Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 6
VIÐSKIPTI Hluthafalisti Icelandair
mun taka verulegum breytingum
eftir hlutafjárútboð sem fór langt
fram úr væntingum markaðarins.
Fagfjárfestar sem voru stórir hlut-
hafar fyrir útboðið ákváðu að taka
ekki þátt í útboðinu á meðan aðrir
bættu verulega við hlut sinn og nýir
komu inn af þunga.
Stjórn Icelandair samþykkti yfir
níu þúsund áskriftir að fjárhæð 30,3
milljarðar króna og var því ákveð-
ið að nýta heimild til stækkunar
útboðsins þannig að fjöldi seldra
hluta verði 23 milljarðar. Nýjum
hlutum fylgja 25 prósenta áskriftar-
réttindi eða sem nemur 5,75 millj-
örðum hluta.
Fréttablaðið tók saman yfirlit yfir
þátttöku helstu fagfjárfesta í útboð-
inu. Sjóðir í stýringu Stefnis, sjóða-
stýringarfélags Arion banka, sem
áttu samtals 12,25 prósenta hlut
fyrir útboðið, tóku þátt samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Hlutur
Stefnis mun þó minnka töluvert
miðað við það sem áður var, eftir
því sem Fréttablaðið kemst næst.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
sem var næststærsti hluthafinn
með 11,8 prósenta hlut, tók ekki
þátt. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins féll tillaga um að lífeyris-
sjóðurinn myndi skrá sig fyrir 2,5
milljarða króna hlut í útboðinu á
jöfnum atkvæðum þar sem fjórir
stjórnarmenn greiddu atkvæði með
og fjórir greiddu atkvæði gegn. Ef
tillagan hefði verið samþykkt hefði
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
verið með rúmlega 11 prósenta hlut
í Icelandair í kjölfar útboðsins.
Þá hafði um nokkurt skeið verið
vitað að PAR Capital, sem var
stærsti hluthafinn í Icelandair þegar
kórónafaraldurinn skall á, myndi
ekki taka þátt. Bandaríski fjárfest-
ingasjóðurinn hafði selt sig niður í
þriðja sæti hluthafalistans og nam
eignarhluturinn 10 prósentum fyrir
útboðið.
Á r ni Guðmu ndsson, f ram-
kvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs,
staðfesti þátttöku sjóðsins í sam-
tali við Viðskiptablaðið en hann
gaf ekki upp hversu há fjárhæðin
væri. Gildi var fjórði stærsti hlut-
hafi Icelandair með 7,24 prósenta
hlut fyrir útboðið.
Lífeyrissjóður starfsmanna rík-
isins (LSR), stærsti lífeyrissjóður
landsins og fjórði stærsti hluthafi
Icelandair Group, skráði sig fyrir
um 2 milljörðum hluta í því skyni
að verja 8,25 prósenta eignarhlut
sinn.
Birta lífeyrissjóður, sem var sjötti
stærsti hluthafi Icelandair Group
með rúmlega 7 prósenta hlut, ákvað
að taka ekki þátt í hlutafjárútboði
f lugfélagsins. „Samstaða var um
þessa ákvörðun bæði hjá starfs-
mönnum og stjórn eftir ítarlega
skoðun á málinu þar sem mörg
fagleg sjónarmið vógust á,“ sagði í
tilkynningunni frá sjóðnum.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem fór
með 2,8 prósenta hlut, tók ekki þátt
í útboðinu samkvæmt svari frá Arn-
aldi Loftssyni, framkvæmdastjóra
sjóðsins. Sama gildir um Festu líf-
eyrissjóð og Íslenska lífeyrissjóð-
inn en hvorugur var á listanum yfir
tuttugu stærstu hluthafana fyrir
útboðið.
Brú lífeyrissjóður tók þátt í
útboðinu og fékk úthlutað 1.260
milljónum hluta. Þetta stað-
festir Gerður Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Brúar, í samtali við
Fréttablaðið. Eignarhlutur Brúar,
sem var 1,77 prósent, hækkar því í
tæp 4,8 prósent eftir útboðið.
Almenni lífeyrissjóðurinn tók
þátt í útboði Icelandair Group sam-
kvæmt svari frá Kristjönu Sigurðar-
dóttur fjárfestastjóra og fékk rúma
441 milljón í sinn hlut. Eignarhlutur
sjóðsins eykst því úr 1,5 prósentum
upp í 1,8 prósent.
Lífsverk, sem átti ekki teljandi
hlut í Icelandair, sótti um 400
milljónir króna í útboðinu og fékk
úthlutaðar 252 milljónir, sem sam-
svarar tæplega 0,3 prósentum af
eignum samtryggingardeildar.
„Samhljómur var meðal stjórnar
og eignastýringar Lífsverks að taka
þátt í hlutafjárútboðinu,“ sagði í til-
kynningu Lífsverks.
Eftirlaunasjóður FÍA, sem átti
smávægilegan hlut fyrir útboðið,
keypti fyrir 439 milljónir.
Íslandssjóðir, dótturfélag Íslands-
banka tóku „vel þátt“ í útboðinu að
sögn Kartans Smára Höskuldssonar
framkvæmdastjóra en fjárhæðir eru
ekki opinberar upplýsingar. Félag-
ið var ekki á listanum yfir tuttugu
stærstu hluthafana fyrir útboðið.
Ekki fengust svör frá Landsbréfum,
dótturfélagi Landsbankans, við
fyrirspurn um þátttöku en félagið
átti 1,9 prósenta hlut fyrir.
Þá segir Jóhann Steinar Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Stapa líf-
eyrissjóðs, sem átti 1,36 prósent, að
sjóðurinn hafi tekið þátt í útboði
Icelandair „í samræmi við hluta-
fjáreign sína í félaginu“. Má því ætla
að Stapi hafi keypt hluti í útboðinu
fyrir tæplega 400 milljónir króna.
Útgefið hlutafé Icelandair, sem
verður aukið úr 5,4 milljörðum í
28,4 milljarða í kjölfar útboðsins,
mun þynnast niður í um 19 til 21
prósent og ef nýir fjárfestar félags-
ins nýta sér þau áskriftarréttindi
sem fylgja með bréfunum, sem
hægt verður að gera í einu lagi eða
skrefum til allt að tveggja ára, þynn-
ist eignarhlutur hluthafa niður í allt
að 16 prósent.
thorsteinn@frettabladid.is
Nýr hluthafahópur tekur á sig mynd
Uppstokkun verður í hluthafahópi Icelandair Group eftir útboðið. Íslandssjóðir tóku „vel þátt“ í útboðinu. Brú bætir verulega við
hlut sinn og Lífsverk kemur nýr inn. Frjálsi sat hjá og hlutur Stefnis þynnist þrátt fyrir þátttöku. Almenni og Stapi viðhalda sínu.
Mikil eftirspurn var eftir hlutum frá almennum fjárfestum og verður eignarhlutur þeirra í félaginu um 50 prósent í kjölfar útboðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Pálmi Haraldsson
keypti hlut
Pálmi Haraldsson staðfesti í
samtali við Fréttablaðið að
hann hefði tekið þátt. Eignar-
hlutur Pálma í Icelandair, sem
nam um 3 prósentum, er meðal
annars í gegnum eignarhalds-
félögin Sólvöll og Ferðaskrif-
stofu Íslands. Pálmi var á sínum
tíma stór hluthafi í Icelandair
og sat í stjórn flugfélagsins á
árunum 2003 og 2004. Vænting
ehf., fjárfestingafélag Bláa
lónsins, sem var með 1,3 pró-
senta hlut, tók hins vegar ekki
þátt samkvæmt svari frá Helgu
Árnadóttur, framkvæmda-
stjóra hjá Bláa lóninu. Þá náðist
ekki í Högna Pétur Sigurðsson,
fjárfesti og eiganda Hard Rock
Cafe á Íslandi, sem varð stærsti
einkafjárfestirinn í hluthafahópi
Icelandair í vor. Hann átti þá
samanlagt 3,4 prósent.
Furðar sig á afstöðu fulltrúa launþega í stjórn
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Guðrún Hafsteinsdóttir, vara-
formaður stjórnar Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að and-
stæðir pólar hefðu tekist á innan
stjórnarinnar við mat á því hvort
taka ætti þátt í hlutafjárútboði
Icelandair.
„Við fulltrúar atvinnurekenda
vorum samstíga í því að styðja
þátttöku,“ útskýrir Guðrún.
Hún sagðist hafa átt von á
því að stjórnin, sem telur átta
manns, myndi standa saman að
því að verja störf félagsmanna og
þá hagsmuni sem eru undir fyrir
íslenskt efnahagslíf að tryggja
rekstur Icelandair.
„Þarna er um að ræða lífs-
viðurværi þúsunda starfsmanna
og starfsfólk Icelandair er einn
stærsti greiðandi félagsgjalda til
VR og þar með til lífeyrissjóðsins.
Það kom mér því á óvart að það
hafi verið fulltrúar atvinnurek-
enda í sjóðnum sem töluðu fyrir
mikilvægi þess að verja störf
félagsmanna en ekki fulltrúar
launþegahreyfingarinnar,“ sagði
Guðrún.
Já Nei Hlutdeild
áður
Stefnir x 12,25%
LIVE x 11,80%
PAR x 10%
LSR x 8,25%
Gildi x 7,24%
Birta x 7,07%
Frjálsi x 2,84%
Landsbréf 1,91%
Brú x 1,77%
Almenni x 1,53%
Stapi x 1,36%
SL lífeyrissjóður x 0,88%
Festa x -
Íslandssjóðir x -
EFÍA x -
Lífsverk x ~0%
✿ Þátttaka fagfjárfesta
í útboði Icelandair
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð