum bara dagsetninguna og svo raðast alls konar fólk saman sem þekkist kannski ekki neitt. Það er búið að slá í gegn. Íslendingar eru greini- lega alltaf að verða opnari fyrir nýjum upplifunum.“ OsteoStrong býður upp á ókeypis prufutíma á fimmtudögum og föstudögum í Borgartúni 24. Áhugasamir geta skráð sig á os- teostrong.is eða í síma 419 9200. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Framhald af forsíðu ➛ Þeir sem stunda æfingar hjá OsteoStrong njóta handleiðslu frábærra þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkamann.  FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ástundun OsteoStrong tekur mjög stuttan tíma eða um 10 mínútur á viku. Fólk finnur oft mjög mikinn mun á sér fljótt. Margir notfæra sér tækin sem viðbót við aðra þjálfun, svo sem golfið. Rauð og innrauð ljós bæta kollagenframleiðslu húðar- innar. Margir hafa prófað þessa nýju tækni. Tæki OsteoStrong gera meðlimum kleift að ýta frá sér fleiri kílóum en er mögulegt annars staðar. Með ástundun þéttast beinin, vöðvar, sinar og liðbönd. Meðlimir geta átt von á að: n Minnka verki í baki og liða- mótum n Lækka langtíma blóðsykur n Auka beinþéttni n Bæta líkamsstöðu n Auka jafnvægi n Auka styrk n Minnka líkur á álagsmeiðslum n Álag þéttir vöðva 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.